Útilega við Selvallavatn.

 

.

  Image0008 

 Á unglingsárunum, frá 13 til 16 ára aldurs,  tókum við Þórdís, vinkona mín, upp á þeim sið að fara einar í útilegu.  Bryndís kom líka einu sinni í þessa útilegu í stað systur sinnar.

 Pabbi þeirra skutlaði okkur með tjald og annan viðlegubúnað upp á Kerlingaskarð, að Selvallavatni þar sem við höfðum fundið okkur uppáhaldsstað við vatnið. 

 Þar tjölduðum við í grænni lautu við fagran foss og dvöldum þar síðan aleinar á fjöllum í 3 daga.

 Við þurftum auðvitað að hafa með okkur prímus og mat og svo var algjört skilyrði að hafa kassettutæki með batteríum með í för, svo við gelgjurnar gætum fílað tónlistina í annars kyrrlátri þögn fjallanna.

 

 

.

Image0009 

 Í einni slíkri ferð kláruðust batteríin.  Ekki gátum við Þórdís unað við það að vera án tónlistar, svo við gengum af stað til byggða, yfir Kerlingaskarð að kvöldi til. 

 Ferðin gekk vel ef frá er talin ógurleg hræðsla okkar vinkvenna við "kerlinguna", grjót eitt sem Kerlingarskarð er kennt við.

 Við sögðum fátt en hugsuðum margt. Hvað ef ? Undecided

 Komumst við þó óskaddaðar til byggða, fengum rafhlöður og var skutlað aftur í tjaldið síðar þetta sama kvöld.

 Þess eru reyndar engin dæmi að Kerlingin hafi nokkurn tíma ráðist á fólk.... a.m.k. ekki í manna minnum.  Blush

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Indriðason

Gamalt, móno segulbandstæki, svona ... sem lá á hliðinni?  Man eftir þeim.  Var þó aldrei sjálfur í svona gistingum, með kasettutækið.  Svo komu steríótækin... og þá fór maður ða heyra hægri-vinstri........

Einar Indriðason, 9.5.2008 kl. 08:42

2 identicon

Já, þetta var skemmtilegt. Og þetta var löngu fyrir tíma grillsins svo það voru með fiskibollur í dós og örugglega saxbauti. Og gos í gleri.

Bryndís (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 10:20

3 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Í dag yrði þetta athæfi kært til barnaverndar nefndar, og líklega send 300 mann hjálparsveit með hunda og þyrlu til leitar.

Ótrúlegt að við skildum lifa æskuna af Anna, alveg ótrúlegt að þjóðin þurrkaðist ekki út vegna áhættuhegðunar.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 9.5.2008 kl. 11:18

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já Bryndís....... við höfðum einn prímus til að hita upp pylsur eða dósamat.  Þvílík dásemdarsæla að ganga út að læk að morgni og tannbursta sig og fá sér svo eitthvað gott að borða.  Dagurinn leið svo í algjöru tímaleysi við gönguferðir, veiði, spjall og leiki.   

Þorsteinn......segðu.      Hugsaðu þér, við höfðum ekki einu sinni síma !  En þegar upp var staðið, gerði þetta okkur ekkert nema gott. 

Anna Einarsdóttir, 9.5.2008 kl. 12:42

5 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 9.5.2008 kl. 13:17

6 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Verð oft alveg kjaftstopp þegar ég heyri í fólkinu sem naut alls þessa frelsis og sjálfstæðis í æsku, gera stórmál úr nánast engu, og svipta börnin sýn þessu frelsi og sjálfstæði sem gerði þessa þjóð svona öfluga, vegna sjálfstæðra einstaklinga í hugsun og hegðun, þessi kvika og drífandi þjóð sem sá engin alvöru ljón í veginum og gerði hlutina.

Nú virðist ekkert gerast vegna boða og banna sem drepa allt frumkvæði niður og taka sjálfsbjargarréttin burt.

Hef samt þá trú að barna börnin hendi þessu burt og heimti frelsið til baka, allavega vona ég það.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 9.5.2008 kl. 13:30

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

....og muniðið - príla í stillönsum utan á byggingum.... sigla á bretti í húsagrunnum fullum af vatni......

Botna ekkert í því hvernig mér tókst að lifa æskuna af, verandi líka bæði heyrnarlaus og sjónlaus

Hrönn Sigurðardóttir, 9.5.2008 kl. 14:31

8 Smámynd: Ragnheiður

Já einmitt, ég þori ekki einusinni að segja mínum krökkum frá uppátækjum bernskunnar hehehe

Ragnheiður , 9.5.2008 kl. 14:54

9 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Bjuggum til báta úr bárujárnplötum og sigldum á Vífilstaðavatni ofl stöðum, sukkum yfirleitt eftir ca 5-10 mín en samt gaman

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 9.5.2008 kl. 18:44

10 identicon

Sæl vinkona. Einu sinni var nú einhverjir bannaðir drykkir með !! Ég held að ég eigi nokkrar hreyfðar myndir úr þeirri ferð. Þá var mikið hlegið og spjallað og sumir duttu ofaní holu.  Fórum við ekki í eitt skiptið á mótorhjóli ? En þetta voru skemmtilegir tímar. Við ættum kannski að skella okkur í eins og eina tjaldferð saman eða á hótel Tímor Sól. Kv. Þórdís

Þórdís (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 22:14

11 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hæ Þórdís.   

Bannaðir drykkir...... suss........ getur það verið ?   

Jú, rétt munað hjá þér.  Pabbi þinn skutlaði útilegudótinu og skildi það eftir en við skutlurnar fórum á mótorhjólinu. 

Endilega,  endilega gerum eitthvað saman í sumar. 

Anna Einarsdóttir, 9.5.2008 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband