Vinna.

 

Það er búið að vera allt of mikið að gera hjá mér síðan ég hætti í vinnunni.  Moka burtu forljótu trjábeði, hreinsa burt allan njólann og rabbarbarann á bakvið hús (eða það var eiginlega sonur minn sem gerði það allt en ég varð samt frekar þreytt af að horfa á hann Whistling), taka til og þvo þvott og svoleiðis, fylgja dótturinni á fótboltamót,  fara í húsmæðraorlof,  út að ganga með kisa, lesa bók, liggja í sólbaði og svo framvegis.  Já og svo gekk ég 14 kílómetra með hestana einn daginn.  Það þarf að viðra þá og koma þeim í þjálfun.  Pouty   

Jasso.  Happy

.

DSC01473

Ég segi eins og einn vinur minn;

Það er bara eitt sem ég sé eftir í lífinu.  Ég sé alltaf eftir því að hafa byrjað að vinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Sko ég er að vesenast með EINN njóla, en ætla að myrða fleiri en hann þegar ég legg af stað í verkið. Í dag hefur verið svo hvasst í kringum kærleiksheimilið að við njólinn hefðum fokið út á Bessastaði, ekkert varið í það, forstjórinn er ekki heima.

Var að spá í að festa mig í Kelakeðju en þá fattaði ég það, hún nær ekki útað vandræðanjólanum ! Það fauk sú hugmynd

Ragnheiður , 28.6.2008 kl. 20:33

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Mér líst ekki á veðrið ef hugmyndirnar þínar eru farnar að fjúka. 

Anna Einarsdóttir, 28.6.2008 kl. 21:50

3 Smámynd: Ragnheiður

Sagði ég það ekki ? það er hvasst hérna á Álftanesinu skoh

Ragnheiður , 28.6.2008 kl. 22:20

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

héddna......eiga hestarnir ekki að labba með þig?

Hrönn Sigurðardóttir, 28.6.2008 kl. 22:29

5 Smámynd: Ragnheiður

Iss ekki að marka Önnu, snýr öllu á hvolf. Háttar hestana oní rúm og bindur krakkana á bás á kvöldin...

Ragnheiður , 28.6.2008 kl. 22:31

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Spurning að við förum og sýnum henni hvernig á að gera þetta? Binda krakkana almennilega og segja hrossunum sögur..........

Hrönn Sigurðardóttir, 28.6.2008 kl. 22:40

7 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

super friend Hrikalegur kraftur í þér alltaf, Anna mín!  -En er hann svo brjálæðislega umfram allt eðlilegt að þú hafir kosið að ganga 14 kílómetra með hestana að auki? -Af hverju reiðstu þeim ekki? -Amk einum þeirra?

horse -Eða hefurðu ekki hugmynd til hvers þeir eru notaðir?

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 28.6.2008 kl. 22:41

8 Smámynd: Ragnheiður

Hahaha myndin hjá Helgu Guðrúnu er æði, beint í mark

Ragnheiður , 28.6.2008 kl. 22:44

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Sko.    Í vetur lánaði ég hestana mína og þeim var svo skilað ójárnuðum.  Þar sem ég ætlaði með þá í haga.... og á enga kerru...... og nenni ekki að sníkja kerru, þá gekk ég bara með þá........ svona dagleið.  Þeir höfðu gott af því, ég hafði gott af því,  svo þetta hlýtur að hafa verið bara gott hjá mér.   

Ragnheiður, þú reynir að hafa vit fyrir mér ef ég fer að bulla eitthvað.   

Anna Einarsdóttir, 28.6.2008 kl. 22:48

10 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já, gleymdi að segja;  frábær mynd af mér þarna.    Hvað ætli maður sé með mörg hestöfl ? 

Anna Einarsdóttir, 28.6.2008 kl. 22:53

11 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Það er greinilegt að hér er Kraftakona á ferð..... og í hennar heimasveit þá reddar maður hlutunum....... einu sinni "þekkti" ég konu sem var mjög svipuð henni Önnu Einars..... hún var ögn lágvaxnari, ögn rauðhærðari...... og hét Lína Langsokkur.......ætli þær séu systur....eða eikkað.....

Fanney Björg Karlsdóttir, 28.6.2008 kl. 23:24

12 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 28.6.2008 kl. 23:28

13 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þið eruð yndislega bilaðar, allar saman. Mikið er gott að vita að maður er ekki einn í heiminum! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 29.6.2008 kl. 01:42

14 Smámynd: Íris Guðmundsdóttir

við erum allavega með eina línu langsokk hérna heima.. hún heitir Soffía
ég held að mamma sé meira svona mary poppins.. hef allavega undarlegan húmor frá henni mömmu minni

Íris Guðmundsdóttir, 29.6.2008 kl. 02:07

15 identicon

Bara kvitta fyrir innlitið,þið eruð óborganlega skemmtilegar,maður veit hvert skal leita ef maður vill brosa út að eyrum, kveðja.

ókunnug (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 02:10

16 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Sammála - vinnan slítur allt líf úr samhengi. Sjálfur er ég að vinna svona 6-7 virka daga í mánuði - og tóri enn!

Ásgeir Kristinn Lárusson, 29.6.2008 kl. 10:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband