Örþrifaráð gerenda hrunsins.

 

Mér virðist sem farið sé að hitna undir þeim er áttu hvað mesta sök á efnahagshruni þjóðarinnar enda einungis mánuður þar til skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis á að birtast.

Eins og Björn Valur Gíslason bendir á, á Vísi.is eru bein og sterk tengsl á milli Sjálfstæðisflokksins og Björgólfsfeðganna:  

„Ég lít á þetta sem pólitíska fléttu af hálfu stjórnarandstæðinga sem hafa greinilega góða tengingu inn í þessa lögfræðistofu og eru að reyna að róta upp í málinu og helst fella og knésetja ríkisstjórnina," segir Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og varaformaður fjárlaganefndar, um bréf bresku lögmannsstofunnar Mishcon de Reya sem barst í gær.

Björn Valur fullyrðir að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi verið í sambandi við íslenskan fulltrúa lögmannsstofunnar hér á landi. Fram hafi komið í gögnum stofunnar að sá maður sé Gunnlaugur Erlendsson. „Hann var lögmaður Novators í London sem var í eigu Björgólfsfeðga sem áttu Landsbankann og gerðu út Icesave reikninganna. Það er ekki mjög traustvekjandi."

.

c_documents_and_settings_sigurjon_my_documents_my_pictures_davi_geir_og_bjorgolfur

.


Við, réttsýnir íslendingar, megum ekki láta blekkjast af pólitísku upphlaupi stjórnarandstöðunnar.  Komist Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn, þeir sem "seldu" bankana til þáverandi og núverandi vina sinna, til valda núna, þá þykir mér sýnt að rannsókn á verkum þeirra verði aldrei birt.   Og þá munu þeir væntanlega hylma yfir með vinum sínum, útrásarvíkingunum.

.

Það má ekki gerast.  Við verðum að uppræta spillinguna.  Annars er allt unnið fyrir gýg.

.

 


mbl.is Vilja sjá tölvupóstana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Þetta er nú bara fyndið að lesa, sérstaklega þar sem spunakringla ríkisstjórnarinnar býr til fréttir oft á tíðum fyrir 365 miðla.

Carl Jóhann Granz, 30.12.2009 kl. 13:06

2 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Síðan er það nú hreint út sagt fáránlegt að menn skuli reyna að halda því fram að Sjálfstæðis og Framsóknarmenn geti með einhverju móti haft áhrif á, falið eða stoppað þá nauðsynlegu skýrslu sem verið er að vinna að.

Ansi hræddur um að ekki nokkur maður eða flokkur muni reyna nokkuð slíkt þar sem þá fyrst mun þjóðin tapa sér gagnvart Alþingi.

Carl Jóhann Granz, 30.12.2009 kl. 13:08

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Það er helv. gott ef ég er orðin fyndin án þess að reyna nokkuð til þess. 

Anna Einarsdóttir, 30.12.2009 kl. 13:23

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jú þeir geta og hafa örugglega eitthvað að fela Sjálfstæðismenn og Framsókn.  Málið er að þeir hafa ALLIR eitthvað að fela fjórflokkurinn eins og hann leggur sig, rúin trausti þjóðarinnar.  Hér þarf meira til að moka út.  Burt með alla stjórnsýsluna og byrjum frá grunni.  Þetta er allt jafn spillt og rotið því miður.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.12.2009 kl. 13:31

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Það velkist varla fyrir nokkrum manni, eða konu, hverjir eru sekir um afglöp, spillingu, einkavinavæðingu eða annan ósóma sem þjóðin þarf nú að súpa seyðið af. Við vitum ÖLL hverjir hrundu skriðunni af stað og það er með engu móti hægt að afsaka þá hegðun! Ég, sjálfstæðismaðurinn, geri mér fullkomlega grein fyrir því. Þessir andskotar, sem tilheyra flokknum sem ég aðhyllist, skitu upp á bak, ældu gullfroðu yfir landslýð, gáfu, stálu og hagræddu sér í hag og ætla nú að höfða til einhverskonar þjóðrækni, til að koma höggi á núverandi stjórn fyrir afglöp sín. Stjórn sem tók við skelfilegu búi, en hefur tekist á einhvern óskiljanlegan hátt að glopra niður meðbyr sínum, með flokksalræði, ógegnsæi og að því er virðist, algerri stólpípu á hugsjónir og loforð, sem þau jú komust á þing fyrir. Má ekki segja að það sé um það bil 1:1 í skömminni, svo við vippum okkur nú í boltann? Makalaus andskoti að fylgjast með beinni útsendingu af þinginu í kvöld. Lúbarðir, heilaþvegnir, óbreyttir þingmenn stjórnarinnar geltu eins og fyrir þá var lagt af forustunni og gerðu sjálfa sig varla meira virði en skít undir skó. Annars allt gott að frétta úr Mosó og bestu kveðjur í Borgarnes. 

Halldór Egill Guðnason, 31.12.2009 kl. 00:32

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég er algjörlega sammála þér Halldór....... að setningunni "Stjórn sem tók við skelfilegu búi"

Staðan í leiknum er 5 : 0 fyrir stjórnarliða rétt eins og fyrir Man. United fyrr í kvöld. 

En skemmum ekki góðan vinskap Halldór með pólitísku hjali sem skilar engu öðru en ergelsi sem síðan skilar bara pirringi og leiðindum.

Góðar kveðjur úr Borgarnesinu og kærar þakkir fyrir frumlegt og skemmtilegt jólakort.     

Anna Einarsdóttir, 31.12.2009 kl. 00:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 342764

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband