Færsluflokkur: Lífstíll

Hrukkukremið.

 

Fenguð þið sumargjöf ?

Ég fékk !

Á maður að gleðjast eða gráta þegar eiginmaðurinn gefur manni hrukkukrem ?  Pouty

Jæja, ég viðurkenni alveg að þegar Nivea anti wrinkle var auglýst í sjónvarpinu, varð mér á orði að mig vantaði þannig.  En ég var auðvitað að djóka.  LoL

.

Q10_dcare_FB_big_DP

.

Ég les alltaf leiðbeiningar á öllu núorðið.  Það kemur svosem ekki til af góðu.  Fyrir nokkrum árum keypti ég mér brúnkuklúta.  Eitt kvöldið var ég á leið í gleðskap og tók því einn klútinn og renndi honum yfir andlitið.  Ekkert gerðist.  Ég varð mjög hissa og renndi honum aftur yfir andlitið og varð sífellt meira hissa á því að nákvæmlega ekkert gerðist.  Gasp  Hafði ég keypt eitthvert ónýtt drasl ?  Ég fór að lesa:  "berist á húð - virkar eftir 4 klukkutíma" !

Það er skemmst frá því að segja að kjellan fór hvít í partý en kom dökkbrún heim.  Cool

.

En aftur að núinu.

Ég er búin að lesa leiðbeiningarnar á hrukkukreminu og mér líkar ekki allskostar allt sem þar stendur:

Rekommenderad åldersgrupp 33-47 år.

Hvurslags asnaskapur er það ? 

Mér líður eins og ég sé að verða útrunnin.  Woundering

.

wrinkle_1745

.

Orð dagsins:

Alls ekki nota hrukkukrem þegar þú ert orðin hrukkótt/ur.

 


Lífsskoðun.

 

Í útvarpsmessunni í morgun flutti presturinn, séra Tómas Sveinsson, þá albestu ræðu sem ég hef heyrt í messu.

Hann kom inn á þá staðreynd að menn hafa villst ansi langt frá þeim góðu gildum sem trúin boðar okkur, s.s. heiðarleika, manngæsku, samhyggð og kærleika.

Einhvers staðar á leiðinni fór sumum að þykja í lagi að ástunda valdníðslu, græðgi og spillingu.  Það varð lífsskoðun margra að verða sem ríkastir og að sölsa undir sig sem mestum völdum, sama hvaða afleiðingar það hefði fyrir náungann. 

Það hefur hreinlega verið stefna sumra flokka að sölsa undir sig völdum og auði,  því það sé merki um "mannkosti", nái einstaklingar árangri á þeim grunni.

Þeim, sem stunduðu þetta af hvað mestu kappi, var hampað í blöðum landsins eins og þeir væru sérstakir snillingar.

Sr. Tómas sagði að orðin "góði fjárhirðirinn" hefðu alltaf haft jákvæða merkingu.  Góði fjárhirðirinn lætur sig varða velferð alls fjár og sinnir jafnt sínum eigin skepnum sem og annarra.

Í bönkunum var orðið "féhirðir" búið til og upphaflega varð sá einn féhirðir sem hafði til að bera dyggðir eins og heiðarleika og vammleysi.

Í dag hefur orðið fengið á sig ljótan blæ.  Í dag þýðir féhirðir: "sá sem hirðir fé úr bankanum".

.

Það er í rauninni ekki flókið að mynda sér lífsskoðun sem hald er í, til langframa - fyrir alla.

Þú þarft bara að fara í grundvallaratriðum eftir boðorðunum tíu.

.

happy-feet 

Og ef það vefst fyrir einhverjum, þá dugir að fara eftir þessu:

Gerðu við náungann eins og þú vilt að náunginn gjöri við þig. 

Stuðlaðu að hamingju annarra og þú munt verða hamingjusamur.

.

 


Vaskur með vaski.

 

Vaskurinn hjá mér er bilaður.  Hann lekur.

.

ImageVaultHandler 

.

Í sjálfu sér væri það ekki vandamál nema fyrir það að ef ég kaupi mér vask þarf ég að kaupa vask með vaski.

Og ég þarf bara einn !

.

Nú beini ég spurningu til fróðra manna;  Hvernig er hægt að kaupa vask án annars vasks ?

Kannski ég stofni bara ehf.   FootinMouth    Þá fæ ég vaskinn endurgreiddan.  Happy


Aldur er afstæður.

 

Ég man ekki alltaf hvað ég er gömul.

Veit þó alltaf fyrir víst að ég er annaðhvort 36 eða 37...... nú eða 45 eða 46 ára.

Mér finnst það bara ekki skipta neinu máli.

Það sem skiptir máli er að vera ungur í anda.

Í framhaldi af þessum pælingum fór ég að hugsa um hversu mikil Guðsgjöf það er að sjón versnar hjá gömlu fólki.  FootinMouth  Ungar og fallegar stúlkur eldast með tímanum og verða hrukkóttar og ljótar....... en það gerir ekkert til því karlinn þeirra verður þá farinn að sjá svo illa !  Hann trúir því að stúlkan sé sú fallegasta í heimi, jafnvel þótt hún hafi tvöhundruð hrukkur á enninu.  Hann bara sér það ekki og treystir á minni sitt í þeim efnum... sem hugsanlega er farið að bresta líka og ef stálheppnin er með, man hann konu sína enn fallegri en hún nokkru sinni var.  Happy

.

old_hippie_very_old_hippies_1 

.

Já, það er hægt að hlakka til þegar maki manns verður gamall. 

 


Ungfrú Hnappadalssýsla.

 

Fyrsta hugsun mín á morgnana er alltaf ein merkilegasta hugsun dagsins hjá mér.  Helgast það m.a. af því að aðrar hugsanir dagsins eru ekkert sérlega merkilegar.

Í gærmorgun var mín fyrsta hugsun:  Pálmi Har. greiðir Jóni Ásgeiri 1 milljarð inn á einkareikning.  Pálmi á jafnframt heilt flugfélag og Jón Ásgeir á "ég veit ekki hvað" !  Er greiðslan kannski eitthvað tengd "einhverju ólöglegu" ?   Er líklegt að þeir hafi verið að "fjárfesta" í kappakstursliði ?

Í morgun kom þessi hugsun:  Það vantar bloggara sem á ekki fyrir salti í grautinn.  Með öðrum orðum, það þyrfti einhver sem er í þeim sporum að eiga ekki fyrir mat og sem þarf að leita til hjálparsamtaka til að fæða sig og börnin sín, að skrá dagbók og leyfa landsmönnum að upplifa hvernig það er.  Líklegar skýringar á því að einstaklingar í þessum sporum blogga ekki geta verið að viðkomandi byrjar á því að skera niður munað eins og tölvukostnað, að málin eru viðkvæm og fólk er ekki tilbúið að bera sorgir sínar á torg. 

Eða - kannski væri góð hugmynd fyrir einhvern af öllum þeim fréttamönnum sem nú eru að missa vinnuna að setjast niður með einstæðri móður í þessum sporum og skrifa sögu hennar og gefa síðan út bók.  Sem gæti þá hugsanlega gefið móðurinni pening í aðra hönd.

.

Frog-thinking

.

Þá eru morgunþankar mínir komnir á netið mér og mínum að meinalausu.

Hins vegar læt ég þess ógetið hvaða hugsanir flögra um kollinn minn síðar um daginn.  Það væri fáránlegt að opinbera þá hugsun mína að ég gleymdi að taka þátt í ungfrú Hnappadalssýsla þegar ég var yngri og nú er það orðið of seint !

Ekki af því að ég er orðin 45 ára heldur vegna þess að Hnappadalssýsla er horfin af kortinu.  Wink


Bara einn hamborgara og franskar, takk.

 

Í sumar ferðuðumst við hjónin frá Siglufirði til Borgarness.  Í upphafi ferðar fengum við okkur pylsu um hádegisbilið.  Keyrum við síðan sem leið liggur suður á bóginn.  Á Blönduósi vorum við sammála um að okkur langaði í eitthvað en vorum samt ekkert sérstaklega svöng. 

Niðurstaðan varð sú að við keyptum okkur hamborgara og franskar fyrir einn og snæddum það saman.  Mjög mátulegt.  Smile

Ekki svo löngu síðar fórum við frá Ólafsfirði til Borgarness.  Sagan endurtók sig.  Við stoppum á Blönduósi og ég panta hamborgara og franskar fyrir mig, ekkert fyrir hann.  

Verst að sami afgreiðslumaðurinn afgreiddi okkur í bæði skiptin. 

Þegar ég panta síðan gosglös fyrir okkur bæði með hamborgaranum eina, horfir hann á mig aumkunaraugum og segir;  Þetta er allt í lagi, það er áfylling á gosið þannig að ég rukka bara fyrir einn.

Á Blönduósi erum við því þekkt sem fátæklingarnir sem hafa ekki efni á tveimur hamborgurum.

.

burp 

.


Æfingar næturinnar.

 

Minn nýbakaði vaknaði í nótt og leit á mig:

 

Hendur mínar vísuðu beint upp í loftið.

Þannig lá ég í dágóða stund.

Þá sigu þær uns handarbökin námu við höku....

Hendurnar færðust síðan rólega niður að bringu.....

og með mjúkum hreyfingum (býst ég við) færðust þær síðan aftur fyrir hnakka.

.

gymnastik_2 

.

Ég nota dauða tímann, á meðan ég sef og fer í leikfimi !

.


Skjaldbaka í salatbeði.

 

Það hefur oftsinnis verið bent á að neysla grænmetis hafi örvandi áhrif á kynhvöt.

Enn og aftur tek ég að mér það hlutverk að koma með bein sönnunargögn...... og botna ekkert í því,  af hverju ég var ekki sett í rannsóknarnefnd Alþingis.  Pouty

Á fyrstu myndinni sést dæmigerð skapstygg skjaldbaka.

.

skjaldbaka

.

Skjaldbakan smellir sér á grænmetisdiskinn.

.

skjaldbökusalat 

.

Og viti menn !

.

skjaldbökur 

.

 


Móðureðlið.

 

Svona er nú lífið á heimilinu.

Takið eftir að hundurinn hrýtur..... og heldur áfram að hrjóta eftir að hún er vöknuð.  Joyful

Tíkin er litagölluð Cavalier.  Hún hefur aldrei átt hvolpa.  Fyrir nokkrum árum velti ég því fyrir mér að leyfa henni að eignast hvolpa, án þess þó að ætla að selja þá.  Hundaræktendur, sumir hverjir, urðu alveg óðir og brjálaðir.  Það mátti alls ekki vegna þess að hún er smávegis litagölluð. 

Mannfólkið er merkilegt.  Það þykir mikill kostur hjá hesteigendum að hafa marga og fjölbreytta og helst fágæta liti - en það verða allir hundar að vera nákvæmlega eins á litinn og aðrir hundar af sama hundakyni.  Annars teljast þeir gallaðir ! 

Hvernig á maður að botna í þessu ?  FootinMouth

 

.


Sagði upp vinnunni í miðri kreppu.

 

Það er ekki hægt að segja að ég fari alltaf troðnar slóðir.

Í vor sagði ég upp vinnunni !

Í miðri kreppu, bara sisvona.  Pouty

Og hætti störfum um síðustu mánaðamót.

Það hefur alltaf verið prinsipp hjá mér að hafa gaman af vinnunni.  Og þegar mér finnst vinnan ekki uppfylla væntingar mínar um lífsfyllingu, þá segi ég upp.  Og það gerði ég. 

Ég hugsaði með mér að ég fyndi mér bara eitthvað annað að gera.  Og ef ég finn ekkert annað, þá bara bý ég mér til vinnu.  Og ef ég bý mér ekki til vinnu, þá bara geri ég ekki neitt.  Og ef ég geri ekki neitt, þá hef ég bara meiri tíma til að blogga.  Happy   Nei, djók !

En mig langaði svolítið mikið að eiga frí í september og ég er komin í frí.  Wink

 

Eftir það vonast ég.... svona í alvöru talað.... til að láta draum minn rætast.  Því í kreppunni felast mörg tækifæri, ykkur að segja.

Draumurinn er sá að ég verði yfirmaður minn.  Reki mitt eigið fyrirtæki.  

Þá get ég sagt við mig;  "Anna, get ég fengið frí í dag" ?  Og þá segi ég bara;  "Nei Anna, þú getur ekki fengið frí í dag"....(rosalega harður yfirmaður)... "en þú mátt eiga frí á sunnudaginn".

.

1262518_177 

.

Og þá get ég bakað pönnukökur á sunnudögum.  Joyful

 

 

 


Næsta síða »

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband