Lestir en ekki kostir.

 

Í æsku voru mér kennd ákveðin gildi, eins og heiðarleiki, sannsögli, ábyrgð og gæska.  Mér var sagt að þeir sem lifðu lífi sínu samkvæmt þessum gildum, teldust vera mannkostamenn miklir.

Það virðist eins og gildin hafi snúist við á síðustu árum og nú er þjóðfélagið sem við byggjum að reyna að segja okkur að það sé allt í lagi að ljúga, stela og vera vondur. 

Þetta gerir mig alveg ruglaða.  Pinch

Eru allir búnir að gleyma boðorðunum tíu ?

.

Árið 2007 sat ég stundum og velti því fyrir mér af hverju sumir urðu svo ofsaríkir, að því er virtist upp úr þurru.  FootinMouth   Ég hugsaði "hvað er það sem þeir hafa í kollinum sem ég hef ekki"?   Engin varð niðurstaðan af þessum pælingum.  Nema ef vera skyldi að ég væri orðin gamaldags.  Pouty   Ég bara skildi þetta ekki.  Fyrr en seinna.  Þá uppgötvaði ég að það voru græðgi og óheiðarleiki sem helst einkenna þá ofurefnuðu.  Lestir en ekki kostir.

Mikið er nú gott að vera gamaldags.

.

gamaldags

.

Ég held ég sé orðin tilbúin til að verða AMMA.  W00t 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Þvílík er viskan og því ekki seinna að vænna Anna mín.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 14.2.2010 kl. 15:55

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Anna AMMA? Þarf ég þá að endurskoða hver er uppáhaldsamman mín?

Hrönn Sigurðardóttir, 14.2.2010 kl. 21:56

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Tja.... eigum við ekki að leyfa mér að verða amma áður en ég verð einhvers uppáhaldsamma ? 

Anna Einarsdóttir, 14.2.2010 kl. 22:01

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þakka falleg orð á gestabókinni minni. En svo fór auðvitað hugmyndaflugið í gang. Og þá fór að verða áleitið bæjarnafn úr prestakalli afa míns og ég sé fyrir mér kynbótahrúta fleiri en einn og sé koma upp afleggjara þar sem stendur öðru megin við letrað á skilti bæjarnafnið Dalur!

Árni Gunnarsson, 19.2.2010 kl. 00:00

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þú ert naskur Árni - eða skyggn.  Ég er einmitt ættuð frá Dal, þótt engan þátt eigi ég í góðum og þekktum kynbótahrútum. 

Anna Einarsdóttir, 19.2.2010 kl. 00:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband