Tuð til heiðurs Halldóri.

 

Iss piss !

.

Ég fór til Reykjavíkur með dóttur minni, gagngert til að nýta boðsmiða í Húsdýragarðinn.

Fór fyrst í heimsókn, alveg slök.  Kom í Húsdýragarðinn klukkan 17.05.  og hvað haldiði ?

Húsdýragarðurinn lokaði klukkan 17.00 því það er komin vetraropnunartími.  Angry   Eða ætti maður heldur að segja vetrarlokunartími ?  Og það er ÁGÚST !!

Þetta er nú ekki einu sinni fyndið.  GetLost

Bara svínslegt, asnalegt og hundleiðinlegt.

 

---------------------------------------

 

Á leiðinni heim,  vakti dálítið athygli mína.  Ekki það að hún hafi verið sofandi... menn taka bara svona til orða. 

Ekki í einum einasta bíl, sá ég konu við stýrið og mann í farþegasætinu.

Alltaf karlinn að keyra og konan farþegi.

Hvað er málið ?

Vegur það að karlmennskunni að láta konuna keyra ?  Pinch

 

----------------------------------------------

 

Að öðru leyti er ég í frábæru skapi.  Grin

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég skal nú bara segja það að ég myndi vilja að karlinn keyrði... í fyrsta lagi þá fengi ég að njóta þess að tala meira..! í öðru lagi þá finnst mér svo sexí að sjá karlmann vinna.. (það er vinna að keyra) ... ég fengi að sitja í mínum mestu rólegheitum og skoða munúðarfulla munnsvipinn og hrukkurnar á enninu, ávala nefið og sterka kjálkan (það mætti halda að mín hefði lesið of mikið af ástarsögum) svo væri bara stressandi að keyra með sexí karlmanninn sér við hlið..(ég geri auðvitað ráð fyrir því að minn karlmaður verður hrykalega sexí)  ég myndi setja í bakkgír í staðin fyrir fyrsta..

vetraropnunartíminn í ágúst er til þess kominn að skólarnir byrja ALLTOF SNEMMA.. og ÞAÐ VANTAR SUMARAFLEYSINGARFÓLK ALLSTAÐAR... út af því. Afskakið upphrópanirnar en ég er bara svo pirruð á þessum breytingum á skólatímanum. Það er að fara með þetta þjóðfélag.. Það liggur við að það þurfi að loka bara orðið hjúkrunarheimilum og búðum vegna skorts á starfsfólki. .. bbbrrr...

Björg F (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 21:14

2 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Guð minn almáttugur Björg.  Ég hlýt að vera karlinn í sambandinu, því karlinn minn heimtar alltaf að ég keyri.  Kannski er hann að skoða vangan minn í leiðinni og uppbretta nefið.  Ég ætla að spurj'n þegar hann kemur heim af leiknum Fram- HK.

Mér finnst karlinn minn sexí þegar hann er með hamar eða sög, (gerist varla)

Anna, við skulum bara tala við Villa,  þetta er bara dónaskapur, það er ennþá sumar skv. tímatali.  

Viltu Anna fara á fyrra bloggið þitt og svara mér, ég kom með smá uppástungu varðandi reglur og svo er einn GVV að biðja um að fá að spila með okkur.  VIð látum nú engan spila með okkur er það?

Ingibjörg Friðriksdóttir, 26.8.2007 kl. 21:25

3 Smámynd: kloi

Anna mín, þú hefðir bara getað komið og skoðað mig í staðin.  Ég læt vin minn hann Max alltaf vera við stýrið. Hann drekkur nefnilega ekki.

kloi, 26.8.2007 kl. 22:07

4 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Yfirleitt er það ég sem keyri hér. Sú eina sem rata allt, nánast (leyndarmálið er kortabók í bílnum). Kveðja bílstjórinn.

Bjarndís Helena Mitchell, 26.8.2007 kl. 22:18

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég þarf nú ekki mikið að fara í Húsdýragarðinn.... helmingurinn af bloggvinum mínum eru DÝR.  

Anna Einarsdóttir, 26.8.2007 kl. 22:21

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Kæra Anna.: Það hefur aldrei neitt verið gert mér til heiðurs fyrr, svona á opinberum vettvangi að minnsta kosti. Eg sit hér hrærður og glaður eins og nýkrínd fegurðardrottning, þú veist..."mig langar að þakka"....bla bla bla. og allt það. ( Nema náttúrulega að þetta tuð þitt hafi verið til Heiðurs Halldóri Laxnes eða einhverjum öðrum Dóra) Þetta með húsdýragarðinn er bara skandall, ekkert minna Þakka þér fyrir að tuða um það.Þetta með bílstjórana, ja hvað getur maður sagt? Þetta er svona svipað og með útigrillið, þ.e.a.s. eitthvað sem "er bara svona". Tókstu ekki annars líka eftir því að í flestum bílum er bara ein manneskja og í yfirgnæfandi meirihluta karlmenn. Það er eins og konur hafi ekki þessa þörf fyrir að vera alltaf á ferðinni. Við megum helst aldrei stoppa. Erum eins og hundarnir. Þurfum alltaf að láta líta út fyrir að hafa helling að gera, en oft er það bara hringhlaup um skottið...?

Halldór Egill Guðnason, 27.8.2007 kl. 09:51

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Kæri Halldór.:  Þetta var þér til heiðurs.  Þú ert jú yfirtuðari bloggsíðna.  Það fylgir þó engin kóróna... né böggull skammrifi. 

Anna Einarsdóttir, 27.8.2007 kl. 11:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 342790

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband