Samskipti á Facebook.

 

Bróðurdóttir mín sendi inn svohljóðandi kvörtun á Facebook;

"ekkert að gera mér leiðist svaklega mikið ekkert að gera ég er búin að reina og reina að finna mér eithvað að gera en það er bara ekkert að gera og ég er líka að fara í frjálsar á eftir mig langa svo mikið að gera eithvað en það er bara ekkert ææii uhuhuhuhuhuhuuhu leiðinlegt"

.

Þar sem ég er ábyrg föðursystir, fannst mér skylda mín að reyna að hugga hana;

"Þú ert ekki ein.  Allar stelpur á þínum aldri hafa EKKERT AÐ GERA :)   En það lagast.   Þegar þú verður stór færðu að taka til og þvo þvott og skúra gólf"  ;)

.

Liðu síðan 3 vikur en þá kom hún með þetta yndislega svar;

"jú jú stundum hef ég eitthvað gera sko en oftast hef ég ekkert að gera sko en mjög sjaldan sko og ég meina það"

.

Það verður ekki af bróðurdóttur minni tekið að hún kann að koma fyrir sig orði.  Happy

.

kisa í glugga

.

ísbjörninn 

.

samrýmd systkini 

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hún ætti eiginlega að skella sér á þing. Hún myndi falla þar inn eins og flís við rass.

Jón Steinar Ragnarsson, 19.3.2010 kl. 12:09

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahahah liggur þetta sumsé í ættinni?

Kattarmynd númer dos gæti verið af mínu skrípi. Er hann hjá þér þegar hann hverfur héðan?

Hrönn Sigurðardóttir, 19.3.2010 kl. 13:27

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já, stelpan er þingmannsefni.  Ekki spurning. 

Kattarskrípið er ömmukisa í heimsókn.  Sonur minn segist eiga hann.... en kannski er þetta kisan þín Hrönn ?  Ég held að hann sé Ragnar Reykás þeirra katta.  Sérðu stubbana sem eiga að kallast framfætur !    

Anna Einarsdóttir, 19.3.2010 kl. 14:08

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já... ég sé það núna! Þá er þetta ekki minn. Hann er langleggjaður bæði að aftan og framan

Hrönn Sigurðardóttir, 19.3.2010 kl. 14:43

5 Smámynd: Ragnheiður

Yndislegar kisur, taktu endilega margar myndir af þeim. Ég eeeelska kisumyndir....

Hjá mér sofa kattabræður, rauðbröndóttur hefðarköttur og lítill kjáni í eskimóabuxum, það hreyfast veiðihár og eyru. Þeim er að dreyma um músaveiðar

Ragnheiður , 19.3.2010 kl. 17:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband