Ég er að spá í að stela.

 

Þar sem ég er bara heimavinnandi húsmóðir þessa dagana og vantar örlitla fjölbreytni í líf mitt, hef ég verið að velta fyrir mér ýmsum möguleikum.

Ein hugmynd mín er sú að gerast þjófur.

Það er að vísu ekki ný hugmynd því margir hafa áður fengið slíka hugdettu.

En í dag felast einmitt miklir möguleikar í því að vera þjófur.

Fyrst fer ég í búðina og stel einu lambalæri.  Lærið er stórt og ég er lítil,  þannig að yfirgnæfandi líkur eru á að upp um mig komist.  En það gerir ekkert til.  Ég segi bara við lögregluna:  "Strákar mínir, við skulum ekkert vera að dvelja við fortíðina".  Cool  (ég stal sko lærinu daginn áður)  "Það er framtíðin sem skiptir máli".

Og ef það dugir ekki segi ég:  "Ó !  Ég vissi ekki að það væri ólöglegt að stela.  Smá mistök, þið afsakið.  Ég skila bara lærinu og málið er dautt".  Smile 

Já, því meira sem ég hugsa málið, því betri finnst mér hugmyndin.  Þetta er spennandi en á sama tíma tek ég enga áhættu.  Ég gæti jafnvel endað sem þingmaður !  W00t

.

thief-caught-cctv

 

.

Það er þó alveg bannað að stela kökum úr krúsum í gær því nær öruggt er að jafnvel börn muni spyrja hver hafi gert það.

Anna litla þjófur.  Cool

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.2.2010 kl. 23:01

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Hmmm ... svei mér þá ef ef ég hef ekki smá-grun um hver er fyrirmyndin að þessari steluþjófaorgíu þinni.

Jóhannes Ragnarsson, 7.2.2010 kl. 09:21

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Steldu bara nogu andskoti miklu. Their virdast sleppa best sem thad gera.

Halldór Egill Guðnason, 8.2.2010 kl. 03:38

4 identicon

Og smakkaðist lærið ekki vel í gær?  Var þá ekki búið að fjarlægja (borða) öll sönnunargögn?

Ebba (IP-tala skráð) 8.2.2010 kl. 19:12

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nei sko Ebba, ég keypti það..... ég er ekki byrjuð ennþá að stela.   

Anna Einarsdóttir, 8.2.2010 kl. 23:51

6 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Það hefur aldrei borgað sig að vera í smáþjófnaði Anna.  Þú verður að vera stórtækari ef þú vilt láta taka eitthvað mark á þér.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 9.2.2010 kl. 13:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 342774

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband