Ungfrú Hnappadalssýsla.

 

Fyrsta hugsun mín á morgnana er alltaf ein merkilegasta hugsun dagsins hjá mér.  Helgast það m.a. af því að aðrar hugsanir dagsins eru ekkert sérlega merkilegar.

Í gærmorgun var mín fyrsta hugsun:  Pálmi Har. greiðir Jóni Ásgeiri 1 milljarð inn á einkareikning.  Pálmi á jafnframt heilt flugfélag og Jón Ásgeir á "ég veit ekki hvað" !  Er greiðslan kannski eitthvað tengd "einhverju ólöglegu" ?   Er líklegt að þeir hafi verið að "fjárfesta" í kappakstursliði ?

Í morgun kom þessi hugsun:  Það vantar bloggara sem á ekki fyrir salti í grautinn.  Með öðrum orðum, það þyrfti einhver sem er í þeim sporum að eiga ekki fyrir mat og sem þarf að leita til hjálparsamtaka til að fæða sig og börnin sín, að skrá dagbók og leyfa landsmönnum að upplifa hvernig það er.  Líklegar skýringar á því að einstaklingar í þessum sporum blogga ekki geta verið að viðkomandi byrjar á því að skera niður munað eins og tölvukostnað, að málin eru viðkvæm og fólk er ekki tilbúið að bera sorgir sínar á torg. 

Eða - kannski væri góð hugmynd fyrir einhvern af öllum þeim fréttamönnum sem nú eru að missa vinnuna að setjast niður með einstæðri móður í þessum sporum og skrifa sögu hennar og gefa síðan út bók.  Sem gæti þá hugsanlega gefið móðurinni pening í aðra hönd.

.

Frog-thinking

.

Þá eru morgunþankar mínir komnir á netið mér og mínum að meinalausu.

Hins vegar læt ég þess ógetið hvaða hugsanir flögra um kollinn minn síðar um daginn.  Það væri fáránlegt að opinbera þá hugsun mína að ég gleymdi að taka þátt í ungfrú Hnappadalssýsla þegar ég var yngri og nú er það orðið of seint !

Ekki af því að ég er orðin 45 ára heldur vegna þess að Hnappadalssýsla er horfin af kortinu.  Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Hver fór Hnappadalssýsla ?

Ragnheiður , 30.1.2010 kl. 19:18

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Á bakvið Snæfells- og.

Anna Einarsdóttir, 30.1.2010 kl. 19:25

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já... þínar fyrstu hugsanir eru góðar Ég held að þér sé líka alveg óhætt að birta afganginn. Það væri til dæmis ekki slæmt að vera ungfrú Snæfells- og. Eina vandamálið væri kannski að þú ert ekki lengur ungfrú...........

Hrönn Sigurðardóttir, 30.1.2010 kl. 20:46

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Jú Hrönn.  Ég er ung frú. 

Anna Einarsdóttir, 30.1.2010 kl. 23:17

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég þekki enn orgínalinn, úngfrú Znæfellz & Hnappadalzzýzlu, ættaða & uppalda frá Hellnum, fallhlífarkonu mikla.

Steingrímur Helgason, 31.1.2010 kl. 01:13

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ertu að tala um Elínu ?

Anna Einarsdóttir, 31.1.2010 kl. 01:26

7 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég var einu sinni í brúðkaupsveislu á Hótel Íslandi sem er ekki í frá sögur færandi nema af því að veislan var haldin á baka til og ég ásamt nokkrum öðrum sem langaði að kíkja inn á ball. Við gengum í gegn um sal þar sem borðar frá fegurðarsamkeppninni lágu.  Ingibjörg Ottesen valdi þann fallegasta og á honum stóð Ungfrú Snæfells og Hnappadalssýsla.  Ég setti borðan auðvitað um axlir mér og gekk í danssalinn.  Þetta var mega stuð, en best þegar ég mætti í veisluna aftur og laug því auðvitað að hafa verið krýnd fegurðardrottning.

En þessi hugmynd þín til atvinnubóta fyrir brottrekna blaðamenn er snilldin ein.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 2.2.2010 kl. 22:44

8 Smámynd: Gulli litli

Þetta eru fínar og þarfar hugsanir....Hér talar maður hokinn af reynslu eftir þáttöku í Hr. Skefilstaðahreppur án þess að komast í undanúrslit.........Skömmu síðar var hreppurinn lagður niður....

Gulli litli, 5.2.2010 kl. 12:25

9 Smámynd: Steingrímur Helgason

Jamm, Elín var það heillin...

Steingrímur Helgason, 7.2.2010 kl. 21:48

10 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Við erum jafnöldrur og bekkjarsystur.  Hún er bráðmyndarleg, á það fellst ég fúslega. 

Anna Einarsdóttir, 7.2.2010 kl. 22:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 342774

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband