Að rækta sjálfan sig.

 

Nú þegar líður að vori er vert að huga að vorverkunum.

Það er nú varla að ég þori samt að minnast á helvítis Aspirnar hans Halldórs.  Hann gæti komið hér blótandi og ragnandi og umsvifalaust breytt blogginu mínu í "bannað innan 18".

Ég sleppi því því.

En talandi um vorverkin, þá þarf að huga að ýmiskonar ræktun með vorinu.

Kartöflurnar þrá að komast í mold og eignast helling af kartöflubörnum.  Á síðasta ári fæddust mér bara kartöflu-smábörn.  Bara baunir !   Enda var meðgangan stutt og útsæðið afleitt.   Það má þó alltént hrósa manni fyrir nýjung í matargerð; kartöflusmábaunir.  Whistling

Nú.

Arfinn er ekki eins vitlaus og af er látið og sér sjálfur um útbreiðslu sína.

En ég er þó eins vitlaus og af er látið.  Pouty

Um það getum við verið sammála.

.

Hvernig á ég að rækta sjálfa mig ?

Spurningin er hvort ég eigi að hanga í tré, setja mig niður eða slá mig reglulega ?

En það er ekki nokkur spurning að maður á að rækta sjálfan sig og jafnvel vini sína líka.

.

grow_up_cover 

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ég er enn að reyna að ákveða hvaða trítment ég á að fá, verandi vinur þinn og stefnandi í ræktun. Mér líst ekki á að láta slá mig og ekki vil ég hanga í tré.

Mér líst best á að vera niðursett eða þá vökvuð...

Ragnheiður , 7.3.2009 kl. 15:15

2 identicon

Ræktaðu sálina þá kemst það "jarðneska" í gott form líka

Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 7.3.2009 kl. 16:02

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Til vina minna;  ef ég er ekki nógu dugleg að rækta ykkur, þá er það vegna þess að áburður er óheyrilega dýr. 

Anna Einarsdóttir, 7.3.2009 kl. 16:14

4 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Einu sinni stóð ég í þeirri trú að ræktun gengi út á fjölgun.  Fjölgun afbrigða, betrumbæta það sem til væri og kallaðist það kynbætur.

Bryndillinn  í minni sveit heitir Bjarni Böðvarsson sem er bróðir málfræðingsins snjalla Árna Böðvarssonar. 

Við Bjarni í Þinghól vorum sammála um það að best væri að skoða alla góða kosti þegar fjölga ætti á búinu og velja aðeins það besta.

Hvað þú vilt gera með þessar upplýsingar ræður þú sjálf, en sjálf tel ég ekki þörf á að bæta það sem gott er og finnst þú og það sem þú hefur næst þér býsna gott og tilbúið til ræktunar.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 7.3.2009 kl. 19:44

5 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 8.3.2009 kl. 11:17

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég mundi telja þig tilbúna til neyslu...... :)

Hrönn Sigurðardóttir, 8.3.2009 kl. 22:06

7 identicon

Ha ha ha heheheheh Anna mín,ekki taka upp á því að hanga upp í tréi.??? Það væri gaman að smakka kartöflusmábaunir, HA HA HA hvernin er það matreytt.??? HA HA HA hehehheeheh,þetta verður kannski nýr réttur í Hyrnunni,ekki galið,nýtt frá Önnu,nýr baunaréttur,frábært hjá þér Anna mín,bíð eftir nýju bloggi,alltaf gaman að lesa bloggið þitt.

johannes guðnason (IP-tala skráð) 10.3.2009 kl. 17:51

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þú hlærð svo smitandi hlátri Jóhannes að ég er farin að skellihlægja. 

Kosturinn við kartöflusmábaunir er ótvíræður.  Það þarf bara að sjóða þær í 3 mínútur.  Það telst þó vera galli hversu vandasamt er að skræla þær án þess að kartaflan hverfi með hýðinu.  Hvað varðar sérstakan kartöflusmábaunarétt, það þarf ég aðeins að hugsa betur.   

Anna Einarsdóttir, 10.3.2009 kl. 20:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband