Skil´ett´ekki.

 

Nú beini ég orðum mínum að stelpunum.....

 

Hver er munurinn á dagkremi og næturkremi ?

Hvað gerist ef ég nota næturkrem að morgni ?

Af hverju er þá ekki dagtannkrem og næturtannkrem líka ... eða dagsjampó og nætursjampó ?

 

Kona spyr sig ! 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

svo ég svari þessu nú af fullri einurð Anna mín þá held ég að næturkrem séu feitari en dagkrem. Fyrir ekki svo löngu síðan var afgreiðslustúlka í apóteki að sína mér krem. Ég var að leita að dagkremi. Hvað með þetta sagði ég og benti á einhverja dollu. Nei, nei sagði hún, þetta er næturkrem, mikið meiri virkni í því. Og ég spurði hana afhverju maður vildi ekki krem með mikilli virkni á daginn. Hvort árangurinn væri þá ekki betri. Og hún sagði: ja, það er góð spurning.

Jóna Á. Gísladóttir, 26.8.2007 kl. 22:35

2 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

LOL, ég skil ekki muninn, enda nota ég það sem virkar fyrir mig í það sinnið. Ef húðin er þurr, og ég á næturkrem sem virkar, þá nota ég það á daginn, alveg sama um boð og bönn. En bara til að fræða þig, þá er til tannkrem fyrir næturnar líka. Svona tannkrem til að hvítta tennur og virka efnið á að virka á meðan maður sefur, truflunarlaust frá áti og drykkju sem er voða reglulegt fyrirbæri á daginn. Því miður fæst það bara erlendis, hef ekki séð það hér. En sjampó hef ég aldrei séð svona í þessari mynd. LOL

Bjarndís Helena Mitchell, 26.8.2007 kl. 22:39

3 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

Tja... sölumennska?

Aðalheiður Ámundadóttir, 26.8.2007 kl. 22:51

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Takk stelpur.     Nú kaupi ég bara eitt RÍKISKREM framvegis og nota hvenær sem er, sólarhringsins.

Anna Einarsdóttir, 26.8.2007 kl. 23:32

5 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Stelpur, stelpur, rakin kemur að innan, þannig að aukin vatnsdrykkja lagar svona hluti og þetta krem dót á leðurhúðina er bara sölu bull.

Hvernig dettur svona fallegum konum í hug, að láta óprúttna sölumenn telja sér trú um að krem úr dollu geti fegrað svo fagra hluti sem þið eruð.

Lítið bara í spegil og sjáið, hvílík fegurð.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 27.8.2007 kl. 00:04

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hvað er Ríkiskrem?

Er það kannski júgursmyrsl?

Edda Agnarsdóttir, 27.8.2007 kl. 00:10

7 Smámynd: Marta B Helgadóttir

æ svona krem gera mest lítið, held að vatnsdrykkja se málið .....

Marta B Helgadóttir, 27.8.2007 kl. 02:13

8 identicon

Jæja jæja jæja.. það er þá komin tími á að ég ausi úr minni margföldu visku..l..

sko þannig er málið að næturkrem inniheldur enga fitu... EN ... og stórt EN

Við eigum EKKI að nota næturkrem.. ah ha.. spyrja sumar sig.. já nei það er ekki gott fyrir húðina.. því það er á næturnar sem húðin okkar þarf að vera alveg hrein svo hún geti andað.. hún þarf að fá að anda algjörlega og án allra aukaefna.. í öllum snyrtivörum (fyrir utan dr. hauska og einhverjar örfáar aðrar lífrænar snyrtivörur) eru aukaefni sem eru ekki góð.. og lifrin þarf að brjóta niður og etc.. Þau snyrtivörufyrirtæki sem eru algjörlega lífræn eins og til dæmis Dr. Hauscha myndu ekki mæla með næturkremi.. þau eru samt með eitthvað andlitsvatn sem þú getur borið á þig áður en þú ferð að sofa..

uff uff.. nóg í bili

Björg F (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 08:23

9 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Góð spurning

Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.8.2007 kl. 08:28

10 Smámynd: Gíslína Erlendsdóttir

Dr. Hauscha bjargar andlitinu   Einhver sagði að ólívuolía væri bara góð í allt á borðið, pönnuna, hárið og fésið líka. 

Gíslína Erlendsdóttir, 27.8.2007 kl. 09:34

11 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Hvað svo sem segja má um okkur karlkvikyndin, höfum við ekki enn sem komið er, látið telja okkur trú um þessar kremdellur til hins og þessa. Sölumennskan er hreint ótrúleg í þessum snyrtivörum og konur falla fyrir þessu. Það hefur mér ætíð fundist svolítið skrítið. Ég meina t.d.: "augnkrem sem hugsar um þig" og margt margt fleira.

Halldór Egill Guðnason, 27.8.2007 kl. 10:30

12 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Anna!  hæhæhæhæhæhææ.  Ég er sérfræðingur í þessu sem öðru.  Við vinkonurnar:  Sigga, Birna, Auður, Steinunn og ég gerðum tilraun í tvo mánuði með þessi svokölluðu andlitskrem.  Ég man ekki alveg hvernig þetta var, svo langt er síðan, en rannsóknin var nokkuð vísindaleg. Sama kremið notuðum við allar fimm, eina viku í senn.  Samdóma álit var það að krem í  brúnni krukku sem fékkst í Reykjavíkur apoteki.  Kremið var útbúið í apotekinu, hvítt, án fitu og mjög létt, kallað rakakrem.  Síðan apotekið hætti hef ég bara notað Nivea í bláu dósunum.

Það er búið að sanna að þessi krem sem verið er að selja undir hinum ýmsu merkjum, eru stórhættuleg og hafa áhrif á heilsu okkar.  

Gíslína,  þetta er alveg rétt hjá þér, ómenguð ólívuilía er gulls í gildi.  jafnvel við hemorider.  Samt held ég að maður þurfi að nota mjög lítið í einu.

Halldór Egill,   Þú er semsagt ekki metro maður, ég sem hélt að þú væri svo gúddí.  Allir karlar frá 18 - 23 ára, sem vilja láta taka sig alvarlega nota andlitskrem.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 27.8.2007 kl. 11:10

13 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ingibjörg mín.... ég held að Halldór sé rúmlega 23 ára. 

Annars er ég skrambi ánægð með þessi svör.... sé að leti mín við að setja á mig krem,, hefur reynst vera skynsemi. 

Anna Einarsdóttir, 27.8.2007 kl. 11:15

14 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Hún Ingibjörg er ekki alveg samkvæm sjálfri sér.Fæ ekki betur séð en að hún sé með heila dós af einhverju kremi í andlitinu. Kannski bara Nivea? "Metró maður??" Getur einhver útskýrt það fyrir mér? 18-23 ára er aldurinn á næstyngsta og næstelsta barninu mínu, þannig að sennilega þarf ég ekkert að spá í þetta "Metró". Hélt annars að það væri neðanjarðarlest, en svona er maður púkó.

Halldór Egill Guðnason, 27.8.2007 kl. 11:43

15 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Hvað er þetta Halldór, ´þú veist það stundum notar maður meira en minna.  Það var í vor sem leið að ég gleymdi dósinni heima.  Ég var í bústaðnum í meira en viku, svo þegar ég kom heim þá bætti ég mér nivealeysið með því að klína á mig níu umferðum.  Þannig var það nú gamli minn.  

Ingibjörg Friðriksdóttir, 27.8.2007 kl. 14:00

16 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Man það núna, ég blandaði smá sinkpasta í hræruna.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 27.8.2007 kl. 16:19

17 identicon

ohh my god!!!

Sif (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 17:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband