Það þarf nú að kenna borgarstjóra að kyssa mömmukoss.

 

Það er auðvitað ekkert nema frábært að taka svona vel á móti strákunum okkar - EN.... við hefðum getað gert betur að mínu mati.  Og ..... Whistling ..... Gerum okkar gerum okkar gerum okkar gerum okkar besta !

Hefst þá lesturinn;

Þjóðsöngurinn..... hvar var hann ?  Ég vildi heyra hann í flutningi karlakórs.

Páll Óskar var engan veginn viðeigandi og persónulega fannst mér hann kæla fagnaðartilfinninguna.

--------------

Ef ég hefði skipulagt móttökuna, þá hefðu íþróttafréttamenn tekið á móti strákunum upp á pallinn og forsetinn ásamt sinni ektafrú heilsað köppunum.

Hvað í andsk.... eru stjórnmálamenn að baða sig í ljóma handboltastrákanna ?  Það fer meira en í taugarnar á mér að þegar Ísland vann Spán, voru hvorki meira né minna en 5 sjálfstæðismenn sýndir fagna í fréttatímanum um kvöldið.

Í móttökunni í kvöld voru ráðherrar í röðum á pallinum og borgarstjóri Reykvíkinga með skakkan stút á vörum stóð þarna eins og stútkanna.  Kommon....... þetta er hátíð allrar þjóðarinnar og af hverju var þá ekki oddvita Raufarhafnarhrepps boðið upp á pall ?  GetLost  Ef Ólafur væri borgarstjóri í dag, hefði honum þá verið boðið ?  Ætli það.  FootinMouth  

En nóg af rausi.

Velkomnir heim strákar mínir.  Þið eruð laaaangbestir.  Wizard


mbl.is Ótrúleg gjöf að vera Íslendingur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað var nú að Palla?

Mér fannst hann nú bara skemmtilegur eins og alltaf

Pétur Breki (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 20:32

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Páll Óskar er fínn á diskóteki.  Mér fannst hann bara ekki passa við þetta tilefni.

Anna Einarsdóttir, 27.8.2008 kl. 20:48

3 Smámynd: arnar valgeirsson

hún hanna kyssti alla út í loftið. tók eftir því.

þarf að kennenni að kyssa rétt, og hvernig á að faðma nett. óskar hefur sennilega fengið besta kossinn en hljóp hann uppí um leið.

arnar valgeirsson, 27.8.2008 kl. 21:50

4 identicon

Já sammála með þetta stjórnmálafólk þarna...  kannski bara að hafa þetta um strákana sem stóðu sig með svo mikilli prýði að maður er bara klökkur af stolti. "Gott silfur er betra en Gull" .... það var æði að sjá allt fólkið sem mætti.. þeir eiga skilið allann þann heiður og fögnuð sem þeir fengu í dag   .... Eitt annað... hvað finnst þér um að íslenska ríkið styrki fólk til að ferðast á leiki?? Eigum við að sækja um eða hvað??? ég heyrði að Þorgerður Katrín væri svo sannarlega hlynt því... hún allavega var að prófa kerfið og fór tvisvar sinnum.

Kristin Sif (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 22:58

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Rétt hjá þér vinkona...... þar fuku 5 milljónir á einu bretti. 

Mér finnst bara síðasta sort þegar pólitíkusar sjá ekki sóma sinn í því að leyfa strákunum að njóta sín.  Þorgerður Katrín og Hanna Birna "þurftu" að kyssa strákana tvisvar sinnum..... fyrst á Kjarvalsstöðum og síðan á Lækjartorgi.  Sýndarmennska !

Anna Einarsdóttir, 27.8.2008 kl. 23:05

6 identicon

já, alveg hreint góður punktur hjá þér, þetta var frábær fagnaðarstund, rosalegur árangur þessa drengja, æðielegur dagur fyrir þá og okkur öll, en aðallega þá og æðislegt að framkvæma þetta allt í dag fyrir þá, þeim til heiðurs!!!! ...en ég hugsaði þetta líka í miðri þjóðarstoltsvímunni, hvað er allt þetta pólitíkursarfólk það gera þarna, ekki viðeigandi að mínu mati, borgarstjórinn my arse og ríkisstjórnin öll... og..."hvað er sjálfstæðisflokkurinn endalaust að pota sér"það flaug í gegn um huga minn í dag, don´t know why....og já, Hanna Birna þarf eitthvað að hugsa um kossastílinn, hehe, ekki fallegt, frekar fráhrindandi...en það voru sumir ekkert að sleikja þetta fólk í bak og fyrir, minn maður Óli Stef gerði það ekkert, góður!! Ó ég hreinlega elska hann!!

Áfram íslensku handknatleiksmenn!!

alva (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 00:11

7 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ég horfði á allt í varpinu og gat bara ekki séð neitt að neinu, var svo jákvæð, glöð og stolt. Hálfgrátandi þegar þer fengu orðurnar.

Edda Agnarsdóttir, 28.8.2008 kl. 00:27

8 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

það hefði vissulega mátt fækka í ráðherraliðinu. þau tóku allt plássið á sviðinu svo hetjurnar urðu að standa úti í horni.

nóg hefði verið að hafa Óla og Dorrit (hvar var hún?) og kannski forsætis- eða menntamálaráðherra.

svo er alveg bannað að dissa Palla  það hefði verið fínt að fá hann til að syngja þjóðsönginn

Brjánn Guðjónsson, 28.8.2008 kl. 13:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 342770

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband