Var svo ljót að ég ældi.

 

.

Mirror-Mirror(b)

 

.

Þegar ég lít í spegil,  blasir við mér mynd sem ég er alveg hæstánægð með.  Svo ánægð stundum, að það jaðrar við argasta grobb.

.

Það hefur þó ekki alltaf verið þannig.  Á mínum yngri árum, fann ég spegilmynd minni allt til foráttu.  Lengi vel var ég til dæmis með fílapensil á nefinu.  Við erum að tala um að hann kom sér þarna fyrir öll mín unglingsár.  Þegar fílapensillinn svo loksins, loksins gafst upp í baráttunni við mig, spýttist hann af miklu afli á spegilinn og myndaði þar væna slummu.  Það var gýgur í nefinu á mér, lengi á eftir.

.

Þegar við vorum krakkar, krakkarnir... kannski svona 6-7 ára ...Woundering .... fórum við stundum í leik uppi á lofti, hjá ömmu og afa.  Þá slökktum við öll ljós og svo var einn draugur.... með vasaljós undir hökunni.  Þegar kom að því að ég átti að vera draugurinn, setti ég ljósið undir hökuna, fór að speglinum og gretti mig ógurlega.  ARRRRG  Crying  Mér brá svo við það sem í speglinum var, að ég hljóp hríðskjálfandi niður.  Þorði ekki meir.

.

Annað ógleymanlegt móment á ég tengt spegli.  Þá hafði ég verið mikið veik, bæði með mislinga og rauða hunda á sama tíma.  Jamms,, er soddan snillingur stundum. Joyful  Allavega, ég hafði legið fárveik í rúminu í rúma viku en var svo aðeins að verða brattari.  Staulaðist fram á baðherbergi til að pissa.  Mér verður litið í spegilinn þegar ég geng framhjá....... og ég var svo ljót að ég ældi.  Sick

.

En með auknum þroska og versnandi sjón..... verður spegilmyndin fegurri með hverju árinu.  Grin

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

Alveg er ég sammála... einhver óútskrýranleg sjálfsánægja í gangi sem ekki var til staðar hér áður (þó ég hafi svosem aldrei ælt af ófríðleik)

Aðalheiður Ámundadóttir, 27.8.2007 kl. 17:31

2 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Eitthvað kannast ég við svona speglasamband. Ekki tel ég mig vera neitt myndarlega, en ég er samt ólíkt ánægðari með spegilmyndina núna, en þegar ég var unglingur. Samt var ég fríðari þá, hmmm.... eitthvað öfugsnúið við þetta, en ég sætti mig við sjálfa mig fyrir löngu. Ég er það sem ég er og hvorki meira né minna en akkúrat það!!

Bjarndís Helena Mitchell, 27.8.2007 kl. 17:50

3 Smámynd: Gíslína Erlendsdóttir

SKO....þetta fer allt eftir því í hvernig spegla maður lítur, því minni því betra.   Nei..nei bara djók.  Þú hefur ekkert breyst Anna mín síðan þú varst lítil nema kannski aðeins stærri...og með svart hár.

Gíslína Erlendsdóttir, 27.8.2007 kl. 18:20

4 identicon

Spurning mín er samt þessi.. af hverju finnst manni maður vera svo miklu sætari í spegli en á ljósmynd? Svar.. í speglinum sérðu spegilmynd þína.. þú ert vön henni.. á ljósmynd sérðu þig nákvæmlega eins og þú ert.. og þú ert ekki vön að sjá þá mynd.. þetta er svona eins og að hlusta á röddina sína á hljóðsnældu.. úff.. ég drýp svoleiðis af visku í dag.. hvað er eiginlega í gangi.. ??

Björg F (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 18:41

5 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég ef ekki ælt vegna spegilmyndar minnar, en orðið þokkalega óglatt.

Einu sinni var sagt við mig, (var að skríða út úr tjaldi):  Ingibjörg, þú ættir að gefa þig fram, þú lítur út eins og sprunginn MaryGoldhanski.  Veit ekki hvað þetta þýddi og spurði.  Jú, sjáðu til, meira segja hestarnir eru skíthræddir við þig.

Síðan þá geng ég með maska. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 27.8.2007 kl. 19:07

6 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Anna þú ert flott og hefur örugglega alltaf verið það.

Mér hefur aldrei fundist ég ljót í spegli, en oft á mynd - líklega vaninn sko  eins og manneskjan sagði.

Marta B Helgadóttir, 27.8.2007 kl. 21:09

7 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Veit ekki hvað þú ert að tala um??  

Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.8.2007 kl. 21:15

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég er að segja´ða !  Kastaði upp við það að sjá mig.     Mér finnst það fyndið... en get lofað ykkur því að mér þætti ekki sniðugt ef einhver ANNAR kastaði upp við að sjá mig. 

Anna Einarsdóttir, 27.8.2007 kl. 21:15

9 Smámynd: Brattur

... mikill kostur þegar sjónin daprast með aldrinum... ekki spurning...

Brattur, 27.8.2007 kl. 21:20

10 Smámynd: kloi

Þú ert sæt Anna.  Mér hefur stundum verið strítt og uppnefndur. Einn sagði, þú ert hrikalega asnalegur, alveg eins og svín.  Mér finnst ég sætur, sjáið bara myndina af mér

kloi, 27.8.2007 kl. 21:26

11 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þú rekur alltaf augun í aðalatriðin í textanum mínum Brattur minn....... "fegurri eftir því sem sjónin versnar".  

Anna Einarsdóttir, 27.8.2007 kl. 21:35

12 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já maður er orðin svo flinkur að setja upp svipinn sem fer manni best þegar maður lítur í sepgil eðga gengur fram hjá glugga að það er alltaf sjpokkerandi að sjá hvernig myndavélin getur algerlega hundsað þennan fína svip. Í dag er ég með ljóta frunsu en annars bara mjög sæt þegar ég lít í spegil. Myndavélar ætla ég að hundsa meira og meira með aldrinum og njóta þess að hafa verri sýn en áður. ímyndunaraflið er aldeilis stórgott tæki í baráttunni við vaxandi ......minnkun á fegurð!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.8.2007 kl. 09:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 342713

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband