Pabbi minn.

Faðir minn heitinn var mjög sérstakur maður.  Hann var bifvélavirki á landsbyggðinni.  Hann var líka hljómsveitargæi, alkahólisti, húmoristi og um tíma geðsjúkur, hann var uppfinningamaður og hann var duglegur. Heart  Ekki var hann gráðugur á fé og það sýndi hann í verki.  Pabbi minn rukkaði menn aldrei óhóflega og ef hann vissi af fátækt, þá gaf hann vinnuna sína.  Ég gleymi ekki þegar hann einu sinni fyllti poka af karamellum til að gefa barnmargri fjölskyldu á næsta bæ en ég, dóttir hans, fékk ekki eina. Frown  Bara þetta litla atvik kenndi mér samt að stundum á maður að fórna einhverju til að gleðja aðra.  Það uppeldi sem ég fékk er svo fjarri íslenskum raunveruleika í dag - þar sem alltof margir keppast við að maka krókinn, græða sem mest....... og skipta sér ekkert af gamla manninum í næsta húsi sem á í basli með að láta enda ná saman.  Og gamli maðurinn er líka bráðum að fara að búa með öðrum manni sem hann þekkir ekki neitt.... þ.e. þegar röðin kemur að honum.  Hann er númer 352 á biðlista.  Þessi gamli maður á mikinn þátt í hagsæld okkar í dag en hvaaa....... eins og okkur sé ekki sama. GetLost  

 

Okkur á ekki að vera sama. Gasp   Nú eru þeir ríku orðnir ríkir á Íslandi og það er bara fínt.  Núna skulum við búa til Ísland sem er gott fyrir alla.  Líka þennan gamla vin minn. Wink   

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Glæsilegt Anna mín. Eina skiptið sem ég hef haft löngun til að kjósa stjórnmálaflokk var þegar Húmanistar buðu fram og ég man ekkert hvað þeir vildu fyrir utan að láta gamla fólkið hafa hundraðþúsund kall á mánuði og ekkert röfl. Þeir buðu ekki fram í mínu kjördæmi þannig að ég gat ekki stutt málstaðinn í verki. Mig langar að ofdekra gamla fólkið, hvort sem það er ríkt eða fátækt af veraldlegum auðæfum. That's all I have to say about that.

Rósa (IP-tala skráð) 21.4.2007 kl. 22:15

2 Smámynd: Arnfinnur Bragason

Flott hjá þér! Gaman að lesa skrif sem minna okkur á uppruna okkar og hverjir hafa skapað þá hagsæld sem við búum við í dag og eins gott að minna okkur á hvernig við þökkum fyrir okkur

Arnfinnur Bragason, 22.4.2007 kl. 23:33

3 identicon

Ef þú heldur svona áfram kýs ég örugglega S 12. maí, en þú verður þá að vera dugleg því ég er sveiflufylgin.

Gillí (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 19:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband