Sex spor.

 

Ég vann ferðina til Vestmannaeyja og hún varð vendipunktur í mínu lífi.  Í sakleysi mínu var ég að dansa þegar kona dettur beint fyrir aftan mig og kippti undan mér fótunum þannig að ég flaug á hnakkann og úps !!!  GAT á hausinn minn.

Þá komu þrjár löggur og handtóku mig.  Það var frekar gaman. Grin Löggan keyrði mig á spítalann.  Síðan var stefnumót við lækninn sem því miður var kvenkyns.  Já, maður fær ekki öllu ráðið.  Ekki á óskalistanum.  Jæja, daman setti sex spor í hausinn á mér og núna er ég sem ný.   

Í gær tróð ég svo upp með Árna Johnsen.  Hann kom og spilaði fyrir okkur kjellurnar.   Ég hafði fjárfest í gítar einum, fyrr um daginn.  Svona pínulitlum gítar en samt nógu stórum til að  taka lagið með stráknum.  Núna erum við búin að stofna dúett - eða hljómsveit.  Allir sem eru fúlir út í strák fyrir þjófnað, hætti því strax.  Kallinn er húmoristi og þá má hann eiginlega allt.  Það er bara þannig.  Skemmtilegur kall.  LoL

Eigum við að kjósa aftur ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Villa af Ugglas vinkona mín frá menntaskólaárunum samdi eftirfarandi drápu til Árna - Villa fílar Árna í tættlur:

ÁRNA ÞÁTTUR JOHNSEN

 

Prakkarastrik eru peyja siður,

prísuð er fangans dýna.

Ekkert þykir Árna miður,

engin strik á hrína.

 

Elsku besti Árni minn

 

arnarklóin mín besta

 

prakkarastrika strákurinn

 

staðfasti Brekkusöngvarinn.

   

Viðlag:

 

Undan ferðamannsins fæti valt steinn úr stað,

 

steinninn hélt áfram að velta,

 

veistu það,

 

trallla lalla lalla lalla,

 

trallla lalla lalla lalla,

 

tralla lalla lalla lalla lalla laaaa.

Ásgeir Rúnar Helgason, 24.6.2007 kl. 22:42

2 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Gekkstu nokkuð of hratt um gleðinar dyr?

Eva Þorsteinsdóttir, 24.6.2007 kl. 22:51

3 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Það er víst hægt að fá göngugrind fyrir  valtar konur gæskan, já eða bara kaupa sér galla fyrir Ameríska fótboltann.

Værir flott í slíkri múnderingu.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 24.6.2007 kl. 23:45

4 Smámynd: Hugarfluga

Snilld að kenna Borgarnesbreddunni um byltuna! hehe ... nei, annars ... toss á tollinn og vona að hristingurinn geri þig ekki hrærða, darling. 

Hugarfluga, 25.6.2007 kl. 08:49

5 Smámynd: Gíslína Erlendsdóttir

Færðu núna frítt parket á íbúðina? Vona að hausinn hafi ekki lagast mikið, vil ekki missa bullið úr Önnuheila. 

Gíslína Erlendsdóttir, 25.6.2007 kl. 09:37

6 Smámynd: Ragnheiður

úpps...ekki gott mál það að fá gat á hausinn. Vonandi lak ekkert út

Ragnheiður , 25.6.2007 kl. 12:16

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Rosalega ertu steikt Anna, alveg dásamlega steikt í hausnum með eða án sauma sko.  Er þetta óskahelgin sem þig dreymir um?  Þessi er öflugri en hjá meðalalkóhólista.  Brilljant hjá þér eins og venjulega. Takk og smjúts.

P.s. við kjósum aftur.  Að ári

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.6.2007 kl. 13:06

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nei nú verð ég að bera hönd fyrir höfuð mér... áts.  Ég er ekkert steikt, kannski soðin en ekki steikt.  Hver sagði að ég hefði dottið af því að ég væri svo drukkin?

Og svo er ég líka á góðri leið núna, búin að taka helminginn af 12 sporunum.

En já já já..... þetta var draumahelgi.  Fór í yndislega bátsferð með 44 öðrum konum kringum Eyjarnar, hlógum saman út í eitt alla helgina.

Anna Einarsdóttir, 25.6.2007 kl. 13:23

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Í Vestmannaeyjum er viti sem heitir Hálfviti, skemmtilegt nafn.   

Mér finnst alveg glæsilegt að "vera öflugri en meðalalkahólisti" eftir grein sem innihélt ekki einn einasta bjór.

SKÁL !

Anna Einarsdóttir, 25.6.2007 kl. 15:36

10 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

En fyrir hvað varstu handtekin? Er bannað að detta í Borgarnesi?

Aðalheiður Ámundadóttir, 25.6.2007 kl. 15:53

11 identicon

Pant fara út á lífið með þér næst..

Björg F (IP-tala skráð) 25.6.2007 kl. 15:57

12 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta hafa verið sex-ý spor hjá þér hmmm

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.6.2007 kl. 16:04

13 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þegar þrjár löggur koma og leiða mann út í lögreglubíl..... er maður þá ekki handtekinn ?   Þeir slepptu mér að vísu mjög fljótt aftur, miklu fljótar en þeir sjálfir vildu.  Ég sagði þeim átta brandara og eina vísu á leiðinni.

Ég pant fara með þér næst Björg..

Ehhhm Gunnar.  Það hvarflaði svosem að mér á ákveðnum tímapunkti að hrósa happi yfir því að hafa fengið sex....... en þetta var bara svo skrambi vont.  

Anna Einarsdóttir, 25.6.2007 kl. 16:33

14 Smámynd: Hugarfluga

Verð að játa að mér finnst þetta "öflugri en meðalalkahólista" komment frekar leim. Knús á Önnuna mína.

Hugarfluga, 25.6.2007 kl. 16:33

15 identicon

Úfffff mín kæra. En þú er snillingur að gera gott úr hlutunum og snúa þeim upp í  hrein og klár ævintýri. Snilligáfa sem ekki er öllum gefin :)

hólmfríður sveinsdóttir (IP-tala skráð) 25.6.2007 kl. 17:14

16 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Æi Fríða mín,  þú ert nú yndislegust.   Nú verð ég sennilega montin.

Anna Einarsdóttir, 25.6.2007 kl. 17:31

17 Smámynd: Brattur

.... hvað heitir svo dúetinn, "Áddni "Steinar" & handtekna heimasætan" hmm... 

tókuð þið ekki ... Þín fyrstu tár, þín fyrsta sorg, þín fyrsta hrösun. ...

Brattur, 25.6.2007 kl. 21:28

18 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Dúettinn heitir "Grjóthaltu kjafti".

Við tókum auðvitað fullt af lögum.... "Hann heitir Árni og hún söng dojojojojong" og svo frumfluttum við "Í kartöflugarðinum heima".  Það verður án efa mjög vinsælt.

Anna Einarsdóttir, 25.6.2007 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband