Furðulegt fólk, ræktendur.

 

Við áttum gæðastund í kvöld, ég og hundurinn.  Snæddum saman soðna ýsu með nýjum kartöflum og smjöri.  Hundurinn minn er ljónheppinn.  Systkini hans í Reykjavík fá bara þurrmat.  Það er "inn" að gefa hundum ekki mat.... bara þurrmat.  Virðulegir ræktendur hnussa þegar þeir heyra að hundurinn fær afganga.  Þeim finnst hann líka ekki par merkilegur, þar sem hann er litagallaður.  Það eiga nefnilega allir Cavalier hundar að vera eins á litinn.  

.

%7Bfa89e9bb-0df0-4d1c-91e4-e9ea260d2166%7D_fiskur_a_disk_154x119_opt

Engin mynd af soðinni ýsu á netinu...en hér er Ýsa og þið dragið bara frá Kóríander og appelsínur og eitthvað drasl sem er þarna.

.

 

Hestar hins vegar þykja flottir ef þeir eru litskrúðugir.  Fágætir litir eins og litförótt og vindótt, eru mjög vinsælir.   Hún er merkileg mannskepnan þegar hún fer að setja reglur.

Mér finnst aðalatriðið að dýrunum líði vel.  Ekki hvernig þau eru á litinn eða hvað þau borða.  Enda hafa íslenskir hundar þrifist á afgöngum í gegnum aldirnar og ekki orðið meint af.

Næst eiga líklega börn að borða bara Cheerios og ekkert annað.  Hnuss.  Smile 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brattur

... þessir hundar... "sem hafa þrifist á afgöngum í gegnum aldirnar"... eru þeir ekki allir dauðir? sem sannar að afgangar eru stórhættulegir...

... ég heyrði orðið "vindóttur" um daginn... þá kann ég orðið; bleikur, svartur, hvítur og VINDÓTTUR og litföróttur frá og með núna... af hverju er svona oft "óttur" í endanum á þessum litum... á maður þá frekar að segja svartóttur, bleikóttur og hvítóttur???

Brattur, 27.8.2007 kl. 23:59

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Vindóttur, litföróttur, móálóttur, skjóttur...... þetta er rétt hjá þér Brattur.  Þetta er óttalegt !

Minn hundur hlýtur að vera sérlega vel gerður hundur...... lifir af allskonar matarsull. 

Anna Einarsdóttir, 28.8.2007 kl. 00:04

3 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Já, lifir af en ertu viss um að honum líði vel? Nei, ég ætla ekki að vera leiðinleg, málið er bara að það eru fullt af matartegundum sem hundar þola ekki, eru beinlínis eitraðir. Matur er í góðu lagi, ef passað er upp á að eitra ekki fyrir þeim. Matur sem er heilsuspillandi fyrir hunda er meðal annars: laukur ( í allri sinni mynd, þó það sé bara laukduft, steikur, hrár, venjulegur, blómalaukur, hvítlaukur, allt sem er laukur) eitur fyrir hunda, súkkulaði, vínber, aloe vera, eplakjarnar, elduð kjötbein o.sv. frv...... Ætla ekki að halda fyrirlestur. Svo er of mikið auðmeltanlegt prótein (t.d. fiskur) þekkt fyrir að valda hárlosi.... fyrirlestri lokið. Ef þú lendir einhverntímann í vanda/vafa máttu alveg hafa samband við mig, ég skal lofa að bíta ekki, skamma ekki og dæma ekki, en hjálpa eins vel og ég get....Knús Annars er soðin ýsa, nýjar kartöflur með smjöri ásamt smá þrumara í uppáhaldi hér á þessu heimili, nammi namm......

Bjarndís Helena Mitchell, 28.8.2007 kl. 00:39

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er einn mikill kostur við þurrmatinn, bæði fyrir hunda og ketti en hann er sá að hægðir þeirra verða þurrari, þrifalegri og minna lyktandi. Svipað og með mannfólkið skilst mér sem eru grænmetisætur. Þurfa bara eitt blað af skeinipappír

Gunnar Th. Gunnarsson, 28.8.2007 kl. 03:26

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Athyglisvert Bjarndís mín.  (fallegt nafn).... Hef jú heyrt svipuð rök áður og getur vel staðist að þau séu rétt.  Yfirfærum það á mannfólkið í gríni.  Ég geri þá ráð fyrir að sköllóttir menn hafi ekki þolað fiskinn..... borðað of mikið af honum. 

Gunnar ! Gunnar !  Færð mig sko ekki í umræður um skeinipappírsnotkun fólks.

Anna Einarsdóttir, 28.8.2007 kl. 07:47

6 identicon

Ef þetta er rétt með samlíkinguna við grænmetisætur þá finnst mér hún ekki góð fyrir lit og hár á hundum því mér finnst nú litarhaft og hár á grænmetisætum ekki til að hrópa húrra yfir, frekar svona dauft.

Bryndís (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 08:25

7 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Hef átt hunda og gef þeim afganga, þeir éta það sem þeir vilja en grafa rest til að eiga vara máltíð.

Kannski er ekkert að marka mína hunda því þeir vilja helst ekki í hús koma. Eru ekki með vottun um "ræktun", eru bara alvöru harðjaxlar en blíðir sem lömb.

Skil ekki þessa "ræktun" eða öllu heldur vottuðu úrkynjun. Eitthvað fólk sem vill leika guð og tekur fram fyrir hendurnar á eðlilegri þróun tegundanna, ræktar upp bastarða með alskinns erfðagalla og geðveilur, vottar svo óskapnaðinn sem "hreinræktaðan" bastarð. Þessi dýr myndu aldrei lifa af án aðstoðar mannsins.

Er sennilega bara asni upp í sveit, sem skilur ekki þessa sérmenntuðu hundaræktendur, eða hefur einhver annars skoðað í hverju þeirra sérmenntun felst, varla er venjulegt fólk að skyldleikarækta bastarða.

Og kæra Anna, þú ert meðal fegurstu og eigulegustu kvenna bloggsins.

PS: Hentu þessum bévítans spegli bara

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 28.8.2007 kl. 09:22

8 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Varðandi fæðuval hunda, þá vita þeir best sjálfir hvað má éta, nema búið sé að "rækta" þann eiginleika úr þeim.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 28.8.2007 kl. 09:25

9 Smámynd: Brattur

... já, þú segir það Þorsteinn, hann Kátur minn étur allt nema plast...

Brattur, 28.8.2007 kl. 09:29

10 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Væri nú ekki slæmt Brattur ef hann gæti etið plast og skiti svo innpökkuðu.

Þú yrðir guð meðal ræktenda og uppáhald hundeiganda.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 28.8.2007 kl. 09:42

11 Smámynd: Brattur

... það væri náttúrulega bara snilld... tek það fram að Kátur er svona óæðri hundur, blendingur sem er ljúfari en lamb og blíður sem kanína...

Brattur, 28.8.2007 kl. 10:23

12 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Meðal eigulegustu kvenna !    Það vantar ekki að ég á notalega bloggvini.  Takk Þorsteinn !

Nú þurfum við að þróa viðskiptahugmynd um plastinnpakkaðan úrgang.   

Anna Einarsdóttir, 28.8.2007 kl. 11:37

13 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Orðið ræktendur Anna.

Varstu að meina endur sem rækta .

Og varðandi viðskiptahugmyndina um plastinnpakkaðan úrgang, ég legg til að Brattur fari í vöruþróunar átak með Kát og finni bragðgott plast handa honum.

Köllum við vöruna svo bratta plast, Káta plast eða skitu plast.

Greinilega mikil vinna hér framundan.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 28.8.2007 kl. 12:17

14 Smámynd: Gíslína Erlendsdóttir

Lánsamur hundur að fá kræsingar á borð við soðna ýsu og nýjar kartöflur, einn af mínum uppáhaldsréttum.

Gíslína Erlendsdóttir, 28.8.2007 kl. 12:19

15 identicon

Þú átt litföróttan hest er það ekki? hann er dýrmætur.. hundur væri það ekki. Nú er ég litförótt kvennkyns homo.. er ég gölluð eða er það í lagi? Gæti ég selt úr mér eggin á góðu verði??

Björg F (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 12:43

16 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Rækt-endur eru endur sem eru í rækt...... sbr. garður í rækt.... held ég. 

Björg mín....... nú líst mér ekki á !  Ertu farin að verpa ?  En allavega.... ég veit að þú ert verðmæt..... kjarkmesta konan á Íslandi öllu.

Anna Einarsdóttir, 28.8.2007 kl. 12:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 342764

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband