Tók í nefið.

 

Þið hefðuð átt að sjá upplitið á dýrunum mínum í dag !

Já, ég get bara sýnt ykkur það.... bíðið aðeins.....

.

 ..... segi eins og Sparisjóðurinn, "augnablik"  Pouty

.

Svona var upplitið á þeim.

.

fem

.

kis

.

Mikið ofboðslega eru þetta annars búin að vera skemmtileg jól.  Í gær fór ég að spila bridge á Blönduósi á árlegu móti sem einkennist af léttleik.  Við Borgfirðingar fórum í rútu og á leiðinni heim var mikið fjör og mikið gaman.  Ég drakk koníak og tók í nefið að góðra manna sið.  Geri það einu sinni á ári, bara í þessari ferð.  Síðan er voða gaman að telja hnerrana og þetta árið urðu þeir sjö.  W00t  Í dag er ég svo alveg fjallhress.  Man samt ekki eftir því að hafa séð hresst fjall.  FootinMouth


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég sat einu sinni til borðs með Arngrími í Atlanta og Þóru þáverandi konu hans, við vorum í voða fínni veislu og ég var með uppsett hárið og í síðum kjól og eftir matinn kom koníakið með kaffinu.  Arngrímur bauð okkur Þóru í nefið sem við þáðum báðar oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.  Mikið var gott að vakna ein í rúmi morguninn eftir, svartar rákir lágu í kringum nefið og ég notaði heila klósettrúllu til að moka út svörtum klessunum.  Ég hef ekki tekið í nefið síðan ...

Maddý (IP-tala skráð) 30.12.2007 kl. 17:09

2 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

atjú.......hnerr hnerr.....

Svanhildur Karlsdóttir, 30.12.2007 kl. 19:42

3 identicon

Frábært svona á að gera þetta.....

Fór í svakalega gott partý hér á föstudagskvöld þú hefðir átt að vera þar með, var náttúrulega með þeim síðustu þaðan út en ekki hvað..... sá það síðan með morgninum að aldurinn færist óðara yfir ég tala nú ekki um þegar öllu reykta kjötinu, rækjunum, súkkulaðinu og hvítvíninu voru gerð góð skil í þann mund sem dyrabjallan hringdi og útifyrir stóð ótrúlega hresst fólk.... djöfull..........

Eigið góð áramót mín kæra og munum að kíkja á veðurspána áður en við förum á jökulinn!

H.

Helga Björk Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 30.12.2007 kl. 22:54

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Tek í nefið einu sinni á ári. Hvorki köttur né hundur sem einu sinni var tík fylgjast með. Guði sé lof að þetta gerist heldur ekki í rútu. Altso við erum ekki að tala um sjö hnerra.....onei. Sinnum tíu hið minnsta og ekki kvikyndi sem myndi lifa það af að vera nálægt. Ég meina ef ég ætti hund og tala nú ekki um kisu þyrfti ég að fá mér nýtt sett á hverju ári. Veit þú trúir ekki frekar en nokkur vera hvað hægt er að ........jamm, segjum þetta gott í bili. Gleðilegt ár kæra Anna mín og sjáum án nokkurs tóbaks í rommýinu á næsta ári

Halldór Egill Guðnason, 31.12.2007 kl. 01:01

5 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson


(Búinn að fletta og lesa nokkrar færslur)

Gunnar Helgi Eysteinsson, 31.12.2007 kl. 13:02

6 Smámynd: Kristín Snorradóttir

Það er mjög mikil hraustleiki að taka í nefið, ég varð svo hraust í eitt skipti, en ekki aftur hehehe

Gleðilegt ár.

Kristín Snorradóttir, 31.12.2007 kl. 14:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 342774

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband