Ferguson getur tekið gleði sína á ný....

 

Hér í Mávastellinu er runnin upp hátíðarstund því nú skulu nýjar kisur fá ný nöfn. 

Meðal hinna nýfæddu kettlinga er ein læða og hún fær nafnið AlexandraWizard

Síðan eru þrír litlir bangsar........    

 

Lag;  söngur ræningjanna - Kardimommubærinn.

 

Við læðumst hægt og hljótt á tám
í hvert sinn sem við rænum.
Í kvenpersónu nú skal ná
því nóg er starf í bænum.
Og hafa skal hún fæði fínt
og finna allt sem nú er týnt.
Já allir að læra að meta það man
ætla Vidic og Tevez og Ronaldo.

.

Og ljónið skal hún leika við
því ljónið má ei saka.
Og hún skal steikja kindakjöt
og kökur fínar baka.
Og bursta okkar skástu skó
og skaffa í eldinn brenni nóg.
Já, við munum læra að meta það man
allir, Vidic og Tevez og Ronaldo

Whistling

.

kettl 

.


mbl.is Ferguson pirraður yfir tímasetningunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Íris Guðmundsdóttir

eru tad nofnin a teim?

Vidic og Tevez og Ronaldo og Alexandra?


helt soffia sagdi ad einn aetti ad heita Mike aftvi hann vaeri med M a enninu.


knus

Íris Guðmundsdóttir, 2.5.2009 kl. 18:02

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

snilld

Brjánn Guðjónsson, 2.5.2009 kl. 18:08

3 Smámynd: Finnur Bárðarson

Er Alexandra númer 2 frá hægri ? :)

Finnur Bárðarson, 2.5.2009 kl. 18:17

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Mér datt í hug þetta brot úr ljóðinu, Á afmæli kattarins, eftir Jón Helgason

Alla tíð var þó með okkur vel,

einlægt mér reyndist þitt hugarþel,

síðan ég forðum þig blindan bar,

breiddi á þig sæng þegar kaldast var

Finnur Bárðarson, 2.5.2009 kl. 18:20

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Fallegt ljóð Finnur.   

Já Íris......Þau eru frá vinstri;

Alexandra, Tevez, Ronaldo, Vidic.

Alexandra er að sjálfsögðu nefnd í höfuðið á Sir Alex.

Og svo er ég dómarinn. 

Anna Einarsdóttir, 2.5.2009 kl. 19:00

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Og Íris..... þeir eru allir með M á enninu en það stendur fyrir Man. United. 

Anna Einarsdóttir, 2.5.2009 kl. 19:03

7 Smámynd: Íris Guðmundsdóttir

mamma hvad finnst ter um ad ganga i ESB?

Mer finnst island aetti ad ihuga alla adra moguleika..

http://www.youtube.com/watch?v=onx_yd39g4c&eurl=http://sonurhafsins.blog.is/blog/sonur_hafsins/entry/788240/&feature=player_embedded

Íris Guðmundsdóttir, 2.5.2009 kl. 21:12

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Sko..... ég vil ræða við þá og skoða hvað er í pakkanum.  Fyrr get ég ekki tekið afstöðu, með eða á móti ESB. 

Anna Einarsdóttir, 2.5.2009 kl. 21:18

9 Smámynd: Íris Guðmundsdóttir

okay skil.. tala vid tig ta seinna um tetta  tegar teir hafa sagt hvad er i "pakkanum"

Íris Guðmundsdóttir, 2.5.2009 kl. 21:49

10 Smámynd: Ragnheiður

tíhíhíhíhíh...sniðug nöfn hehe

Ragnheiður , 2.5.2009 kl. 22:24

11 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Maður kaupir ekki köttinn í sekknum.  Skoða fyrst.

En Anna?  Giggs er nú sætari en Teves.  Annars finnst mér Terrý lang sætastur.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 3.5.2009 kl. 21:13

12 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Nokkuð ljóst, að öll eru þau samfeðra, Fergusarsynir og dóttir :)

Ásgeir Kristinn Lárusson, 3.5.2009 kl. 23:39

13 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Massey Ferguson, sem tók gleði sína þegar Zetor sat fastur?

Brjánn Guðjónsson, 4.5.2009 kl. 23:20

14 Smámynd: Aprílrós

Oh svo sætir kettlingar , lagnar svo í kettling ;)

Aprílrós, 5.5.2009 kl. 00:35

15 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Var að vonast eftir nafna í Borgarnesinu, en það verður sennilega ekkert í bráð. Eru ekki ellefu í liðinu, auk varamanna, annars? Það verður nóg að gera hjá blessuðum kettinum að koma með það sem uppá vantar í Ferguson klanið.

Halldór Egill Guðnason, 5.5.2009 kl. 11:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 342712

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband