Er eðlilegt að kjararáð sé skipað af þeim hinum sömu og þeir síðan ákvarða laun fyrir ?

 

Þetta er pólitíski dagurinn minn í þessum mánuði. Cool   Vonandi sá eini.

Hér er frétt sem vakti athygli mína. 

"Kjararáð ákvað í lok ágúst að hækka laun forseta Íslands, alþingismanna, ráðherra, hæstaréttardómara og héraðsdómara um 20.300 kr." 

og í lok fréttarinnar;

 "Kjararáð er skipað fimm ráðsmönnum og fimm til vara. Þrír eru kosnir af Alþingi, Hæstiréttur skipar einn og fjármálaráðherra einn.

Ok, leggjum nú saman tvo og tvo.  FootinMouth  Kjararáð ákvarðar laun fyrir "vinnuveitanda" sinn.  M.ö.o.  ef Kjararáð skammtar naumt, er það í hendi launþeganna (alþingismanna, hæstarréttar.....)  að velja nýja aðila í Kjararáð til að ákvarða launin næst.

Nú er ég ekki að ýja að því að Kjararáð starfi ekki heiðarlega.  Mér finnst bara með ólíkindum að þetta ráð sé skipað af sömu aðilum og ráðið á síðan að fjalla um.

Gefum okkur að Kjararáð sé vel launað.  (sem ég hef ekki hugmynd um)  Þá hefur ráðið hagsmuni af því að hækka laun "vinnuveitanda" sinna nógu mikið til að "vinnuveitendurnir" séu ánægðir með ráðið og ráðið haldi þá stöðu sinni til að þéna áfram góð laun.

Jahérna.  Shocking  


mbl.is Laun æðstu embættismanna hækkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Alveg hárrétt athugað hjá þér, Anna. Þeir eru ekkert að skera við nögl við sjálfa sig, blessaðir. 

Lára Hanna Einarsdóttir, 18.9.2008 kl. 22:23

2 Smámynd: Einar Indriðason

Ekki bara það að þeir skeri ekkert við nögl við sjálfa sig... (og eru dómarar í sjálfs síns málum) ... Þeir ganga oft á undan með "góðu fordæmi".  Eða... "reka lestina", aftur, með "góðu fordæmi".

Með öðrum orðum, og þetta hefur gerst oft og iðulega hjá þeim.  Þegar aðrir hækka, (eins og t.d. ljósmæður), þá er Kjaradómur ekki seinn á sér að hækka við sína, og ekki krónuhækkun, nei... Þeir hækka sig um sömu prósent og lægstu launþegarnir ná að berja í gegn.  (Sem þýðir, að laun í vasann hjá kjaradómi hækkar í raun meira, í krónum talið.)

Einar Indriðason, 19.9.2008 kl. 00:05

3 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 00:33

4 Smámynd: Íris Guðmundsdóttir

Of miklar ahyggjur mamma min :P mer finnst tu aettir bara ad gerast forseti.

annars vildi eg bara segja goda nott og eg elska tig

Íris Guðmundsdóttir, 19.9.2008 kl. 03:34

5 Smámynd: Erna Bjarnadóttir

Skörp ertu Anna

Erna Bjarnadóttir, 19.9.2008 kl. 08:25

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hvar ætli maður sæki um vinnu í Kjararáði?

Hrönn Sigurðardóttir, 19.9.2008 kl. 15:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 342763

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband