Það byrjaði sem ósköp venjulegt spjall......

 

Í morgun vorum við að spjalla, ég og bóndinn, um hversu mikil reiði sé í þjóðfélaginu og hvað sé nú gott að eiga athvarf heima hjá sér þar sem einungis er væntumþykja og hlýja.

Þá opnar hann munninn og segir svo óheppilega "að heimilið sé eins og hreiður".

Hvað segirðu maður ? 

Ertu að kalla mig önd ?   Eða kannski gæs !!!  GetLost  spyr ég frekar ergileg.

Eða viltu kannski meina að ég sé bjúgnefja ?  Angry 

Og svo bara missi ég mig.......

Þú ert nú meiri skarfurinn.  W00t

blárindill,

Algjör fálki,

skrækskaði og skunkur,

Þvílíkur þengilhöfði,

gammur og gleraugnamörgæs.  W00t

.

Þarna þurfti ég að stoppa til að draga andann.

.

Þá segir bóndi minn...... komdu hérna dúfan mín.  Wink

.

birds 

.

Og nú hreiðrum við um okkur í rólegheitunum.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

Aprílrós, 4.12.2009 kl. 22:11

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Furðuföglar !

Steingrímur Helgason, 5.12.2009 kl. 00:08

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahahaha Turtildúfur....

En málið er að það er ómetanlegt að geta komið heim til sín og þar ríki friður og ró. Það er nefnilega ekki svo allsstaðar.....

Hrönn Sigurðardóttir, 5.12.2009 kl. 08:39

4 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Heyri næstum kurrið frá ykkur turtildúfunum hingað suður í Kópavog...njótið rólegheitanna og friðarins...það er ómetanlegt að eiga svona friðsamlegt hreiður....

Bergljót Hreinsdóttir, 5.12.2009 kl. 19:16

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ég er alveg eldklár á því að hann bóndi þinn er Ísari. Sé hann fyrir mér með stélið þanið og útbreidda vængi, róa litlu dúfuna sína með örfáum sérdeilis vel völdum orðum, eins og honum er einum lagið og vefja hana vængjum. Já, það er vissulega gott að eiga sér hreiður og traustan félaga þessa dagana.

Hilsen í Borgarnesið    

Halldór Egill Guðnason, 6.12.2009 kl. 01:53

6 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

gott að vita að fuglalífið blómstri á Íslandi

Brjánn Guðjónsson, 6.12.2009 kl. 02:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 342782

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband