Það var SAMT kleinubragð af kleinunum.

 

Nennið er horfið.  Gasp

Ég hef ekki nennt að blogga.  Kannski ekki skrýtið þar sem ég vinn á tveimur vinnustöðum þessa dagana og er þess á milli auðvitað hin besta húsmóðir.  Cool  Var ég búin að segja að ég gerði kleinur um daginn ?  Úúú..... þær heppnuðust allvel miðað við fyrsta kleinubakstur.  Fór enda alveg eftir uppskriftinni.  Á handskrifaðri uppskriftinni stóð 1 2 tsk. kardimommudropar.  Ég horfði á þetta og velti því fyrir mér hvort verið væri að meina hálfa teskeið eða eina til tvær ?  Setti svo eina og hálfa teskeið eftir djúpa íhugun.  Vinnufélögum fannst kleinurnar góðar en þó heldur bragðlausar.  Þær spurðu hversu marga dropa ég hefði sett í deigið sem var 2 kíló.  Mér skilst eftirá að þarna hafi staðið tólf teskeiðar.  Blush  Ég get þó svarið að ég fann kleinubragð af kleinunum.

.

of=50,590,393

.

Katla Gustavsberg köttur er nýbúin að læra að fara út og inn og út og inn og svo aftur út og það er nú rétt hægt að gera sér í hugarlund hversu mikill tími fer í að opna hurðina.  Pinch   Mér líður eins og ég sé sjálfvirkur svalahurðaropnari.  FootinMouth

Ég forðast að hugsa um stjórnmál þessa dagana þar sem ég vil helst vera í góðu skapi.  Wink

Mikið er ég samt ánægð að eiga hæfilega lítið af peningum.  Þá þarf ég engar áhyggjur að hafa af því hvort bankar fari á kollinn.  Ég er sko alltaf að græða.  Joyful 

Allir í fjölskyldunni dafna vel og njóta sín. 

Ég er hamingjusöm í kreppunni.  Happy


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

Duglegur kleinubakari ;)

Aprílrós, 30.9.2008 kl. 00:28

2 Smámynd: Gulli litli

KLEINUR Í KREPPU

Gulli litli, 30.9.2008 kl. 00:35

3 Smámynd: Einar Indriðason

12 teskeiðar?  Er það ekki heil flaska?  (Hvað veit ég svosem... er ekki mikill bakari.)

Velkomin aftur á ról... og það er já fínt að taka pásu stundum.  Og, já... stundum er pólitíkin gjörsamlega óskiljanleg....

Hmm... annars er þetta bara innitskvitt.

Einar Indriðason, 30.9.2008 kl. 08:36

4 identicon

Kleinur eru góðar. 

Það er gott að eiga lítið af peningum og lítið af skuldum.  Tökum slátur og spörum :O)

Kveðja úr snjókomunni á Egilsstöðum, Þorbjörg.

Þorbjörg (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 09:24

5 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Uhmmmm...finn alveg ilminn af kleinunum þínum....

Ég er líka bara voða lukkuleg að þurfa ekki að hafa áhyggjur af innistæðum í bönkum....Nastaq...Dow Jones....verðbréfum og svoleiðis hlutum....

En einhver verður samt að fara að bjarga krónuræflinum...áður en hún deyr út....

Annars bara um að gera að vera glaður og kátur...það er þannig sem maður fær eitthvað út úr lífinu....

Bergljót Hreinsdóttir, 30.9.2008 kl. 18:03

6 Smámynd: kop

Iss, nennir ekki að blogga.

SGON er bara til fyrirmyndar, ég held að hinir bankarnir ættu að snúa sér að kleinubakstri líka. Þar er hvort sem er allt í kleinu.

kop, 30.9.2008 kl. 20:55

7 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Vegna báglegs ástands í samfélaginu.. hef ég ákveðið að fjárfesta í 75% hlutabréfum hlutabréfa í sparisjóðum grínista ... og  kaupa þá á 3 fimm aurabrandara...

Með kærri kveðju..

GLEÐIBANKASTJÓRI ÍSLANDS

DR BRYLL

Brynjar Jóhannsson, 1.10.2008 kl. 23:01

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Jasso. 

Sparisjóður grínista er gjörsamlega verðlaust fyrirbæri.  En samt...... ef maður hugsar aðeins málið......  .... 

.

............ ég er enn að hugsa 

Ok, Dr Bryll.  Ef þú getur lagt fram 3 fimmaura, eða samtals 15 aura og sleppt bröndurunum, þá áttu 75% hlut í sjóðnum. 

Anna Einarsdóttir, 1.10.2008 kl. 23:18

9 Smámynd: Hugarfluga

Nei, fjandinn hafi það ... ekki 12 tsk!!??!! En hvað veit ég .. hef aldrei steikt kleinur sjálf. Knús á þig og þína hamingju.

Hugarfluga, 2.10.2008 kl. 16:13

10 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Nei..

frekar borga ég með þremur fimmaura bröndurum sem eru svo vonlausir að þeir eru ekki frásögum færandi og þar aðleiðandi þarf ég ekki einu sinni að segja þá.  

JIBBÍ... Ég er komin með 75% eignarhlut í sparisjóði grínista.

MEð kærri kveðju..

Gleðibankastjóri íslands og 75% hluthafi í sparisjóði grínista

Dr.Bryll. 

Brynjar Jóhannsson, 2.10.2008 kl. 19:43

11 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Heyrðu nú kallinn minn.  75% eignarhlutur kostar 15 aura.  Ef þú getur ekki greitt nákvæmlega 15 aura, þá átt þú ekki neitt í sjóðnum.

Og hana nú. 

Anna Einarsdóttir, 2.10.2008 kl. 21:11

12 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Þrír fimma aura brandarar eru ígildi fimmtán aura . Sér í lagi þegar þeir eru svo leiðinlegir að þeir eru "Drephættulegir" að þeir eru ekki frásögum færandi ....  Og þar að auki .... er ég búin að boða BLAÐAMANNAFUND svo þú verður bara að skrifa undir. því miður vinan sparisjóður Grínista er 75% í minni eigu.

Þú getur sagt að þetta SÉ GLEÐIBANKARÁN ÍSLANDSSÖGUNAR en sama er mér ... 

Með kærri kveðju

Dr Bryll...

gleðibankastjóri íslands.  

Brynjar Jóhannsson, 2.10.2008 kl. 21:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 342713

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband