Gáta - Hvernig er hryssan á litinn ?

 

Hér sjáið þið hryssu í minni eigu. 

Spurt er;  hvað kallast litur hennar ?

.

Birta 

.

 

BirtaII 

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Litförótt?

Hrönn Sigurðardóttir, 18.1.2009 kl. 22:34

2 identicon

Vindótt

Hafsteinn (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 22:40

3 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Heitir þetta ekki grátt? Hún er allavega ekki fjólugræn.

Ævar Rafn Kjartansson, 18.1.2009 kl. 23:01

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Móálótt?

Hrönn Sigurðardóttir, 18.1.2009 kl. 23:01

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já Hrönn...... hún er móálótt.  Og mér datt reyndar í fyrsta skipti í hug í dag að hún gæti jafnframt verið litförótt.    Þarf að rannsaka það betur.

Faðir hennar er móálóttur, litföróttur.

Hrönn snillingur !!!

Anna Einarsdóttir, 18.1.2009 kl. 23:13

6 Smámynd: Ragnheiður

Hún er allaveganna falleg skinnið

Ragnheiður , 18.1.2009 kl. 23:17

7 Smámynd: Einar Indriðason

Hvers á ég, borgarbarnið, að gjalda, með svona spurningar.  Þetta er bara... ho-ho!

Og ... hvers konar orð er mó-álóttt?

En flott er hún, samt, þó svo hún sé eitthvað ... mó... eitthvað :-)

Einar Indriðason, 18.1.2009 kl. 23:34

8 Smámynd: Aprílrós

svo fallegur hestur. Hvað heitir svo hesturinn ?

Aprílrós, 18.1.2009 kl. 23:57

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Birta. 

Anna Einarsdóttir, 19.1.2009 kl. 00:06

10 identicon

Stórglæsileg :)

Ásdís (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 09:38

11 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég eða hryssan ? 

Anna Einarsdóttir, 19.1.2009 kl. 12:22

12 Smámynd: Einar Indriðason

Já :-)

Einar Indriðason, 19.1.2009 kl. 13:57

13 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Móálótt, var líka kallað mósótt í minni sveit.  Átt þú þessa hryssu?

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 19.1.2009 kl. 15:35

14 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Móálótt er sami litur og mósótt en á milli skilur að ef það er dökk rönd eftir baki hestsins kallast það áll - móálótt.  Sé ekki rönd kallast liturinn mósóttur. 

Já Lilja Guðrún, hún er mín þessi. 

Anna Einarsdóttir, 19.1.2009 kl. 16:10

15 identicon

..og þið eruð báðar stórglæsilegar :)

Ásdís (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 17:43

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Vinkona mín, átti í gamla daga hest sem hún kallaði Mósa! Hann var svona á litinn......

....en takk samt - ég er snillingur ;) 

Hrönn Sigurðardóttir, 19.1.2009 kl. 21:04

17 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nú er ég búin að gúggla mig móða að leita að litföróttu hrossi. Áttu mynd af þannig litu?

Hrönn Sigurðardóttir, 19.1.2009 kl. 21:06

18 Smámynd: kop

Ég veit nú ekkert hvað þið eruð að tala um, en googlaði "litförótt" og fékk helling, m.a. þetta en mér sýnist þessir hestar vera upplitaðir, svona eins og gamall bolur, sem er búið að þvo milljón sinnum.

kop, 20.1.2009 kl. 21:05

19 Smámynd: Árni Gunnarsson

Upplitaður er líklega ekki svo fráleitt þegar talað er um litförótt hross í vetrarbúningi. Vindhárin eru hvít og þegar hrossið gengu úr hárum situr eftir grunnliturinn sem er miklu dekkri en þó yrjóttur.

Birta gæti verið komin út af Ófeigi frá Flugumýri.

Árni Gunnarsson, 20.1.2009 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 342774

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband