Ör í hjartað.

Mig dreymdi afar undarlegan draum í nótt.

Ég var í öðrum kvenmannslíkama og yngri.  Ég var nýbúin að hitta stóru ástina mína.  Við kærustuparið vorum saman í húsi og þá kemur kona inn og skýtur okkur bæði í hjartað með örvum.  Ég fann sáran sviða.  Síðan fannst mér að við hefðum verið mjög heppin og lifðum þetta af en vorum í gíslingu í húsi þessarar illu konu.  Mér fannst ég hafa verið þar í langan tíma þegar dyrabjallan hringir.  Ég fer til dyra og þar stendur mamma.  Hún var í líki fallegrar rauðhærðrar konu, þ.e. ekki sama móðir og ég á í alvörunni.  Mamma bjargaði okkur, mér og kærastanum og það voru æsispennandi augnablik þegar við vorum að komast undan.  Svo finnst mér líða dálítill tími, ekki mjög langur, en þá fær kærastinn minn hjartaáfall.  Ég hélt honum í fanginu og hann sagði "þetta hefur verið yndislegt yndislegt líf með þér". 

Þarna gelti hundurinn minn og vakti mig.  Hann geltir nánast aldrei á nóttunni en ég var mjög fegin að vakna..... þvílík átök á einni nóttu.  púfferípúff.

psssssst.  ég réð drauminn sjálf - sjá athugasemd númer 7.

Tek að mér að ráða drauma fyrir aðeins tvöþúsundkall stykkið.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vó, vó bara rómans og thriller á nóttunni.  Ég öfunda þig kona.  Mig dreymir bara andlega drauma()

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.4.2007 kl. 17:55

2 Smámynd: Hugarfluga

Segi það með Jennýju .. maður öfundar þig bara fyrir svona drauma. Mig dreymir hins vegar bara bull og vitleysu og fólk sem breytist í tannbursta og bolta sem talar og svoleiðis bull.

Hugarfluga, 30.4.2007 kl. 19:33

3 Smámynd: Arnfinnur Bragason

Þetta er rammpólitískur draumur!! Anna þú ert með kærastanum sem er samfylkingin, vonda konan er illa íhaldið sem reynir að eyða ykkur og fang þig í það minnsta, nú svo kemur góða yndislega framsóknarkonan sem í áratugi hefur haldið utan um okkur, mömmuímyndin, og frelsar þig og um leið þá deyr samfylkingarkærastinn og þú gerist framsóknarkona og áttar þig á því góða sem framsóknarflokkurinn hefur innleytt í þjóðfélagið í gegnum árin, Séruð þetta ekki sjálf??

Arnfinnur Bragason, 30.4.2007 kl. 21:25

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þú ert vitlausari en ég Arnfinnur, það áttekkaðverahægt. .  Mamman var rauðhærð, mundu það.  Svo hún er ekki tákn fyrir Framsókn - heldur Samfylkinguna.  Stórpólitískur sigur Samfylkingarinnar.... sátt við þá ráðningu. 

En hefði gaman af ef fleiri myndu ráða hann

Anna Einarsdóttir, 30.4.2007 kl. 21:34

5 Smámynd: Ólafur fannberg

Ólafur fannberg, 30.4.2007 kl. 22:45

6 Smámynd: Gíslína Erlendsdóttir

Að dreyma að skotið sé að þér ör og hún hittir þig, táknar að meðal vina þinna leynist fjandmaður. Fann ekkert um rauðhærðar mömmur, kærasta, hjartaáföll eða vondar konur. Vísa á www.draumur.is   Mjög flottur draumur og er áreiðanlega fyrirboði svo þú skalt fá ráðningu á honum hjá alvöru fólki sem fyrst.....ég er svo spennt...svo drífa í því.  Kannski ráðningin komi í ljós í kosningunum.

Gíslína Erlendsdóttir, 30.4.2007 kl. 23:14

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég held reyndar að draumurinn þýði að ég verð ástfangin á næstu helgi af giftum manni og frúin kemur og gefur mér á´ann en þá hlaupum við í burtu en mamma kemst svo að þessu og verður reið, því ég á ekkert að vera að dandalast með giftum manni svo hún eitrar fyrir honum en ég held að það sé hjartaáfall - og hundurinn vissi þetta allan tímann því annars hefði hann ekki gelt.   Rökrétt ?

Anna Einarsdóttir, 1.5.2007 kl. 00:35

8 identicon

Frábær ráðning og fyndin, ég hló mínum morgunhlátri að þessu...góð ráðning ef kallamálin eru efst í hug....það er bara eitt sem passar ekki og það er að ég sé þá mömmu (þína) sem ég þekki ekki fara að eitra fyrir neinum!! Veðja ennþá á kosningarnar.

gillí (IP-tala skráð) 1.5.2007 kl. 09:44

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já Gillí.  Það er full ástæða til að hafa áhyggjur af mömmu !

Anna Einarsdóttir, 1.5.2007 kl. 11:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband