Hollráð.

 

Nú þegar þjóðin gengur í gegnum þrengingar er rétt að staldra við og finna sparnaðarleiðir.

Þónokkrir hafa gaman af formúlu.  Í stað þess að greiða áskriftargjald að sportrásum,  má setja mislita sokka í þvottavélina.  Blár er McLaren.  Rauður er Schumacher, grænn er Barrichello og Trulli er mislitur. 

Síðan sest fjölskyldan öll framan við þvottavélina og horfir á sinn sokk.

Gjarnan má vera til upptaka af hljóði formúlunnar.  Uuuunnnnnn uuunnnnnnnnnnn
uuuuuuuunnnnn uuuuuuuuunnnnnnnnnnnn.

Ef fólk vill alveg geggjaða spennu má setja þvottavélina á vindingu.

Að lokum nýtur fjölskyldan þeirrar einstöku ánægju að taka sinn keppanda úr vélinni og hengja hann til þerris.  Hægt er að smella kossi á sinn uppáhalds-sokk en það er meira en býðst við venjulegt sjónvarpsáhorf.

Ekki mæli ég með að kampavíni sé skvett á keppendurna þegar þeir koma úr brautinni.  Það er eiginlega bæði betra og skemmtilegra að drekka það bara.

Njótið formúlunnar um páskana.  Wink

.

WMD25100T 

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Guðnason

Gleðilega páska Anna mín,því miður (þín vegna)þá er ég ekki með þvottavél í stofunni.???HA HA HA HE HE HE.og það er ekki pláss fyrir hæindarstólin í þvottahúsinu.??svo ég ætla bara að borga af rásini(ég fæ styrk frá sjálfstæðisflokknum til að borga þessa rás.HAHAHA) En skemmir ekki vatnshljóði stemminguna hjá þér.??glupp glupp glupp hljóði heyrist oft ekki satt??? og allt fer að hringsnúast fyrir augun á manni ekki satt.??ha ha ha, njóttu nú föstudagssin langa,ég ætla njóta þess hvað veðrið er gott,og skella mér austur að Hrauneyjum.

Jóhannes Guðnason, 10.4.2009 kl. 10:15

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahahah frábær hugmynd!

Hrönn Sigurðardóttir, 10.4.2009 kl. 11:36

3 Smámynd: Ragnheiður

Mér finnst þessi hugmynd brilliant..ég skellihló að þessu.

Þegar ég fékk mér þvottavél með gleri í hurðinni þá hurfu hundarnir. Ég fór að leita að þeim og þá sátu þeir saman aularnir, og voru að horfa á löður.

Þeir horfðu á vélina þvo einusinni en svo hafa þeir engan áhuga á þessu meir

Ragnheiður , 10.4.2009 kl. 12:09

4 Smámynd: arnar valgeirsson

þetta er snilldarhugmynd en ég var að pæla í fótbolta. er það eitthvað með örbylgjuofninn þá eða...

arnar valgeirsson, 10.4.2009 kl. 12:13

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Fótbolti...... ekki málið. 

Þá býrð þú til mörk í örbylgjuofninum og setur nokkrar bollur þar inn sem leikmenn.  Síðan á að setja eitt popp og kveikja á örbylgjunni.  Spennan felst í því hvort poppið (boltinn) hitti í mark þegar það springur. 

Anna Einarsdóttir, 10.4.2009 kl. 15:35

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Prófa uppþvottavélina, að vísu engin mynd en hljóðið er gott. 

Finnur Bárðarson, 10.4.2009 kl. 17:55

7 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

...held bara áfram að vera styrktaraðili.

Ásgeir Kristinn Lárusson, 11.4.2009 kl. 20:23

8 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég hefði aldrei viljað missa af 4-0 í dag.   Ég læt þetta eftir mér á meðan ég hef vinnu, en takk Anna mín, það er gott að vita af þessum möguleika.þegar búið verður að reka mig.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 11.4.2009 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 342766

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband