Flúðasiglingar.

 

Þeir sem hafa lesið bloggið mitt í ár...... (eru virkilega einhverjir sem hafa nennt því ?  Gasp )........ vita að ég fór í Jökulsá Austari í fyrrasumar.  Það var mikil svaðilför fyrir drulluvatnshrædda mig.  Crying.  En svakalega gaman eftirá.

.

Um síðastliðna helgi lá síðan leið mín í Jökulsá Vestari.  Hún er kettlingur við hlið hinnar Austari.  Jáhhhh...... þetta skyldi nú vera létt verk og löðurmannlegt og bara hundskemmtilegt.  Smile

Sem það og var. 

Að mestu leyti.  FootinMouth

.

Auðvitað bjó ég að reynslu síðasta árs, kunni áratökin, vissi við hverju var að búast.  Cool

Við sigldum ógnarskemmtilegar flúðir og léttar bárur í mögnuðu landslagi.  Það munaði minnstu að ég syngi af einskærri gleði.  Lét það þó ekki eftir mér af tillitssemi við aðra bátsverja.  Vildi ekki vera ein eftir í bátnum.  Wink

.

Eftir nokkra stund ákvað ég að leika hetjuna sem ég aldrei var í fyrra.  Ég lét mig gossa afturábak ofan í ána.  Díííí hvað ég hefði þótt svöl,  ef ég hefði ekki komið uppúr vatninu með angistarsvip á fésinu.  Ég náði ekki andanum.  Shit !  Ég gleymdi að loka munninum áður en ég hvarf í djúpið og gleypti líklega eina átta millilítra af Jökulá.  Reyndi að anda en ekkert gerðist........ allir í bátnum sáu að ég var skrítin á svipinn...... ekkert hetjuleg.  Loks náði ég andanum með öflugu innsogi.

Ekki kúl.  GetLost

.

Enn var þó von.

.

Við áðum við klett, þriggja metra háan og til þess ætlaðan að hoppa fram af honum.  Nú varð ég að rétta af minn hetjuhlut og hoppa.  Það gerði ég og tókst að svamla í land af eigin rammleik. 

Vei !  Smile

.

Síðan tók við sigling á léttum bárum.  Voða gaman þangað til............ Crying...... það gerðist sem aldrei hefur gerst í Jökulsá Vestari.  Báturinn festist í hringiðu.  Í stað þess að sigla yfir eins og hinir bátarnir, stoppaði okkar bátur.  Þvílíkur kraftur í vatninu.  Okkur var sagt að róa.  Árin fór ofan í en þótt maður tæki á öllu öllu öllu.... sem til var, haggaðist ekki árin í þessum ógnarkrafti.  Báturinn virtist ætla að fara á hvolf.  Nú var ég orðin hrædd.  Crying  Nýbúin að næstumþvídrukkna og sá fyrir mér að ef ég sogaðist ofan í þennan hringiðupoll, væru dagar mínir taldir.  Ég myndi einfaldlega deyja úr hræðslu.  W00t

.

En..... þá losnaði báturinn.  Hann snerist í hálfhring og festist svo aftur...... og Brattur fauk fyrir borð.  Frown  Á þessu augnabliki held ég að heilinn í mér hafi farið í verkfall.  Ég neitaði að hugsa lengra.  Eftir nokkrar mjööööööög langar sekúndur,  skaust Brattur aftur upp á yfirborðið undir bátnum................. og við það losnaði báturinn.  Happy

Brattur er hetjan mín.  Joyful    Brattur orti um þetta vísu...... sjá hér.

.    

Jökulsá Vestari er bara helv**** skemmtileg svona eftirá.  Grin  Ef satt skal segja hentar hún öllum.  Passið bara að taka hrakfallabálkinn mig ekki með.  Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þið eruð meiri krúttin; - og hetjur hafsins .... eða árinnar, réttara sagt! Gott að þið eruð lífs en ekki liðin.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 27.5.2008 kl. 20:36

2 Smámynd: Ragnheiður

ég hef lesið alveg síðan áður en þú fórst í þessa svaðilför...ég man enn hvað ég var taugaveikluð yfir þessu sulli á þér kona.

Ragnheiður , 27.5.2008 kl. 21:38

3 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Skil ekkert í þér Anna, að henda Bratt í ánna til að losa bátinn, hann á ekki von á góðu næsta vetur, ætlarðu að henda honum undir bílinn ef þú festir þig í snjó, svona til að losa bílinn.

Aumingjans maðurinn, þvílík meðferð.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 27.5.2008 kl. 22:20

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

  Segðu Þorsteinn.  Það er ekki verandi með mér, nema vera bara töluvert Brattur.  Takk fyrir hugmyndina varðandi losun á bíl. 

Ragnheiður.  Ég held að þú hafir byrjað að lesa bloggið mitt áður en ég fór að skrifa það.  Mér finnst ég alltaf hafa þekkt þig. 

Guðný Anna og Gréta.  Ég kallast seint hetja í vatni...... er bara of vitlaus til að forðast það að fara í riverrafting.    En Brattur má fá orðuna.

Anna Einarsdóttir, 27.5.2008 kl. 22:46

5 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég les með glöðu geði bloggið þitt...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 28.5.2008 kl. 05:31

6 Smámynd: halkatla

ég verð alltaf svo hrædd þegar ég dett inní svona frásagnir enda er þetta hin ægimesta svaðilför í mínum augum og þú algjör hetja að hafa meikað hana.

halkatla, 28.5.2008 kl. 10:50

7 identicon

Mikið er ég glöð að þú skyldir lifa þessar Jökulsárhrakfarir af ásamt þínum heittelskaða.!

Það er aldrei nóg af almennilegu fólki í veröldinni.       

aslaugben (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 11:46

8 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Það má með sanni segja að Brattur sé „Önnum kafinn“ ;)

Ásgeir Kristinn Lárusson, 30.5.2008 kl. 08:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 342766

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband