Tek áhættuna.

 

Sko, ég bara verð að segja ykkur frá þessum dóna.  Ef ég verð nöppuð, þrátt fyrir ítrustu varúðarráðstafanir og minnstu stafi í heimi, þá er það versta sem gerist að mér verður lokað.  Skiptirekkiöllumáli.

 

Þannig var að ég gekk niður Römbluna í Barcelona.  Þar er þvílíkt fjölskrúðugt mannlíf.  Það varð þó skrautlegra en ég bjóst við.  Við einn sölubásinn, neðarlega á Römblunni, sá ég afturenda á manni.  Hann virtist vera í sundskýlu einni fata en þó fannst mér skýlan eitthvað voðalega föst í rassaskorunni á manninum.  Ég tók "second look" og sá þá að hann var ekki í neinni skýlu.  Maðurinn var með málaðan rass.  Við erum að tala um ellilífeyrisþega hérna..... gamall karl með málaðan rass !  Ef þetta gerir mann ekki forvitin.  Ég læddist til hliðar við karl og kíkti.  Vúúúúhúúúúúú  Blush  ojojojojojjjj.  Ég sá draslið.  Segi og skrifa, DRASL.  Hann náði næstum niður að hné og neðan í honum hékk allskonar dinglumdangl.  Sjötugur berrassaður karl með typpalokka í massavís. Blush  Allt teygt og togað hálfa leið niður á götu.  Ehhhh, þetta var pottþétt bannað innan 35.  Hef bara aldrei séð annað eins.   Á þessum tímapunkti sneri gamli sér við og fólk byrjaði að taka myndir af honum.  Þá brást karl hinn versti við og greip með báðum höndum fyrir draslið og stóð þarna eins og hann væri að pissa í buxurnar, sem hann gat auðvitað ekki.  Það þarf að vera í buxum til að geta pissað í þær. (svakalega var þetta mikil speki). 

Það leikur enginn vafi á því hjá mér að þetta er það skrýtnasta sem ég hef á ævinni séð.

Sjötugur berrassaður karl á almannafæri með typpalokka.

Og mig langar ekki að sjá svona aftur. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég vissi alltaf að Barcelona væri áhugaverð borg.  Þetta slær arkitektúrnum við.  Er á leiðinni (gleðikarl, slefandi)

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.7.2007 kl. 13:32

2 Smámynd: Brattur

... velkomin heim Anna... mér sýnist þú þurfa á andlegri þerapíu að halda eftir þessa lífsreynslu þína í Barcelóna... prufaðu að hugsa um svani syndandi á vatni með fallegu litu ungana sína... og lestu síðan ljóð eftir mig... þá gleymir þú örugglega "ljóta kallinum"...

Brattur, 7.7.2007 kl. 18:51

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Það var nú annars alveg gjörsamlega frábært í Barcelona.   Ég les öll ljóðin á síðunni þinni Brattur og þykist vera verulega andlega heilbrigð.  Spurning hvort ég sé ein um þá skoðun ?

Anna Einarsdóttir, 7.7.2007 kl. 19:23

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hahaha. Skrýtið að maðurinn var svona assgoti spéhræddur, sprangandi þarna um með slátrið lafandi

Jóna Á. Gísladóttir, 7.7.2007 kl. 19:47

5 Smámynd: Brattur

... já mér sýnist þú bara í þokkalegu standi Anna... hélt kannski að þig dreymdi illa eftir þessa ferð... en Barcelona er borg sem mig hefur alltaf langað til og ég verð bara að komast til fyrr eða síðar... kannski þegar ég verð sjötugur... en ég skal haga mér vel og vera landi og þjóð til sóma...

Brattur, 7.7.2007 kl. 19:47

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já Jóna, það var það fyndnasta.  Maðurinn átti greinilega ekki von á athyglinni.   

Þú passar bara Brattur minn að taka brækurnar með - og nota þær.

Anna Einarsdóttir, 7.7.2007 kl. 19:57

7 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Anna hitti djöfuls dóna,

durg sem var á typpinu.

En það var bara í Barselóna.

Borg sem er á nippinu.

Sæmundur Bjarnason, 7.7.2007 kl. 22:30

8 Smámynd: Gíslína Erlendsdóttir

 Ég fékk að sjá rassinn.....á mynd....

Gíslína Erlendsdóttir, 7.7.2007 kl. 22:32

9 Smámynd: Ragnheiður

LOL ! hhahahaha...oj ekki hefði ég viljað vera þarna. Nú er ég búið að eyða morgninum í að lesa þetta sem er skrifað með minnstu stöfum í heimi. Svona fer forvitnin með mann....

Ragnheiður , 8.7.2007 kl. 11:55

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hva.....og hvar er myndin??? Trúi ekki að þú hafir ekki tekið mynd..nú verð ég að eyða deginum að reyna að ímynda mér útlitið á gamla fyrir neðan mitti og nr alla leið niður í götu með allra minnsta ímyndunarafli í heimi!!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.7.2007 kl. 14:13

11 identicon

Ég var í Barcelona um jólin og labbaði Römbluna fram og til baka og sá marga furðufugla en engan berrassaðann. Algert svindl...

Kannski var of kalt fyrst þetta var í desember. Muna að fara næst að sumarlagi

Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 8.7.2007 kl. 20:50

12 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Æi, ég gat ekki tekið mynd því ég hafði enga myndavél.  EN ég skipaði frænda mínum að smella af.   Sú mynd verður birt um leið og ég næ í hana..... væntanlega með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.   En skíttmeð´ða.

Anna Einarsdóttir, 8.7.2007 kl. 21:45

13 Smámynd: Edda Björk Ármannsdóttir

Ég er með lokk í minni...

Edda Björk Ármannsdóttir, 8.7.2007 kl. 21:55

14 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Glúbbb....

Anna Einarsdóttir, 8.7.2007 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband