Ekki til bóta.

 

.

gráni 

.

Gráni var góður hestur

en gekk ekki heill til skógar.

Þá kom dýralæknirinn vestur

og Grána greyinu lógar.

 

........ en hann skánaði ekkert við það.


Sælla er að gefa en þiggja.

 

 Jólahátíðin nálgast og ég, kona á fimmtugsaldri  LoL (sorry, mér finnst það alltaf svo fyndið) hlakka til eins og væri ég á tugsaldri.   Fyrir viku síðan var ég búin að kaupa allar jólagjafir, pakka þeim inn, skrifa jólakort, setja upp jólagardínur og ljós..... en ekki búin að taka til í stóra hornskápnum sem er á stærð við heilt búr.  Minn maður minntist á hvort við ættum ekki að taka til í honum ?   "Það er ekki forgangsatriði" sagði ég "nema þú ætlir að vera inni í skápnum um jólin".  "Og hvenær kemur þú þá út úr skápnum"?  Wink

.

jólakisi 

.

Talandi um jólakort...... ég kem alltaf út í tapi þar.  Ef ég sendi 50 jólakort, fæ ég 29 til baka.  Núna prófaði ég að senda 25 kort en þá er ég bara búin að fá 5.  Happy

Það er lögmál að ef einhver tapar er einhver annar sem græðir.  Eru útrásardollurnar enn að stela frá okkur - jólakortum í þetta sinn ?  Hahhh....... þeir vita ekki ennþá greyin, að sælla er að gefa en þiggja.  Joyful 

Og ég er alsæl með jólakortin mín fimm.

.

 

.

Hvað er svona fyndið ?

.

lol 

.


Orðóheppni.

 

Ég er stundum frekar orðóheppin.

Á laugardaginn hitti ég frænda minn sem ég hef ekki hitt í 15 ár.

Ég kynni þennan frænda fyrir manninum mínum og frændi segir að þeir hafi aldrei sést áður.

Þá segi ég (og bendi á minn mann):  En hann þekkir konuna þína.  Happy

Mér fannst þetta ógurlega fyndið því það hljómaði svo tvírætt.

Þá segir frændi: 

Ég á enga konu.

Blush 

--------

Og það er ekki einleikið hversu virkilega orðóheppin ein kona getur verið.

Einu sinni sagði ég manni að ég hefði hitt pabba hans daginn áður.

Hann sagði það vera frekar merkilegt......... "því pabbi dó fyrir 7 árum".  W00t  

.

ghost 

.


Besti vinurinn.

 

Það hefur lengi verið árleg hefð hjá stórfjölskyldunni að hittast fyrstu helgi í aðventu, baka smákökur og smáfólkið málar piparkökur.  Fegurstu piparkökurnar fá vegleg verðlaun og er fjöldi verðlauna ávallt jafn fjölda þátttakenda.

Þessi viðburður virðist hafa spurst út því stundum koma aukabörn með - sem er bara gaman.

Um síðustu helgi kom einn fjögurra ára grallari með í kökubaksturinn.

Ég tók hann tali því nú þarf ég að æfa mig.  Kerlingin sko alveg að verða amma !

Fyrst spyr ég hann hvort hann sé á leikskóla ?

- Já.

Er það ekki gaman ?

- Jú.

Hvað heitir besti vinur þinn ?

- Skarphéðinn.

Er hann skemmtilegur ?

- Nei !

.

best friends

.

 

 

 


Hef ekki bloggað lengi.

 

Var í vinnunni.

 

Ég er svo heppin að hafa nóg að gera.

Þessi er ekki jafnheppinn: 

 

 


Misheyrn.

 

Páll Óskar er duglegur að gefa út diskólög.  

Rétt áðan var verið að spila, að ég held, nýjasta lagið hans á Bylgjunni;

♫♫♪♫  Það get´ekk´allir verið gorgeus - það get´ekki allir verið það  ♪♪♫♫♪

Ég segi við bóndann að mér finnist þetta með skárri lögum Palla en ég er ekkert sérstakur aðdáandi diskólaga í það heila.

Hvaða lag er það, spyr bóndi minn.

"Það geta ekki allir verið gorgeus" svara ég.

Ó segir þá bóndi minn........ég hélt að hann syngi  ♫♫  Það get´ ekk´ allir verið Þorbjörn ♪♫.

.

laughing-buddha-maitreya-cybele-la

.

Mér finnst texti bónda míns betri. 


Quiznos

 

Ég verð að viðurkenna að stundum man ég ekki hvort ég hef sagt frá tilteknum hlutum á blogginu áður - eða hvort ég hef ekki gert það.  Ef ég segi tvisvar frá því sama getið þið farið í rannsóknarvinnu og athugað hvort frásögnin breytist á milli tímabila og hvort ég sé farin að ýkja.  Tounge

Eftirfarandi frásögn er ein af þeim sem ég ekki man hvort ég hef áður sagt frá en atburðir gerðust fyrir rúmlega ári síðan:

Sonur minn og félagar hans voru að vinna mikið á tímabili - daga og nætur.  Mamma gamla ákvað að létta undir með þeim og færa þeim eitthvað matarkyns.

Ég arkaði í sjoppuna (á bílnum) og keypti Quiznos sem þá var algjör nýjung á mínum slóðum.  Pantaði þrjá báta en sá síðar, þegar pöntunin var lögð á borðið, að bátarnir voru í stærri kantinum.  Næstum því skip.  Wink  Jæja, drengirnir yrðu allavega saddir af þessum hnullungum, hugsaði ég.

.

quiznos

.

Mæti ég síðan á vinnustað og kalla á þá:

Strákar !  Viljið þið "kvasínos" ? 

KVASÍNOS, gólaði sonur minn, undrandi og hneykslaður. 

Strákarnir sprungu úr hlátri.  Ég vil eiginlega ekki ræða það hversu lengi þeir hlógu.  

-------------

Þessa dagana hljóma auglýsingar í útvarpinuKvisnos, kvisnos, kvisnos og mér líður eins og verið sé að gera grín að mér - sem ég kann alls ekki að meta.  Whistling

-------------

Ekki er öll vitleysan komin í hús ennþá.  Stuttu eftir að ég færði þeim brauðhleifana, Happy sagði ég systur minni frá atvikinu.

"Veistu bara hvað ?  Ég keypti Kvasínos handa strákunum og þegar ég kom á staðinn, kallaði ég Kvisnos eins og kjáni" !  Og svo hló ég hátt.  


Gáta.

 

Það er orðið langt síðan ég bloggaði síðast og í millitíðinni hef ég m.a. dottið niður á viðskiptahugmynd sem getur ekki klikkað.  Við erum að tala um krem sem borið er á marbletti daglega, vel og vandlega, hægt og rólega...... og eftir 20 daga eru marblettirnir horfnir !  Trúið þið því ?  Happy 

Það er hreint með ólíkindum að enginn hafi fundið upp marblettafjarlægirinn fyrr.

 

Krem_corba_od_graska 

.   

Að öðru, því ég vil síður grobba mig þótt ég finni upp eitthvað sem enginn hefur fundið upp  Cool:

Í morgun fór ég í bakaríið.

Þar heilsaði ég persónu.

Hvaða persónu heilsaði ég ?

Vísbendingaspurningum svarað.

.

unknown_user


Það er samt ekki eins og maður sé alltaf utan við sig.

 

Ertu einhvern tíma utan við þig ?

Ég er oftast fyrir innan en þó kemur fyrir, sérstaklega þegar ég er þreytt, að ég er örlítið utan við sjálfa mig.

Í sumar hef ég unnið mikið og fundist það ógurlega skemmtilegt.  Happy

Eitt kvöldið var ég að ljúka vinnu, klukkan að ganga átta og var að ganga frá og læsa.

Ég tók veskið mitt og gáði í svuntuvasann hvort ekki væri allt með;  veskið, síminn og svona ?

Ekki fann ég símann. 

Á sama tíma var ég að slökkva á öllu, hugsa hvort ég væri að gleyma einhverju, læsa, leita að símanum og tala í símann.

Það liðu örugglega þrjár mínútur áður en ég fann símann.  Pinch 

.

sími 

.


Varúð !!!!!!

 

Það má enginn vera á Þórshöfn um helgina.  W00t

.

vedur 

.


Næsta síða »

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband