Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Gleðilegt ár 2008 !

 

Flugeldar_IMG_4702

 

Kæru vinir !

Takk fyrir frábær samskipti hér á blogginu.

Þið eruð stórskemmtileg.  Smile

Ársins 2007 mun ég minnast með gleði og þakklæti fyrir svo margt.

Árið 2007 var líka ár sorgar.  Gillí frænka mín kvaddi þennan heim, aðeins 46 ára gömul.

Ég sakna hennar.

Ragnheiður, góð bloggvinkona mín,  fær stórt knús frá mér í dag.  Heart

.

Bestu óskir til ykkar allra um gæfu og góða heilsu á árinu 2008.  Wink

 

 

 


Tók í nefið.

 

Þið hefðuð átt að sjá upplitið á dýrunum mínum í dag !

Já, ég get bara sýnt ykkur það.... bíðið aðeins.....

.

 ..... segi eins og Sparisjóðurinn, "augnablik"  Pouty

.

Svona var upplitið á þeim.

.

fem

.

kis

.

Mikið ofboðslega eru þetta annars búin að vera skemmtileg jól.  Í gær fór ég að spila bridge á Blönduósi á árlegu móti sem einkennist af léttleik.  Við Borgfirðingar fórum í rútu og á leiðinni heim var mikið fjör og mikið gaman.  Ég drakk koníak og tók í nefið að góðra manna sið.  Geri það einu sinni á ári, bara í þessari ferð.  Síðan er voða gaman að telja hnerrana og þetta árið urðu þeir sjö.  W00t  Í dag er ég svo alveg fjallhress.  Man samt ekki eftir því að hafa séð hresst fjall.  FootinMouth


Leyndarmálið afhjúpað með stæl.

.

 

Þegar bróðir minn og ég vorum um 6-7 ára aldurinn,  var rökhugsun að byrja að myndast í kollinum á okkur.  Á þeim tíma sváfum við í sama rúmi, hálftvíbreiðu.  Herbergið okkar var á annarri hæð og ekkert opnanlegt fag á glugganum.

Eitt kvöldið, rétt fyrir jól, þegar við vorum komin í rúmið, fórum við að velta því fyrir okkur hvernig í ósköpunum jólasveinninn færi að því að gefa okkur í skóinn.  Við fundum það út að jafnvel þótt hann hefði stiga, kæmist hann ekki inn um glugga sem ekki var hægt að opna.

Við ákváðum að upplýsa málið í eitt skipti fyrir öll.  Bróðir minn sótti vasaljós og ég man vel spenninginn undir sænginni með vasaljósið, meðan við biðum eftir jólasveininum. 

Við biðum lengi lengi.  Loks heyrðum við fótatak í stiganum.  Hjartað fór að hamast og spenningurinn varð nær óbærilegur.  Þegar við heyrðum að sveinki var kominn inn í herbergið okkar, sviftum við af okkur sænginni og lýstum með vasaljósinu beint í andlitið.............

......... á mömmu.  Blush


Gormur fæddist á jóladag.

.

Jóladagur rann upp með jólasnjó og hátíðablæ....... 

.

jólatré

.

Dýr og menn fóru út og léku sér saman.....hundurinn hérna.....

.

hundur

.

Þetta er hún kisa....... nýfarin.....

.

kisi

.

Snjókarl fæðist........

.

snjókarl

.

Hér er búið að nefna hann... GORMUR...... og hann unir sér vel með vinkonum sínum.

.

félagar

.


Úúúúúúú.... ég er svo spennt :-)

.

Jólasveinarnir eru búnir að skreyta í Borgarfirði.  Þeir leggja bómull yfir öll fjöllin.  Joyful

.

bómull 

.

slæða

.


Gleðileg jól !

 

Í hjarta mínu óska þess
að allir njóti jólanna.
Verið kát og voða hress
með vinsemd, ykkar Anna.

.

ChristmasLightsUnderSnow10-23

.

Kæru bloggvinir og aðrir vinir, gömlu sveitungar og nærsveitungar !

Fyrir hönd Sparisjóðs grínista og nágrennis, óska ég ykkur alls hins besta,

á morgun, hinn og á jólunum, á næsta ári og árunum þar á eftir.

Þessi ósk er verðtryggð, þannig að hún vex og vex... eins og magi um jólin.

Sérstakar jóla-jólakveðjur fá þeir bloggvinir sem ég kynntist persónulega á árinu.

Þau eiga það sameiginlegt að vera mikið öðlingsfólk.  Þau eru:

Ragnheiður, Brattur, Halldór, Björg, Ægir, Edda, Kristjana, Ingibjörg og Arnfinnur.

Helena !  Þig ætla ég að hitta á árinu 2008.  Wink

.

Ef ég ætti eina jólaósk, myndi ég óska þess að Þórdís Tinna læknaðist.  Heart

.

christmas-wallpaper-christmas-stockings-photos_894903363

.

 

Mikið bull hefur runnið á bloggið á árinu....

Stefnt er að því að það verði enn meira á næsta ári !

Oh boy.  Grin

 

 


Áramót eftir 11 daga !

.

Hér á bæ eru menn ekki aðeins komnir í jólaskap, heldur í áramótagírinn líka.

Mamma gamla var dyravörður hjá þessum sömu gaurum í fyrra... og dugði ein og sér til að halda uppi lögum og reglu.  Mætti halda að hún væri vöðvabúnt !  Nei, segi svona.  Grin   

Í ár ætlar hún hins vegar að láta fara vel um sig í sófanum heima um áramótin. 

En hún er stolt af afkvæminu.  Wizard

img_1602_3_389071

.


Sól í stormi.

.

Á föstudaginn var, geisaði hér stormur og þá tók ég þessar myndir, allar á sömu mínútunni.

Það er stundum með ólíkindum hvað himininn getur verið skrautlegur.

.

sól í stormi II 

.

sól í stormi III 

.

sól í stormi

.

sól í stormi I

.


Toppiði þetta !

 

Þá eru verðlaunin komin í hús.  Cool

Nú misstuð þið af miklu !  Ekki bara, fékk ég bikar til eignar, fyrir að vinna mína eigin keppni, heldur fékk ég líka farandbikar sem er auðvitað nauðsynlegur til þess að hafa með í ferðalög, útilegur og svoleiðis.

Tveir bikarar, minna mátti það nú ekki vera enda er ég sannur Íslendingur og þarf alltaf að toppa sjálfa mig, nágrannana, fyrri árs gjörðir og hvaðeina. 

Til hamingju Ísland.... hér kem sko ég.  Whistling   (var að semja þetta)  Wink

.

verðlaun


Hundraðþúsund.

 

O.  Klaufi gat ég verið.  Gestur númer 100.000 átti að láta vita af sér og svo var allt í einu kominn 100.001 gestur. 

Ef einhver kannast við að hafa verið hundraðþúsundkallinn - eða hundraðþúsundkellingin, þá má sá/sú hinn/hin.... ohhh, þetta er flókið.... sami/sama, láta vita af sér.

Ef enginn gefur sig fram, má sá sem verður númer 100.100 hnippa í mig.

Ég veit ekki hvað gerist með þann heppna/óheppna..... er að hugsa.... Woundering


Næsta síða »

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 342714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband