Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Svartur dagur.

 

Frú Jónasson var að dauða komin og gerði boð fyrir eiginmann sinn og sagði:  

"Í jarðarförina vil ég að þú farir í bíl með bróður mínum".

Hann:   En ég hef aldrei þolað bróður þinn.

"Það verður svona, sagði frúin.  Þetta er síðasta ósk mín".

Hann:  Þá það, en þetta eyðileggur alveg daginn fyrir mér.

.

.

grizzled-old-man-large 

.


Óþekktarangarnir.

 

Það er svo misjafnt og virðist fara mikið eftir tíðaranda hvers tíma, hvað kallast óþekkt.

Reyndar eru ekki mörg óþekk börn til í dag því þau kallast ofvirk eða eitthvað annað í nútímanum.

Þegar ég var krakki, var óþekkt alþekkt fyrirbrigði.  Þótt ég væri auðvitað stillt.  Halo  

Sérstaklega man ég eftir tveimur drengjum úr minni æsku, sem virtust hafa það að aðaláhugamáli að gera eitthvað af sér.  Annar þeirra var prestssonur.

Einn fagran sumardag komu þessir drengir í heimsókn.  Ég sat í stofunni heima en foreldrar mínir í eldhúsinu ásamt foreldrum drengjanna.  Þótt ég væri bara krakki, fannst mér, á ákveðnum tímapunkti, að þeir væru of hljóðlátir.  Ég stóð upp og gekk fram til að gá að þeim. 

En ég kom of seint !

Þeir voru að snæða gullfiskana mína.

Ég sá í sporðinn á Gulla þar sem hann hvarf upp í munn stráksa.  Frown

.

20080201221653_0 

.

Hvað kallast svona gullfiskaát í dag;  óþekkt, ofvirkni eða einfaldlega svengd ?

 


Svíagrýlan er þá til eftir allt.

 

Sænskur drengur bauð ekki tveimur skólabræðrum sínum í átta ára afmælið sitt. 

Skólastjórinn varð reiður og fór með málið fyrir sænska þingið.

Væntanlega verður lagt fram frumvarp til laga þar sem krökkum verður bannað að bjóða ekki öllum í afmælið sitt.

Annars kemur Svíagrýlan og tekur þau !

.

smahp1 

.

Ég býð hér með öllum í afmælið mitt í mars.  Pouty


mbl.is Barnaafmæli veldur uppnámi í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinna.

 

Það er búið að vera allt of mikið að gera hjá mér síðan ég hætti í vinnunni.  Moka burtu forljótu trjábeði, hreinsa burt allan njólann og rabbarbarann á bakvið hús (eða það var eiginlega sonur minn sem gerði það allt en ég varð samt frekar þreytt af að horfa á hann Whistling), taka til og þvo þvott og svoleiðis, fylgja dótturinni á fótboltamót,  fara í húsmæðraorlof,  út að ganga með kisa, lesa bók, liggja í sólbaði og svo framvegis.  Já og svo gekk ég 14 kílómetra með hestana einn daginn.  Það þarf að viðra þá og koma þeim í þjálfun.  Pouty   

Jasso.  Happy

.

DSC01473

Ég segi eins og einn vinur minn;

Það er bara eitt sem ég sé eftir í lífinu.  Ég sé alltaf eftir því að hafa byrjað að vinna.


Half and half.

 

Við Ragnheiður bloggvinkona hugsum svo oft svipað.  Í dag varð henni að orði;

"Það mætti halda að við séum með sama heilann".

Nú ........ gefum okkur að það sé rétt hjá henni.  FootinMouth

.

Þá kemst ég að þeirri niðurstöðu með mínum takmarkaða heila að.........

....... við séum ekki með heilann, heldur hálfan.

Það skýrir ýmislegt.  LoL 

.

wet_brain 

.


Við höfum allt sem við þurfum.

 

.

sólarlag 

.

Við höfum ægifagurt sólarlag.

Getum drukkið nægju okkar úr tærum fjallalækjum. 

Gengið fjörur, dali, árfarvegi, fjöll, firði og móa.

Öndum að okkur hreinu lofti eftir nýfallinn síðdegisskúr.

Snæðum síðan soðna ýsu með kartöflum og smjöri.

Og elskum hvort annað.

.

Hverjum er ekki sama um fallna krónu ?  Joyful


Óborganlegur.

 

.

WWCALCF1TFCAU7W5ZLCANKOOC3CAG2L6DXCA1JRWVNCA11ZG94CA65F7N9CAY7KFJFCAYF4C68CAQBMN9MCAS6YRPICAEPNS00CATCIHZSCAGPLOKOCA9519F5CA8ZPL5TCA1O52OYCANDNUNFCAWW1UHS

.

Mér finnst þessi svipur á hundinum alveg óborganlegur.

Hann er að segja;  "Á að skilja mig eftir heima"?

.

Hefur þú einhvern tíma sett upp óborganlegan svip ?

En borganlegan ?  FootinMouth

 


Smá leikur.

 

Hvað er það sem er

 

rautt

hvítt

rautt

hvítt

rautt

hvítt

rautt

hvítt

.......


Skin og skúrir.

 

Leiftrandi af gleði ég leik mér í dag
hve lífið er yndislegt, sólríkt og bjartheaven
Mig langar að yrkja eitt örlítið lag
mig langar að segja svo mikið og margt

.

Fjölbreytileikinn svo frískandi er
finnst stundum erfitt en svo líður það     
Lán er að kunna að leika með þér
og líka að halla sér öxl þinni að

.


Væri eitthvað gaman ef alltaf væri sól ?
aldrei þá rigndi, svo tilbreytingalaust
væri það gaman ef alltaf væru jól ?
og gjörsamlega mánudagalaust. 


Vink vink.

 

Ég er búin að vera svo lengi í fríi.

Nú ætla ég að hvíla mig á því um helgina og fara í orlof.  Cool

.

rúm

.


Næsta síða »

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband