Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

FM 101,3 Óðal

 

Vantar einhvern að komast í jólaskap ?

Grunnskólakrakkarnir í Borgarnesi senda út jólaútvarp í eina viku á ári...... þessa viku.

Hægt er að komast inn á útsendingu hér;  http://odal.borgarbyggd.is/

Þar eru spiluð jólalög, tekin viðtöl við fólk og meira að segja sagðar fréttir og veðurfréttir.  Smile

Í augnablikinu eru þau með beina útsendingu frá leik Skallagríms og Vals í körfuknattleik.

.

jolautvarp 

.

Veðrið er að versna.  45 metrar undir Hafnarfjalli.

Endalaust gott kúr-veður.  Happy 

Ég ætla að chilla í kvöld.  Whistling

.


Þessi er heillandi.

 

Uppákoma í útvarpi.

 

Á Bylgjunni í gær var þáttur, þar sem fólki gafst kostur á að hringja inn, spjalla og biðja um óskalög.

Inn hringdi maður í fínu skapi.  Hann sagði að þau hjón væru bara tvö heima, að skreyta fyrir jólin með kertaljós og kósý.  Heart

.

couple 

.

Eftir nokkurt spjall spurði þáttastjórnandinn hvaða lag mætti bjóða honum að hlusta á ?

Maðurinn valdi jólalag en þá heyrðist hvell rödd konunnar fyrir aftan hann;

Nei !  Ég vil ekki þetta lag.  GetLost   Það er ömurlegt.  W00t

Maðurinn varð víst hálfvandræðalegur því þessi uppákoma stemmdi illa við lýsingu hans á notalegheitunum heima.

Hann sagði;  "Þú sérð hver ræður á heimilinu".  Blush

 

 


Soðið rauðkál með eplum.

 

Þar sem ég veit að lesendahópur minn samanstendur af hagsýnum húsforeldrum,  dembi ég á ykkur einni gómsætri uppskrift;  Wink

salat_raudkal_eplum 

.

350 g niðursneitt rauðkál (1/2 meðalstór haus)
1 epli, grænt
1 rauðlaukur
2 msk. olía
100 ml hindberjasulta (eða önnur sulta)
100 ml epla- eða rauðvínsedik
2 msk púðursykur (meira eftir smekk)
1/4 tsk. kanell (má sleppa)
pipar
salt
.

Soðið rauðkál með eplum

Rauðkálið skorið í mjóar ræmur (ef ekki er notað tilbúið hátíðarauðkál úr poka). Eplið flysjað, kjarnhreinsað og skorið í litla bita. Laukurinn saxaður smátt. Olían hituð í potti og laukurinn látinn krauma í henni í nokkrar mínútur við fremur vægan hita. Þá er rauðkáli og epli bætt út í, hrært vel og látið krauma smástund. Sultu, ediki, púðursykri, kanel, pipar og salti hrært saman við og látið malla við hægan hita undir loki í um 45 mínútur. Hrært öðru hverju og svolitlu vatni bætt við ef þarf. Smakkað og e.t.v. bragðbætt með sykri eða ediki eftir smekk.
.
.
Þess má geta að rauðkál verður ávöxtur vikunnar í Samkaupsverslunum n.k. fimmtudag og fram yfir helgi.  Sparið 50%  og eyðið gróðanum svo í vitleysu.  Hvað er skemmtilegra en að græða í kreppu ?  Whistling

Ferlega góð limra :-)

 

.

Þegar Steinn var að yrkja til Stínu
öll stefin úr hjarta sínu,
    þá varð honum það
    til þrautar að
hann þurfti að minnast á svo miklu
fleira í lokin en nokkurt viðlit var að segja í síðustu línu.

Höfundur; Hrólfur Sveinsson. 

.

love-is-in-the-air 

.


Allt eitt allsherjar plott.

 

Þegar ég var að komast til meðvitundar í morgun, eftir nætursvefninn, var mín fyrsta hugsun sú að stjórnmálamennirnir væru heldur betur búnir að plata okkur.

Þetta er sko allt eitt plott.  Þeir hafa málað upp stöðu efnahagsmála á Íslandi miklu svartari en hún raunverulega er.  Norski ráðgjafinn ráðlagði þeim að gera það.  Síðan, smátt og smátt, kemur í ljós að staðan er skárri þarna og betri hér.  Verulega slæm staða samt en þar sem hún fer örlítið batnandi, sbr. styrkingu krónunnar nú,  þá láta kjósendur gabbast til að trúa því að stjórnmálamennirnir hafi spilað svona vel úr spilunum.  Og þá halda þeir Geir og Dabbi sínum elskuðu stólum og við erum áfram sauðir.

.

fé 

.

Hahhh, ég sá í gegnum plottið.  Cool

.

Já sæll,  eigum við að ræða það eitthvað frekar ?


Steinríkur er smáhneta.

 

Hér áður fyrr var ég skrifstofublók.  Sat á skrifstofustólnum mínum allan daginn og gerði ekki handtak í orðsins fyllstu merkingu.  Pikkaði bara inn og hugsaði dálítið.

Síðan venti ég mínu kvæði í kross - snarsneri mínu ljóði við - og vann mig niður í verslunarstarf.  Ykkur að segja er miklu auðveldara að vinna sig niður en að vinna sig upp.  Wink  Nú sé ég um að fylla á grænmetistorg með tilheyrandi burði og göngu.  Það eru ekki allir sem fá greitt fyrir að stunda líkamsrækt.  Joyful

Í morgun fór ég að spá í hvað ég lyfti mörgum kílóum á viku.  Daglega tek ég af stóru bretti af grænmeti og ávöxtum,  fæ nokkur hundruð kíló af kartöflum og rófum vikulega og síðan ber ég allt dótaríið fram í torg og fylli þar á.  Lauslega áætlað reiknast mér til að ég lyfti um 3 tonnum vikulega.  Cool

Ég er næstum því satt að segja farin að ganga með hendurnar hálfan meter frá skrokk vegna umfangs allra nýju vöðvana.  Þarf meira að segja að skáskjóta mér inn um dyr.  Blush

.

kin-0184 

.        Steinríkur er "pínöts" við hliðina á mér.

 

 

 

 

 

 

 

Nú, þar sem ég vil ekkert vera að misnota þessa síðu og grobba mig, ætla ég að sleppa því að minnast á alla hlutina sem ég hef brotið og bramlað vegna minna óbeisluðu krafta undanfarið og láta hér staðar numið með einu frumsömdu kvæði í kross;

.

.

Þrjú tonn af grænmeti,

Anna fær nóg

aaaaf kálhausum

já heilan skóg.   Whistling

.


Davíðsháttur.

 

Friðleifur múrari vann sem múrari.

Dag einn fékk hann þau skilaboð að starfskrafta hans væri ekki lengur óskað hjá Múrmúr ehf.

Friðleifur sagðist ekki hlusta á þetta.  Hann ætlaði sér að starfa sem múrari í nokkur ár í viðbót.

Friðleifur sagði að ef þeir myndu samt sem áður þvinga hann til að hætta, þá horfði málið allt öðruvísi við.  "Þá mun ég snúa mér að stjórnmálum" sagði hann kotroskinn.

.

002_happy_guy_walking 

.

----------------

.

Ég hvet alla,  sem lenda í þeirri stöðu að vera sagt upp vinnu, til að svara með Davíðshætti;

"Heyrðu nei, ég ætla að vinna þessa vinnu í nokkur ár í viðbót" !   Cool


Dýr-legur brandari.

 

Þrjár kisur sátu saman á vegg.

Ein þeirra sagði brandara;

.

saferedirectaspx 

.

"Hvað sagði annar hundurinn við hinn þegar þeir gengu framhjá stöðumæli ?

Hvur andskotinn !  Þeir eru farnir að rukka inn á salernið hérna".

.

Og svo mjálmuðu kisurnar úr hlátri.   LoL


« Fyrri síða

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband