Upp á kant.

Er ég snillingur eða er ég ekki snillingur ?  Nú er ég langt komin með að útfæra, viða að mér efni og skipuleggja byggingu á nýjum þakkanti á húsið mitt.  Þetta er auðvitað mjög heimskulegt af mér því samkvæmt einhverri könnun virðast karlmenn sækja í fallegar konur og konur sem vantar vernd.  Eru semsagt ósjálfbjarga.  Nú, mér er þá bara alveg sama !  Útilokað að vera ósjálfbjarga eftir að maður er orðin rúmlega tveggja ára.  Það virðist ekki vera neitt stórmál að skipta um kantinn - vandasamara að kantske..... nei, nú fór ég yfir línuna. Pinch  Aftur að efninu; býst við að húsið mitt verði komið með nýtt lúkk uppúr páskum.  Svo er nú ekki öll vitleysan eins.  Er handviss um að bíllinn minn sé farinn að kvarta yfir einhverju.  Þar sem ég er bifvélavirkjadóttir þykist ég vita hvernig á að heyrast í bílum sem eru í lagi.  Minn malar hátt - of hátt.  Hann ískrar líka.  En þetta kemur allt saman í ljós síðar og óþarfi að hafa áhyggjur af því fyrr en það gerist.  Hvers vegna að kvíða einhverju sem kannski aldrei verður ?  Smile

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyrðu mig...ég frétti það áðan þegar saumó mætti í eftirbrúðkaup að ég átti að kaupa lítinn aukabrúðarvönd til að kasta út í sal.....það var enginn að segja mér þetta annars hefði ég auðvitað getað kastað honum til þín.  Palli stakk upp á að henda honum yfir tjörnina og sjá hverjar vildu í alvöru leggja eitthvað á sig til að ná honum.  Ég hef þá reynslu að maður þekkir sinn bíl best og öll þau hljóð sem ég hef talið að væru óeðlileg í bílnum mínum hafa reynst bilarnir en ekki í eitt skipti hefur Páll verið sammála mér. En ekki að hafa áhyggjur....ekki að hafa áhyggjur...ekki að hafa áhyggjur......góð setning...ekki satt.

Gillí (IP-tala skráð) 26.3.2007 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 342759

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband