Hef ekki hundsvit.

 

Í vor fluttu sonur minn og tengdadóttir að heiman.  Dálitlu seinna varð ég sjampólaus en sá að tendadóttirin hafði skilið eftir sjampó og hárnæringu á baðinu.  Ég hugsaði með mér að hún hlyti að hafa gert það viljandi.  Henni þótti kannski þetta sjampó ekki nógu gott eða eitthvað.  Því tók ég slurk af sjampóinu og notaði það í neyð minni.  Ekki kom ég því í verk fyrr en nokkru seinna að kaupa nýtt sjampó svo ég notaði sjampóið nokkrum sinnum og fannst það bara nokkuð gott.

.

Áðan, þegar dóttir mín er að fara í sund, spyr hún mig hvaða sjampó hún megi taka ?  Ég bendi á sjampóbrúsann góða sem ég hafði notað nokkrum sinnum.  Dóttir mín horfir þá á mig stórum augum og segir;  "En mamma, þetta er hundasjampó."

.

Ég get hikstalaust mælt með Pet Silk Moisturizing Shampoo.  Wink 

.

 

.hundasjampó

.

En viðurkenni jafnframt að ég hef ekki hundsvit á snyrtivörum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þannig að nú ertu með silkimjúkt hár? Þá er það bara ein spurning! Hvers gæludýr ert þú?

Hrönn Sigurðardóttir, 24.8.2008 kl. 17:18

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég er nú bara villidýr. 

Anna Einarsdóttir, 24.8.2008 kl. 17:22

3 Smámynd: Ragnheiður

You animal

Ragnheiður , 24.8.2008 kl. 17:44

4 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Það er ekki hægt að leyna rétta eðlinu endalaust 

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 24.8.2008 kl. 18:20

5 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Svanhildur Karlsdóttir, 24.8.2008 kl. 20:38

6 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þetta var fyndin saga! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 24.8.2008 kl. 20:59

7 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Hlýtur að vera silkimjúkt og flott á þér hárið...ha ha ha!!!

Bergljót Hreinsdóttir, 24.8.2008 kl. 21:40

8 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þú ert brilljant og snilli! Takk fyrir gæskan.

Edda Agnarsdóttir, 24.8.2008 kl. 22:53

9 Smámynd: Aprílrós

Er ekki alveg sama hvaða sjámó maður notar ef það virkar ? Það er spurning að ég fari að nota hvolpa sjampóð sem varð innligsa hjá mér. ;)

Aprílrós, 24.8.2008 kl. 22:58

10 identicon

 HA HA HA HA HA Þú ert alveg ótrúleg!

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 16:47

11 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

ahahaha.... margt heyrir maður nú og sér hér á þessari síðu..... Annars heyrði ég einu sinni um konu á besta aldri sem hafði "uppgötvað" svo helv... ódýrt og gott niðursoðið kjöt.....hún keypti allveg bílfarma af því........sem sagt hundamat....

Fanney Björg Karlsdóttir, 25.8.2008 kl. 17:36

12 Smámynd: Dísa Dóra

Dísa Dóra, 25.8.2008 kl. 18:00

13 Smámynd: Steingrímur Helgason

Einhver ódannaður myndi mázke segja sem svo að það væri líklega einhver 'hundur í tíkinni', því væri sjampóóið pazzandi.

Ekki ég, ónei.

Of gott ariztókratízkt uppeldi...

Steingrímur Helgason, 25.8.2008 kl. 21:46

14 Smámynd: Einar Indriðason

"Roll over!", "Fetch!", "play dead!"

Hmm... virkar ekki.

O jæja.... næsta trix, þá... vera bæði með hundasjampóið og hundamatinn í einu.....

Einar Indriðason, 26.8.2008 kl. 09:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 342771

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband