Ekki gott.

Ég held að það sé vond lykt af mér. GetLost 

Fyrir mörgum árum fannst mér allar konur vera í saumaklúbb nema ég og engin bauð mér að vera með.  Þá tók ég mig til - skrýtið orðalag því ég var ekkert í rusli - og stofnaði minn eigin saumaklúbb.  Við byrjuðum sex saman.  Ekki leið á löngu þar til ein flutti og þá var önnur tekin inn í staðinn.  Þá flutti önnur og svo enn ein.  Ég hafði ekki undan að taka inn nýjar fyrir þessar sem fluttu.  Á endanum vorum við orðnar tvær eftir, bara vesæll saumadúett.  Þá hættum við. 

Stundum hefur vinkona mín beðið mig að taka frá fyrir sig sæti á körfuboltaleik.  Það reynist mér afar auðvelt.  Yfirleitt sest ekki nokkur maður á allan bekkinn sem ég hef tyllt mér á.

Á fundum er algjör hending ef einhver situr við hliðina á mér.

Nú er kominn almennur flótti í bloggvinkonur mínar.  Ein er hætt, önnur í pásu og sú þriðja tók sér hlé. Pouty

Og ekki er allt talið upp enn.  Hesturinn minn fælist í hvert skipti sem ég sest á bak.

Ég held að það sé forvond lykt af mér. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Anna mín, þú ert bara svo stór kona....

Gillí (IP-tala skráð) 17.4.2007 kl. 22:55

2 Smámynd: Arnfinnur Bragason

Tja, ekki finn ég neitt vonda lykt þar sem ég sit

Arnfinnur Bragason, 17.4.2007 kl. 22:58

3 Smámynd: Björn Heiðdal

Ég finn vonda lykt hérna. Alveg svakalega vond táfýlulykt. Það mætti einhver fara í hreina sokka!

Björn Heiðdal, 17.4.2007 kl. 23:54

4 identicon

Hver er munurinn á pásu og hléi ??? (Ég er ljóska)

Hrabba (IP-tala skráð) 18.4.2007 kl. 14:31

5 identicon

Já vinkonur þína finna eitthverja hestalykt af þér þannig þær fælast burt og hesturinn fælist útaf vinkonu lyktinni.. Fundarfólkið fælist útaf körfuboltaáhugalyktinni þinni og körfuboltafólkið fælist útaf fundafólkinu. (þetta á sér allt skýringu)

Geturu ekki valið þér eitthvað eitt og haldið þig við það annars fælist allt burt?

Íris Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 18.4.2007 kl. 15:04

6 identicon

og líklega hafa blogg vinkonur þínar fundið bridge lykt  þú ert alltof fjölhæf

Íris Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 18.4.2007 kl. 15:08

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þú komst með skýringuna Íris mín.  Ég hef svo mörg áhugamál að ég gleymdi að fara í bað

Anna Einarsdóttir, 18.4.2007 kl. 15:14

8 Smámynd: Hugarfluga

Dúllan míííín!! Ef ég er ein þessara manneskja, sem þú átt við, þá hlýtur þú að sjá og vita að þú hefur ekkert með mína svokölluðu "fjarvist" að gera. Nú, ef ég er ekki ein af þeim, þá bara .... hæ

Hugarfluga, 18.4.2007 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband