Hver bankar klukkan 10 á sunnudagsmorgni ?

 

Hver bankar klukkan 10 á sunnudagsmorgni, sagði ég við sjálfa mig þegar bankað var nett á útihurðina í morgun.  Ég gekk til dyra í náttfötunum og opnaði.  Fyrir utan stóð heimilishundurinn sem hafði greinilega sloppið út án okkar vitundar.  Ég skimaði yfir svæðið og sá engan annan.  Hundurinn leit lymskulega á mig og rölti svo inn. 

Notaðu dyrabjölluna næst, sagði ég við hundinn.  Wink

.

Fem 

.

Annars er bara sól í heiði og leti í koti í dag........

.

Depill 

.

....... enda Hvítasunnudagur.   Hverjum datt annars í hug að kalla daginn Hvítasunnudag ?  
Það er svo margt sem maður veit ekki.  Woundering

.

Ég hef t.d. ekki hugmynd um hvað varð um bloggfærsluna sem ég skrifaði í morgun.

Hún bara hvarf !

Ef þú finnur bloggfærslu á víðavangi sem eitthvert vit er í...... þá er það örugglega ekki mín.

Alexandra og Natalía.

kettlI kettlIII

 

 

 

 

 

 

 

 

 

                                                                              Alexandra, Tevez, Natalía.  Ronaldo sefur.

 Ronaldo.                                                                

kettlIIIIkettlV

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

   Tevez.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þakka sérlega skemmtilegar myndir frá dýravini greinilega-bara hálfgerður dýragarður kisu.

Örn Jóhannsson (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 12:30

2 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Gæti verið - svona pínulítill möguleiki - að heimilishundurinn sem kann að banka eigi sökina á þessu hvarfi bloggfærslunnar? Ég held að við mannfólkið ættum að hafa það í huga að dýrin hafa lengi ætlað sér að ná yfirráðum á þessari jörð.

Guðmundur St Ragnarsson, 31.5.2009 kl. 13:00

3 identicon

Hvernig væri að fá honum bara húslykil. 

Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 13:24

4 Smámynd: Aprílrós

Fallegar myndir af kisunum og heimilishundinum ;) Eigðu ljúfan dag ;)

Aprílrós, 31.5.2009 kl. 13:33

5 Smámynd: Ragnheiður

Neðsta myndin hér til hægri/vinstri..æj hann situr í bastkörfu er æði. Það liggur við að ég heimti að eiga þennan kisa...ó mæ god.

Við Hrönn erum voða eins-sífellt ruglaðar á hægri vinstri ( ég hef verið að hugleiða að sækja um örorku út á þetta) en spurningin er til þín kæra heilasystir: hvernig ertu í hægri vinstri?

Ragnheiður , 31.5.2009 kl. 19:41

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hægri - vinstri ?    Sko.... þegar ég geng inn í búð erlendis sem er mér á vinstri hönd, beygi ég alltaf til hægri þegar ég kem út aftur.  Sem þýðir að ég fer til baka þaðan sem ég kom.  Sem aftur þýðir að ég villist alltaf !  En ég kann að heilsa með hægri.

Og Ragnheiður...... Tevez er ÞINN  Við komum bara með hann á laugardaginn eftir viku.  Díll.  Handsal.  Punktur.

Anna Einarsdóttir, 31.5.2009 kl. 21:28

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hmmmm...... ég hljóma frek í fyrra kommenti. 

Ragnheiður..... ef þig langar mikið í hann, máttu eiga hann.  Ef ekki, máttu ekki eiga hann.  Betra ? 

Anna Einarsdóttir, 31.5.2009 kl. 21:49

8 Smámynd: Íris Guðmundsdóttir

Mammaaa min eg se ad ter er farid ad hlakka til ad losan vid kettina, en 31 einn dagur! reyndu ad trauka tad fyrir mig og svo mattu henda teim ut daginn eftir ad eg er komin heim!

Íris Guðmundsdóttir, 1.6.2009 kl. 03:19

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ekki alveg rétt Íris mín.  Ég eiginlega kvíði dálítið fyrir að sjá á eftir þeim EN !!  Það er ekki svo gáfulegt að eiga 6 kisur og ef gott fólk falast eftir kisu, þá má ekki láta tilfinningarnar þvælast fyrir sér í ákvarðanatöku heldur verðum við að reyna að koma svona tveimur, þremur á góð heimili. 

En ég lofa þér að það verða a.m.k. tveir eftir þegar þú kemur heim.   

Anna Einarsdóttir, 1.6.2009 kl. 10:16

10 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Elsku Anna, ég get vel skilið að þú sjáir eftir þessum fallegu kettlingum,  en það er jú "ljúfsár" eftirsjá þegar maður veit,  að þeir fara á gott heimili. 

-  Þegar ég var lítil og átti heima þarna rétt hjá þar sem þú býrð.  Þá voru eittsinn komnir 14 kettir undir mín yfirráð, hver öðrum fallegri og skemmtilegri, ég bókstaflega tímdi ekki að láta neinn frá mér.  - En þegar komnir voru 5 hundar að auki, þá varð ég að láta undan.  En ég var barnung þegar þetta var, og núna er ég víst komin með ofnæmi fyrir köttum, svo það er sjálfhætt,  og hef því ekki átt kisu í mörg ár.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 1.6.2009 kl. 13:01

11 Smámynd: Ragnheiður

Hehe þetta er alveg voðalega freistandi Anna...hann er æði!  Haha ég veit samt ekki hvað Steinar segir ef ég ætla að safna kisum...hehe

Þeir fá vonandi gott heimili skinnin

Ragnheiður , 1.6.2009 kl. 13:59

12 Smámynd: Ragnheiður

Frábært að þú ert líka rugluð í hægri og vinstri ..hehe þetta er sami aulans heilinn hahahaha

Ragnheiður , 1.6.2009 kl. 14:00

13 Smámynd: Ragnheiður

Frek? nei ákveðin hehe enda ef þú kæmir með hann þá færi hann ekki aftur..þá væri Steinar unninn með það sama haha

Ragnheiður , 1.6.2009 kl. 14:01

14 Smámynd: Anna Einarsdóttir

  Þú lætur bara vita ef Steinar fellur í freistni.  Hann er algjör gleðigjafi þessi kettlingur.  Ljúfur og góður, ákveðinn og forvitinn.

Anna Einarsdóttir, 1.6.2009 kl. 14:59

15 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég hef ákveðið að héðan í frá fer ég bara í hringi ;) og mig langar líka í kisu - kem til með að láta það eftir mér þegar ég verð komin á elliheimili og man ekki lengur hvort ég á kött eða hund

Hrönn Sigurðardóttir, 3.6.2009 kl. 23:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 342771

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband