Maður er það sem maður hugsar.

.

Þegar snjór er yfir öllu og dagarnir dimmir, er gott að grafa upp mynd af fögru íslensku landslagi, tekna að sumarlagi......... og láta sig dreyma.  Sleeping

Ég vildi gjarnan vera stödd þarna, með tjald við árbakkann,  liggja í grasinu og  skoða himininn, lygna svo aftur augunum og anda að mér fersku fjallaloftinu.   That is life !  Joyful

.

iceland


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Já svipað hjá mér Anna.... Nema það er svo MIKIL PÚSTRÖRLYKT.. því ég dreg alltaf upp myndir af MIÐBÆNUM

Brynjar Jóhannsson, 26.1.2008 kl. 17:57

2 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Hvar eru fjöllin svo fjólublá, hvar er grasið svo iðagrænt og áin hvít sem fitusprengd mjólk?

Ásgeir Kristinn Lárusson, 26.1.2008 kl. 19:15

3 Smámynd: Brattur

... það væri ekki verra að rölta meðfram árbakkanum í góðum félagsskap og kasta flugu fyrir silung... himneskt...

Brattur, 26.1.2008 kl. 19:42

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég giska á að myndin sé úr Fljótunum.  Viti einhver betur, væri gott að fá komment um það. 

Anna Einarsdóttir, 26.1.2008 kl. 19:49

5 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég er ekki að grínast... ég fékk tár í augun.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 26.1.2008 kl. 19:55

6 identicon

Þetta segi ég alltaf líka, ég get endalaust skoðað sumarmyndirnar mínar og látið mig dreyma og hlakka til

Maddý (IP-tala skráð) 26.1.2008 kl. 20:39

7 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Svona svona, þetta er bara smá vetur.

Þið getið alveg beðið fram á vor, farið bara að hníta flugur og skoða útilegubúnaðinn, þannig að þetta verði klárt.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 26.1.2008 kl. 22:59

8 Smámynd: Hugarfluga

Oooh já, nú dreymir mann um grænar grundir og hlýjan andvarann. Falleg mynd.

Hugarfluga, 26.1.2008 kl. 23:07

9 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Ohhh hvað ég hlakka til sumarsins....... gönguferðir um hálendið með nesti og nýja skó í góðum félagsskap..... er að spá í að ganga á Sveinstind í sumar og þar í nágrenni...mmmmm .... himneskt........ þessi mynd er allveg að ná stemningunnil....

Fanney Björg Karlsdóttir, 26.1.2008 kl. 23:40

10 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Akkúrat rétta hugarfarið Anna. Til hvers að flatmaga í sandi og sól, eldrauður og brunninn um allan kropp og löðrandi í olíudrullu með sand í rassinum. Nei takk, má ég þá frekar byðja um að komast í svona dal. Eins og Brattur, tæki ég flugustöngina með. "That´s life"!

Halldór Egill Guðnason, 27.1.2008 kl. 00:16

11 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Yndisleg tilhugsun.

Bjarndís Helena Mitchell, 27.1.2008 kl. 00:36

12 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Yndisleg mynd, fær mann til að dreyma og muna hvað landið er fallegt. Bleikjan nánast spriklar fyrir augum mér. Það vantar hins vegar hrossin inn á myndina

Kannski það sé til í þeim ráðum sem hér komu fram að ofan frá Þorsteini Val; að fara að hnýta flugur!

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 27.1.2008 kl. 00:43

13 Smámynd: Kristín Snorradóttir

Æði og enn betra ef hægt er að dífa í sprænuna þarna

Kristín Snorradóttir, 27.1.2008 kl. 10:24

14 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ef þetta er úr fljótunum við siglufjörð.. þá er þetta örugglega fyrir neðan stíflu.. blogg frændi minn Gunnar Þór Jónsson.. ætti að geta staðfest það.. því hann er alin upp þarna.

Brynjar Jóhannsson, 27.1.2008 kl. 10:54

15 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Yndisleg mynd - þarna væri hægt að búa til flotta virkjun!!!!  Á ég að ýta á Senda? ef ég geri það hendir Anna mér líklega af bloggvinalistanum, á ég eða ekki.... já ...nei.... jú ég prufa að Senda;;;;;

Þorsteinn Sverrisson, 27.1.2008 kl. 14:26

16 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Gott grín Þorsteinn.    Ég hendi þér aldrei út - fyrsta kommentaranum mínum.  Nó vei hósei. 

Anna Einarsdóttir, 27.1.2008 kl. 15:01

17 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Hjúkk ég slapp...  Anna er með stórt hjarta og breitt bak!!
Meira grín síðar.  Er of þreyttur í kvöld eftir erfitt þorrablót í gær,,,

Þorsteinn Sverrisson, 27.1.2008 kl. 20:31

18 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Rosalega flott mynd.  Tröllaskaginn alltaf smart.    Þarna hefði verið flott að mynda Hringadrottinssögu.

Marinó Már Marinósson, 28.1.2008 kl. 00:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 342713

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband