Brúðkaup.

Dagurinn var yndislegur.  Frænka mín og frændi giftu sig í dag.  Hann er að vísu ekkert skyldur mér en þetta hljómar bara betur svona. Grin  En án gríns..... ofboðslega falleg athöfn og það hefði enginn maður með fulle fem látið sér til hugar koma að þau væru afi og amma.  Litu bara út eins og unglingar.  Ætla ekki að reyna að lýsa kjólnum sem brúðurin var í ..... BAAAAARA flottur !  Nú skal það upplýst í trúnaði að ég er búin að æfa mig í dálitlu frá unga aldri.   Nefnilega að skutla mér.  Byrjaði ung í marki í fótbolta.... voða skutla.  Hafði svo áætlað að gera allt sem ég gæti til að ná brúðarvendinum ef hann myndi fljúga..... og myndi þá væntanlega hafa forskot á hinar sem ekki gætu skutlað sér.  Nú skyldi gjörsamlega fórnað sér til að verða næsta brúður.  En nei, minn tími er ekki kominn.  Held að Jóhanna Sigurðar sé næst í röðinni.

Ómæ... ég get aldrei skrifað eitt blogg án þess að það fari út í tóma vitleysu !

Hætt í bili....... en HJARTANLEGA TIL HAMINGJU MEÐ HVORT ANNAÐ ELSKU GILLÍ OG PALLI. Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk Anna mín og já ég steingleymdi að henda vendinum, er ekki viss um að ég hefði tímt því en núna er hann bara í glasi inn í stofu og er að gefast upp, ég skal reyna að bæta um og segja bara.....þú hefðir án efa skutlað þér lengst ef til þess hefði komið....svo við segjum bara að þú hafir náð vendinum.

Gillí (IP-tala skráð) 26.3.2007 kl. 13:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband