Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Hrafnkatla Himinbjörg Skítalabbi Gustavsberg.

 

Mikið hefur verið skrifað um Hrafnkötlu Himinbjörgu, margar myndir birtar og má ætla að hún sé hvers manns hugljúfi og ljómi allra kettlinga.  Í það minnsta fékk ég beiðni um eigendaskipti á henni í dag.  Frænkur mínar tvær vildu gjarnan eignast þetta krúttilega kvikindi.  Ég sagði bara;  "Já, fínt, þið megið bara eiga dýrið"  Grin

.

064 

.

Það kom á þær yfir svari mínu... þeim fannst ég full fljót að afhenda kisu, svo þær spurðu nánar út í dýrið.  Já, sagði ég, hún er óskaplega þrifin greyið.  Fer alltaf í kassann sinn og gerir þar stykkin sín.  Mér fannst hún óttalegt krútt meðan hún var með harðlífi.  Eitthvað fór móðurmjólkurleysið í magann á henni svo nú er hún með skitu.  Það væri bara fínt - hún fer í kassann sinn og svoleiðis - eeeeeeen einhvern veginn tekst Hrafnkötlu alltaf að stíga ofan í niðurganginn og svo arkar hún niður ganginn, létt á fæti, eins og gengur, eins og gengur.  *DÆS* 

Skítalabbi semsagt.  GetLost

Þegar illa tekst til, kemur hún með saurugan fót upp í rúm til mín og þegar enn verr árar, stígur hún á hárið á mér, meðan ég sef.  Hvað getur maður sagt ?   SHIT ! Pinch

Við fjölskyldan erum nú búin að vera í skítverkum alla helgina og Hrafnkatla fer í bað þrisvar á dag.

Langar einhvern í hana ?   


Næringafræði.

 

Ást er kavíar og kampavín, brúðkaupskaka, jarðaber og rjómi.

.

elephant_love

.

Vinátta er nýbakað brauð, nýstrokkað smjör, sveitaostur og te fyrir tvo.

.

image

.

Best er að hafa kynnst hvorutveggja.

En vináttan fer betur með meltinguna. 


Afleiðingar þess að ég var bæði karlinn og konan á heimilinu um tíma.

 

Ég er búin að gera 5 skattaskýrslur í dag.  Happy  Bara ein skýrsla eftir. 

Svo komst ég að því að betri helmingurinn er betri en allt.  Hann þreif og skúraði meðan ég baukaði með pappírana.  Joyful   Það er baaaara frábært að verkin vinni sig svona sjálf meðan maður er að gera annað.   Brattur !  *SMJÚTS*  Kissing

Á eftir er svo fótbolti;  Man. United - Aston Villa.  Þá sest ég í stofu, opna einn bjór og horfi á Ronaldo, Rooney og Tevesz, vinna leikinn fyrir okkur.   Ég held með Man. United.  Wink

.

matt7

.

Dóttir mín sá mig um daginn, þar sem ég sat svona ein, eitt kvöldið og horfði á Man. United leik og þá sagði hún; 

"Mamma, þú ert eins og kall".    W00t

Já, á okkar heimili er fullkomið jafnrétti, án þess að það hafi nokkurn tíma verið rætt sérstaklega.

Ef ég bulla, þá er ég að fótboltabulla.  Whistling


Fjölnota dýr.

.

Fjölnota og fagur er
fyndið þykir þetta trýn
Kanína á mynd er hér
á morgun kannski svín ?
 

.

001


Ofhugsun.

.

Ég fór að hugsa.  FootinMouth

Sumir hafa fólk alveg í vasanum.

Hvar fást nógu stórir vasar ?

Ef einhver hefði mig í vasanum myndi ég reyna að hafa það reglulega gott.  Smile

Það eru til vasadiskó, vasaklútar, vasabækur og vaselín....

.

api.vasi

.

Bara skrambans vesen að það skuli vera til vasaþjófar.  GetLost    

Ætti ég nokkuð að hugsa svona mikið ?  Blush

---------------------------------------------------------

 

Eða eins og ungverskt máltæki segir;  "Ég hef ekki hugmynd en segi það satt".


Bókmenntaperla eða ?

 

Vegna tveggja áskorana var sú ákvörðun tekin - skynsamleg eða ekki - að birta valinn kafla úr Slummu, slepju, slef- og klísturbókinni.

Bókin hefst á þessum orðum: 

"Manneskjan er hol,  Já við erum í rauninni bara rör, opið í báða enda". 

Hvað segið þið hin rörin um þetta ?  Pouty

.

Í miðju bókarinnar eru leiðbeiningar sem gætu nýst vel;

.

001

.

............ og uppskrift !!!  Happy

.

002

.

Þetta blogg er að verða eins og besti fræðsluvefur.  Whistling


Bókmenntagagnrýni.

.

006 

.

Þessa bók las ég um páskana.

Forsíðan ein og sér er allrar athygli verð.  Það er hægt að toga tunguna út og suður og svo skreppur hún sjálf til baka eftir smástund.  Dálítið slepjulegt - en þetta er jú Slummu, slepju, slef- og klísturbókin.

Innihald bókarinnar er svo allt önnur saga og ekki fyrir viðkvæma.

Ég ætla að hugsa málið, hvort ég birti miðju bókarinnar á morgun en það skal tekið fram að ekki er æskilegt að lesa hana rétt fyrir eða eftir máltíð.

Maður missir lystina !  Crying


Aðlögun dýranna.

 

Aðlögun dýranna hefur gengið vonum framar.  Í gær var Depill hundfúll eins og sjá má á þessari mynd;

019

 

.

Hann hélt sig í ákveðinni fjarlægð en kíkti þó með öðru auganu á litla skrímslið.

049

 

.

Hundurinn hins vegar tók Kötlu litlu afar vel.  Fín saman ?

037

 

.

Álappalegur svipur þarna;

022

 

.

Stóri kisi er í eðli sínu góður og nennir ekki að vera í fýlu lengur.  Hann tók því Kötlu í sátt, rétt áðan;

070

 

.

Hrafnkatla Himinbjörg er bara kát með nýju fjölskylduna sína og vill helst humarsúpu í öll mál.

062


Hvert örstutt spor.

.

Ein mesta gæfa hvers manns í lífinu er að hafa gott fólk í kringum sig.


Vöggukvæði Halldórs Laxness er að mínu mati óendanlega fallegt ljóð.


Ég tileinka það öllu góðu fólki með fallega sál - en sérstaklega þó góðhjörtuðum manni sem gaf mér góðar ráðleggingar um páskana.  Heart 

.

Vöggukvæði.

Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér,
hvert andartak er tafðir þú hjá mér
var sólskinsstund og sæludraumur hár,
minn sáttmáli við guð um þúsund ár.

Hvað jafnast á við andardráttinn þinn?
Hve öll sú gleði er fyrr naut hugur minn
er orðin hljómlaus utangátta og tóm
hjá undrinu að heyra þennan róm, 
 

hjá undri því, að líta lítinn fót
í litlum skóm, og vita að heimsins grjót
svo hart og sárt er honum fjarri enn,
og heimsins ráð sem brugga vondir menn,
 
 

já vita eitthvað anda hér á jörð
er ofar standi minni þakkargjörð
í stundareilífð eina sumarnótt.
Ó alheimsljós, ó mynd sem hverfur skjótt.

Halldór Laxness, 1902-1998


Páskaunginn - myndasyrpa.

.

Hún Hrafnkatla Himinbjörg (kölluð Katla) var heldur aum þegar hún kom í gær.

.

012

Maaaaaaammmmmmmma !

.

------------------------------------

En síðan tók hún sig saman í andlitinu.  Hún vakti mig klukkan 7.30 og leyfði mér ekki að fara að sofa aftur, fyrr en hún hafði skriðið uppí og komið sér vel fyrir.  Eftir að hafa sofið hjá nýju mömmu, tók hún gleði sína á ný, eins og sjá má;

.

001

.

007

.

008

.

Depill, kötturinn sem sýndi leikfimiæfingar hér fyrir nokkrum bloggum síðan, er ekki kátur.  Honum finnst að þetta skrímsli ógni tilveru sinni.  W00t

Femína, hundurinn á heimilinu, heldur hins vegar að hún eigi þetta afkvæmi og kemur fram eins og hin besta mamma.  Heart 

Anna, kéllingin á heimilinu, biðst afsökunar á að hafa ekki tekið bloggfríið sem hún lofaði.  Blush


Næsta síða »

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 342751

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband