Gillí - kveðja.

 

Elsku Gillí mín.

Ég skrifa þér bréf, vegna þess að við ræddum um líf eftir dauðann, þú og ég, og vorum sammála um að svo hlyti að vera.  Áttum samtal um sálina og ódauðleika hennar.  Að hafa þá trú er hjálparmeðal í andstreymi og áföllum lífsins.   

Mínar fyrstu minningar um þig voru þegar ég heyrði einhvern segja að þú borðaðir flugur þegar þú varst lítil.  Það fannst mér, líklega sex ára gamalli, alveg stórmerkilegt og ég horfði á þig með andukt.  Aðeins síðar á ævinni fékkstu gleraugu.  Þau voru líka tilefni mikilla heilabrota og fannst okkur krökkunum þú verða ögn merkilegri en við, með þennan útbúnað.  Ekki þekkti ég þig svo náið á þessum árum, enda þriggja ára aldursmunur og á meðan þú lékst þér við Þorbjörgu, lék ég við Rósu, Halldór og Þorgeir.  Tíminn leið, við urðum eldri og áttum okkar líf á sitt hvorum staðnum.

Árið 2000 stofnuðu þú og Palli, Þorgeir og fleiri, Golfklúbb Guttorms tudda.  Þar byrjuðum við að endurnýja kynnin Gillí mín.  Við hittumst í keilu og billjard, badminton, félagsvist og á árshátíðum.  Þarna naust þú þín vel enda varstu sérlega góð í hinum ýmsu íþróttagreinum og við hlógum oft að miklu keppnisskapi hvorrar annarrar.  Þú lifðir mjög heilbrigðu lífi og það varst líka langoftast þú sem hampaðir Stássuhorninu, verðlaunum fyrir bestan samanlagðan árangur í íþróttum ársins innan Guttorms.  Þú varst gjaldkeri og skipulagðir árshátíðir og varst ætíð hrókur alls fagnaðar.  Það má segja að í Golfklúbbnum hafi notið sín flestir þínir bestu eiginleikar; dugnaður, kraftur, skipulagshæfileikar, leikni í hinum ýmsu íþróttagreinum, glaðlyndi og gott skopskyn.  Þú varst næstum alltaf brosandi þínu fallega brosi. 

.

Gillí_brudkaup

.

Mest kynntumst við þetta síðasta ár Gillí, þegar þú leiddir mig inn í heim bloggsins.  Á þeim vettvangi áttum við nánast dagleg samskipti.  Gefandi, skemmtileg samskipti.  Þú hafðir mjög ákveðnar skoðanir á málum og að mínu mati heilbrigðar, varst fljúgandi góður penni og kímnigáfan skein í gegn.  Þú skrifaðir um baráttu þína af þvílíku æðruleysi og svo heiðarlega, hreint og beint, að eftir var tekið.  Þú varst gríðarleg baráttukona Gillí mín og fyrir það áttu aðdáun margra. 

Ferðinni okkar til Barcelona í sumar, gleymi ég aldrei.  Sú ferð verður staðsett með öðrum perlum í minningasjóði okkar samferðamannanna.  Í minningasjóðnum á brúðkaupsdagur ykkar Palla líka heiðurssess, sem og kvöldið sem við sátum, þú og ég, og ræddum um lífið, tilveruna og dauðann. Nú kveð ég þig í bili Gillí mín, með miklum söknuði.  Þú varst einstök í þessu lífi.  Við hittumst svo síðar.

Stórt knús frá lítilli frænku. 

.

Gillí_blogg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Þetta eru falleg orð til yndislegrar frænku.

Ragnheiður , 14.11.2007 kl. 17:12

2 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Elsku Anna,

Ég bæði samgleðst og samhryggist.  Þú skrifar fallega um fallega frænku, og ég veit það af eigin raun að það er fátt betra en að eiga góða að.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 14.11.2007 kl. 18:30

3 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Einstaklega fallega skrifað hjá þér um yndislega konu. Mér vefst eiginlega tunga um tönn núna en hugsa þess meira. Vona að þið fáið styrk til að komast yfir erfiðasta hjallan  á næstunni

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 14.11.2007 kl. 18:58

4 Smámynd: Hugarfluga

Mikið var þetta fallega skrifað, Anna. Það er ekki spurning að þið frænkur munið hittast síðar ... hvar og hvenær er í höndum æðri máttarvalda. Ég veit líka að hún fylgist með sínum og heyrir og sér. Talaðu bara við hana, því hún er nálæg, þó núna sé hún ekki sjáanlega. Risaknús til þín og þinna. 

Hugarfluga, 14.11.2007 kl. 19:28

5 Smámynd: Þórdís tinna

Ég samhryggist þér innilega - mikið eru þetta falleg orð um fallega sál - Guð veri með ykkur öllum...

Þórdís tinna, 14.11.2007 kl. 23:30

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Vel gert Anna mín og innilegar samúðarkveðjur til þín.

Edda Agnarsdóttir, 15.11.2007 kl. 13:18

7 identicon

Falleg orð, fallegar myndir af fallegri konu.

Sjáumst síðar, Anna mín.

kv. Þorbjörg.

Þorbjörg (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 11:09

8 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Fallegt blogg Anna. Ég komst ekki á jarðaförina en trúi því líka að það sé til "líf" eftir þetta "líf".  Amk er örugglega til eitthvað rosalega merkilegt í sambandi við lífið og dauðann sem við vitum ekki um!! Eitthvað meira en bara efnafræði.

Þorsteinn Sverrisson, 16.11.2007 kl. 17:57

9 Smámynd: Erna Bjarnadóttir

Fallegt blokk og myndir af henni Gillí, Kær kveðja Erna

Erna Bjarnadóttir, 17.11.2007 kl. 13:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 342766

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband