Laufskálarétt..

Lag:  "Þeir greiddu í píku"....

.

.

Ég læðist inn í Laufskálarétt
og lít yfir mannskapinn
Yfir mönnum virðist afar létt
mér sýnist ég vera eini apinn
allir strákarnir vor´í hestaskóm
og stelpurnar með úfið hár
þá ég söng með mínum afleita róm
og allt fólkið fór að fella tár

.

Ég skil ekkert í þeeeessu
nú fer allt í kleeeessu
en ég vandaði mig svo vel
söng af einurð og þrá...
allir grétu þá...

.

Ef ég einn söngtíma nú fengi
ég yrð´ekki lengi
að verða eins og Björgvin Halldórsson
já minn tími kemur.....
fyrr en verð ég trítilóð.  LoL

.

lauf



 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Arg! Mig langar norður! Hrikalega skemmtilegt dæmi!!!! 

Heiða B. Heiðars, 28.9.2007 kl. 00:06

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

....ég á svo skemmtilegar minningar frá Laufskálaréttum að ég gæti meira að segja litið framhjá því að Geirmundur og Bó sjá um ballið.... ef ég passa bara að vera þyrst allann daginn

Heiða B. Heiðars, 28.9.2007 kl. 00:07

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ætli hann Gísli í Kýrholti sé ekki ennþá búinn að markskoða folaldið?

En Sigurjón heitinn á Dýrfinnustöðum velti fyrir sér ásýnd bóndans, morguninn eftir slarksaman dag í Laufskálarétt:

Andlitið er örum skreytt

eftir réttarbrasið

og það vantar yfirleitt

alla reisn í fasið.

Nú eru þeir flestir farnir að þeysa á gæðingum sínum á grösugum grundum eilífðarlandsins gömlu meistararnir sem settu svip sinn á Laufskálarétt og gerðu hana heimsfræga. 

Árni Gunnarsson, 28.9.2007 kl. 00:24

4 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Bjarndís Helena Mitchell, 28.9.2007 kl. 00:51

5 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson


Gunnar Helgi Eysteinsson, 28.9.2007 kl. 05:49

6 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Aldrei mætt í Laufskálaréttir, þó ég sé af þekktu hrossakyni langt aftur í ættir.

En ég hef oft farið á ball með Geirmundi, enda fræg fyrir að mæla gólflistana á sveitaböllunum í den.

Anna ætlar þú að skella þér?

Ingibjörg Friðriksdóttir, 28.9.2007 kl. 09:00

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Heiða.  Hljómsveitin Von er líka að spila og hún er rosalega góð.   

Árni.  Takk fyrir góða vísu. Það kemur fyrir að menn verði lágreistir í réttunum.  

Ingibjörg mín !  Þú átt mikið eftir.    Skelltu þér bara og hittu mig.

Anna Einarsdóttir, 28.9.2007 kl. 09:10

8 Smámynd: Heiða  Þórðar

Laufskálaréttir! Má maður mæta á hælum á þessháttar samkundur? Góða helgi kæra bloggvinkona og skemmtun.

Heiða Þórðar, 28.9.2007 kl. 12:41

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ef einhver á að hafa tærnar þar sem þú hefur hælana, Heiða, þá verður þú að hafa hælana með.    Það þykir bara ekki flott að ganga í hægðum sínum.... annars má ganga í hverju sem er. 

Anna Einarsdóttir, 28.9.2007 kl. 14:07

10 Smámynd: Kristjana Bjarnadóttir

ég er lítið fyrir hesta, (!!!!!!!!) hm, en góða ferð.

Annars er ég að hugsa um að stunda ljósmóðurstörf á Snæfellsnesi um helgina ef mér tekst að snýta kvefinu úr mér.

Kristjana Bjarnadóttir, 28.9.2007 kl. 14:13

11 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ljósmóðurstörf Kristjana ?  Ég er eitt spurningamerki... 

Anna Einarsdóttir, 28.9.2007 kl. 14:17

12 Smámynd: Kristjana Bjarnadóttir

passa nokkrar kýr komnar að burði, kannski fæðist mér kálfur !!!!!!!!!!!

Kristjana Bjarnadóttir, 28.9.2007 kl. 14:34

13 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

 Mig langar svo að fara á svona ball, hef ekki komist á gott ball eða sukk, síðan ég missti alla skemmtilegu drykkjufélagana inn á Vog.

Langt að fara, en hvað getur maður gert annað en yljað sér við minningarnar um dans og gleði, auk fagurra meyja sýn.

Og að missa af Önnu, einni fríðustu konu vestan Þingeyjarsýslu á staðnum, er ill bær harmur að bera til rekkju, ég reitti hár mitt, ef ég væri ekki væri svo heppin að vera orðin sköllóttur.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 28.9.2007 kl. 14:48

14 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þú gætir prófað að reita annarra manna hár.      Góður Þorsteinn. 

Anna Einarsdóttir, 28.9.2007 kl. 14:52

15 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

ATHUGIÐ ENGIN BJÓRSALA! Iss, þá kem ég ekki Góða skemmtun!

Halldór Egill Guðnason, 28.9.2007 kl. 15:08

16 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Neeei Anna

Er hættur að berja mann og annan, gerði það sem korn ungur asni og skammast mín enn fyrir það.

Vill miklu frekar faðma konur og aðra, en reita.

Nema ef um hárkollu væri að ræða, þá má reita annarra manna hár.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 28.9.2007 kl. 15:19

17 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég er svi mikill bjáni, mér fanst vanta ybbsilonið í eitt orðið þarna, er það vitleysa eða er ég að reyta ykkur til reiði?  Ég er snillingur í að ergja mann og annan.

Því miður Anna, en þegar þú kemur í Gullbringuna, þá væri nú gaman að hitta þig.

Hópurinn magnaði, ætti kannski bara að skella sér á bak ha? 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 28.9.2007 kl. 16:35

18 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Til er ég Ingibjörg.... en veit ekki um kjark hinna. 

En nú er ég farin að dansa við alla kallana í sveitinni....

Góða helgi alles bloggvines. 

Anna Einarsdóttir, 28.9.2007 kl. 16:51

19 Smámynd: Gíslína Erlendsdóttir

Brokkaðu vel um helgina Anna mín og ekki sækja of mikið á brattann.

Gíslína Erlendsdóttir, 28.9.2007 kl. 16:59

20 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

HhnNeeEgggg!

Eða hvernig skrifar maður eiginlega hestamál á íslensku?

Ég bara spyr?

Einn að utan!

Ásgeir Rúnar Helgason, 28.9.2007 kl. 20:44

21 Smámynd: Arnfinnur Bragason

Góða skemmtun og gakktu allavega um gleðinnar dyr

Arnfinnur Bragason, 28.9.2007 kl. 22:27

22 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Hún Anna heyrir ekki í okkur, hún er farin norður, vonandi man hún eftir okkur og skálar fyrir okkur. 

Ásgeir!  gobbeddí gobbeddí.

Ægir, romm í október og skella okkur á bak ekki satt? 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 28.9.2007 kl. 22:39

23 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Góða skemmtun og góða nótt ljúfa!

Edda Agnarsdóttir, 28.9.2007 kl. 23:07

24 Smámynd: Brattur

... já, rommýið... við verðum að fara að finna dagsetninug á næsta mót, gott fólk... október er svolítið stífur hjá mér... ég er að horfa á dagsetningu eins og 9. nóvember, föstudagur.... hvernig er Tattoo fólkið þá?

Brattur, 28.9.2007 kl. 23:21

25 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

9. nóv er góður.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 29.9.2007 kl. 11:04

26 Smámynd: Arnfinnur Bragason

9. hljómar fínt

Arnfinnur Bragason, 29.9.2007 kl. 18:38

27 Smámynd: Brattur

... þá er best að fara að semja reglurnar... og þið Tattoo fólk æfið skemmtiatriði... ég er eiginlega byrjaður að semja mitt...

Brattur, 29.9.2007 kl. 19:19

28 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Aha eigum við að fara á hestbak eða erþað

Edda Agnarsdóttir, 29.9.2007 kl. 21:13

29 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Eigum við að fara á hestbak eða er það bara spilamennska?

Djöf... langar mig á hestbak - er ekki hægt að redda því?

Edda Agnarsdóttir, 29.9.2007 kl. 21:15

30 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Athuga það hjá íshestum, annars tekuru bara kústinn með þér Edda mín.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 30.9.2007 kl. 00:45

31 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Æi kústar eru svo leiðinlegir beiti þeim á hverjum degi! En hestar eru guðdómlegir - mig langar á hestbak.

Edda Agnarsdóttir, 30.9.2007 kl. 13:57

32 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hæbb og takk fyrir góðar kveðjur. 

9. nóv. er fínn dagur.  Ef flesta langar á hestbak... getum við byrjað á því hjá Íshestum, kannski kl. 17.00,  fengið okkur svo að borða og svissað síðan yfir í norsku og tekið spil.  Ha ? 

Anna Einarsdóttir, 30.9.2007 kl. 20:14

33 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Subert, så synes jeg vi lige godt skal snakke dansk på söndager

Ingibjörg Friðriksdóttir, 30.9.2007 kl. 20:19

34 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Æltaði að segja, velkomin heim, og var gaman í réttunum?  Voru einhverjir gleðigjafar á svæðinu?

Ingibjörg Friðriksdóttir, 30.9.2007 kl. 20:20

35 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Það var virkilega gaman að smala og draga í dilka....fengum sumarveður.  

Anna Einarsdóttir, 30.9.2007 kl. 20:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 342770

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband