Pottormurinn.

 

Það er fátt heilbrigðara en að troða sér í heitan náttúrulegan pott úti í guðsgrænni náttúrunni.

Á Snæfellsnesi er einn leynipottur, falinn í hrauni.  Í mörg ár var ég búin að heyra sögur af fólki sem sat heilu sumarkvöldin í pottinum og naut lífsins.

Mig langaði að prófa líka.

Fór því af stað.  Ég vissi nokkurn veginn hvar hann var að finna - þ.e. á hvaða afleggjara ég átti að fara en síðan ekki meira. 

Þegar ég er komin á afleggjarann, hringi ég í bróður minn og læt hann lýsa staðháttum.  Síðan geng ég af stað og leita.  Wink

Eftir nokkurt rölt, hoppa ég upp af kæti !  Þarna er hann, ég sé gufuna.

Arka þangað en verð dálítið hissa þegar ég kem nær.

"Potturinn" var 15 cm. djúpur þar sem hann var dýpstur og nálægt einum fermetra í ummál.  Fyrir ofan hann var svart rör sem dælir heita vatninu ofan í "pottinn".

Tja, ekki eins stórt og ég hélt...en fyrst ég er komin, þá er bara að demba sér ofan í.

Hátta mig og sest í "pottinn".  Áts !  Það er hraun á botninum.  Pinch

Ég reyni að troða mér í dýpsta hlutann en samt nær vatnið ekki alveg upp að nafla.  Þetta var um vetur. 

Brrrrrr..... kalt á öxlunum og vont að sitja en samt - vera jákvæð Smile

Þetta átti að vera svo notalegt sögðu allir.... svo þarna sat ég í klukkutíma og hafði það næstum því sómasamlegt. 

Nokkru seinna, hitti ég vinkonu mína og lýsi undrun minni á smæð "laugarinnar"  og óheppilega hvössum botni.

Hún rekur upp stór augu. Fer svo og sækir myndaalbúm og sýnir mér pottinn. 

HA !  Þetta er ekki sá sami.  Woundering

Ehhhh...... Blush

.

.

Líklega er ég eina manneskjan á Íslandi sem hef baðað mig í þessu bévítans affalli.

Og það er engin mynd til að drullupollinum.  

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brattur

... Anna, þú hefur örugglega verið í grunnu lauginni þarna... en ég sé þið svolítið í anda vera að reyna að koma þér fyrir í þessu litla vatni...... en mikið er alltaf gott eins og þú segir að baða sig út í náttúrunni... notaði sjálfur  Grjótagjánna í Mývatnssveit mikið í denn og svo leynistaðinn sem allir vissu um þegar hún varð of heit eftir Mývatnseldana... að liggja í heitu vatni ofna í jörðinni t.d. eftir langan vinnudag... er betra en margar klukkutíma svefn...

Brattur, 31.7.2007 kl. 23:45

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nei Brattur...... ég var í djúpu lauginni.    Verst að eiga ekki mynd af þessu.. ég skil ekki enn þann dag í dag að mér skyldi hugkvæmast að þetta væri "laug".  Drullupollur með hrauni.

Anna Einarsdóttir, 31.7.2007 kl. 23:48

3 Smámynd: Brattur

... hehe... jú Anna, ég eignilega skil það bara vel, fyrst þetta varst þú

Brattur, 31.7.2007 kl. 23:50

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Anna.: Var þetta stærra en sturtubotninn hans Ægis? Bara svona að spá, ef ske kynni að færi betur um okkur Bratt í boðsundinu. Nei annars....15 cm duga ekki, ef það er hraungrýti í botninum. Var að mæla þvermál mitt og komst að því að ég þarf amk 30 cm til að fljóta. Það getur verið varasamt að fara laugarvillt..

Halldór Egill Guðnason, 31.7.2007 kl. 23:52

5 Smámynd: Brattur

Halldór... þegar að skákmótinu kemur, byrjum við þá ekki á boðsundinu, svo á eftir kemur jóga hjá Ægi og svo getum við kannski teflt eins og eina skák, þar á eftir verður hlé með léttum veitinum, mjólkurkex og ávaxtasafi og síðna tekur við námskeiðið hennar Önnum um hestaliti, sem ég bíð mjög spenntur eftir...

Brattur, 31.7.2007 kl. 23:55

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Boðsund !  Ertu galinn.   

Anna Einarsdóttir, 31.7.2007 kl. 23:57

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Gleymir þú viljandi félagsvistinni Brattur ?

Anna Einarsdóttir, 31.7.2007 kl. 23:57

8 Smámynd: Brattur

... Anna í boðsundinu eru aðeins tveir keppendur skráðir til leiks, undirritaður og Halldór....

Brattur, 31.7.2007 kl. 23:58

9 Smámynd: Brattur

ahhh.... nei, nei auðvitað félagsvistinn... getum við kannski haft þetta Kana?

Brattur, 31.7.2007 kl. 23:59

10 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Annaðhvort félagsvist...... eða það sem er betra, bridge.   

Anna Einarsdóttir, 1.8.2007 kl. 00:02

11 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Síðan má ekki gleyma samkeppninni um nýja málshætti um konur strákar. Þar fá karlmenn einir aðgang. Annars var ég að skoða heimasíðu frænku minnar í Miðengi í Grímsnesi og þar er ágætis lestur um hestaliti. Ætla að stúdera það fyrir námskeiðið svo Anna reki migekki á gat í því

Halldór Egill Guðnason, 1.8.2007 kl. 00:05

12 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Brids hljómar vel

Halldór Egill Guðnason, 1.8.2007 kl. 00:05

13 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Staldra stutt. Eldsnemma á fætur í fyrramálið

Halldór Egill Guðnason, 1.8.2007 kl. 00:06

14 Smámynd: Brattur

... það er allt í lagi að láta reka sig á gat... en hún Anna veit svo sum ekki allt um hestaliti, vissi t.d. ekki að til væru köflóttir hestar fyrr en ég sagði henni það....

Brattur, 1.8.2007 kl. 00:07

15 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nýja málshætti um konur.    Það hljómar dularfullt.

Þú þarft ekki að óttast Halldór.  Ég mun einbeita mér að Bratti og köflunum, röndunum og skræpunum, rifflunum og doppunum sem hann er að reyna að innleiða í hestaliti.

Anna Einarsdóttir, 1.8.2007 kl. 00:09

16 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hvaða kerfi kunnið þið ?

Anna Einarsdóttir, 1.8.2007 kl. 00:12

17 Smámynd: Brattur

... neibb Ægir, en ég gæti örugglega verið uppfylling ef vantar, vanur að spila alskonar önnur spil og reyndar í smá tíma fyrir mjöööööög mörgum árum spilaði ég bridge...

Brattur, 1.8.2007 kl. 00:13

18 Smámynd: Brattur

...Nú er beyglan

Brattur búinn

seiglan í honum

líka fúinn

dagurinn búinn....

Góð nótt... 

Brattur, 1.8.2007 kl. 00:15

19 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Am Standard , en þú Anna? Ég er Gunnith á BBO

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.8.2007 kl. 02:31

20 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Drullupollari

Eva Þorsteinsdóttir, 1.8.2007 kl. 02:37

21 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Gunnar Th....  Ég spila stundum á BridgeBase í vondum veðrum og heiti þá STULKUKIND.  Ekki búast við mér þar fyrr en í haust.  Kann slangur í ýmsum kerfum.  

Anna Einarsdóttir, 1.8.2007 kl. 08:28

22 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég ætlaði ekki að geta hætt að hlæja...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 1.8.2007 kl. 12:13

23 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þetta með heita pottinn hlýtur að vera rétt hjá nýju borholunni þeirra þarna á Snæfellsnesi?

En þetta með hestalitina er ég ekki klár á en þar sem ég var í sveit voru til dóppóttar, köflóttar og röndóttar hænur!

Edda Agnarsdóttir, 1.8.2007 kl. 12:31

24 Smámynd: Hugarfluga

Hahahahahah .... þú ert óborganleg!!!

Hugarfluga, 1.8.2007 kl. 19:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 342766

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband