Sagði upp vinnunni í miðri kreppu.

 

Það er ekki hægt að segja að ég fari alltaf troðnar slóðir.

Í vor sagði ég upp vinnunni !

Í miðri kreppu, bara sisvona.  Pouty

Og hætti störfum um síðustu mánaðamót.

Það hefur alltaf verið prinsipp hjá mér að hafa gaman af vinnunni.  Og þegar mér finnst vinnan ekki uppfylla væntingar mínar um lífsfyllingu, þá segi ég upp.  Og það gerði ég. 

Ég hugsaði með mér að ég fyndi mér bara eitthvað annað að gera.  Og ef ég finn ekkert annað, þá bara bý ég mér til vinnu.  Og ef ég bý mér ekki til vinnu, þá bara geri ég ekki neitt.  Og ef ég geri ekki neitt, þá hef ég bara meiri tíma til að blogga.  Happy   Nei, djók !

En mig langaði svolítið mikið að eiga frí í september og ég er komin í frí.  Wink

 

Eftir það vonast ég.... svona í alvöru talað.... til að láta draum minn rætast.  Því í kreppunni felast mörg tækifæri, ykkur að segja.

Draumurinn er sá að ég verði yfirmaður minn.  Reki mitt eigið fyrirtæki.  

Þá get ég sagt við mig;  "Anna, get ég fengið frí í dag" ?  Og þá segi ég bara;  "Nei Anna, þú getur ekki fengið frí í dag"....(rosalega harður yfirmaður)... "en þú mátt eiga frí á sunnudaginn".

.

1262518_177 

.

Og þá get ég bakað pönnukökur á sunnudögum.  Joyful

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég er svo spennt að heyra hvað þú ætlar að gera. það verður eflaust pottþétt og skemmtilegt.

Gangi þér allt í haginn!

Ingibjörg Friðriksdóttir, 8.9.2009 kl. 10:57

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þetta lýst mér vel á. Það skiptir svo sem ekki máli hvað maður gerir en númer eitt er að vera sinn eiginn yfirmaður. Ég hefði umsvifalaust samþykkt frí þennan daginn og svona nokkra daga í iiðbót til öryggis.

Finnur Bárðarson, 8.9.2009 kl. 11:25

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Spennandi - ég er helspennt að heyra hvað þú ætlar að gera!

Gangi þér allt sem bezt

Hrönn Sigurðardóttir, 8.9.2009 kl. 11:57

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

umhugsunarvert - eins og Ingibjörg er ég til í að heyra hvað þú kemur til með að gera, eir einn (par)  "eyru" að fá að fylgjast með framvindu mála

Jón Snæbjörnsson, 8.9.2009 kl. 14:14

5 Smámynd: Aprílrós

Hlakka til að vita hvað þu ert að fara gera

Aprílrós, 8.9.2009 kl. 16:10

6 Smámynd: Ragnheiður

úúú spennandi að sjá hvað þú ferð að gera....

Ragnheiður , 8.9.2009 kl. 22:21

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þið eruð svo spennt að ég er orðin spennt líka. 

Anna Einarsdóttir, 8.9.2009 kl. 23:01

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahah þú ert dásamleg! Ég er að hugsa um að flytja til þín og hjálpa þér

Hrönn Sigurðardóttir, 9.9.2009 kl. 14:48

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hrönn.  Þú ert ráðin sem einkaritari minn.    Situr á hnjánum á mér og svona.

Anna Einarsdóttir, 9.9.2009 kl. 16:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 342763

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband