Veðrið.

 

Er hægt að blogga um eitthvað annað en veður núna ?  Held varla.  Undir Hafnarfjalli mældust hviður 61 m.sek. um hálfsjöleytið.  Og veðrið á ekkert að vera sérstaklega vont fyrr en um níuleytið en á landið stefnir lægð sem er 934 millibör.  Gasp  Mér verður hugsað til grísanna sem byggðu húsin sín ýmist úr stráum, spýtum eða múrsteini.  Skyldi spýtukofinn minn halda í kvöld þegar úlfurinn blæs ?

Ef ekki, má búast við að ég fjúki út á hafsauga.... en ég held reyndar að hafsauga sé ekki til.  Joyful

Rafmagnið hefur verið að blikka í kvöld og þar sem ég hef nú þegar upplýst alþjóð um hræðslu mína við að vera svöng... get ég svosem alveg eins sagt ykkur að ég eldaði ógurlega hratt klukkan 6 í kvöld.  Ætlaði sko að vera södd ef rafmagnið færi.  Og ég er södd og sæl.  Happy

Héðan verða fluttar nánari fréttir um leið og þær berast.

Sérstaklega ef það verður rafmagnslaust og ég hef ekkert annað að gera.  Sideways


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Hér er ágætis veður, við líklega sleppum við það versta, en rafmagnið hefur blikkað hér líka, svo ef það fer, þá líst mér vel á það að þú bloggir svo ég hafi eitthvað að lesa

Svanhildur Karlsdóttir, 8.2.2008 kl. 19:27

2 Smámynd: Hugarfluga

Rétt hugsað. Það er áreiðanlega hræðilegt að vera svangur í kolniðamyrkri!!

Hugarfluga, 8.2.2008 kl. 20:01

3 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Það er bara vont veður á borganesi... það er sólskyn hér í reykjavík 45 stiga hiti og flestir á Havanaskyrtum..

Brynjar Jóhannsson, 8.2.2008 kl. 20:31

4 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Ef ég blikka rafmagnið, þá er það alveg til friðs ;)

Ásgeir Kristinn Lárusson, 8.2.2008 kl. 20:54

5 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Hér blikkar rafmagnið líka, býst ekki við að blogga eða kvitta ef það fer, mín tölva virkar ekki rafmagnslaus. Hlakka til þegar þetta veður er gengið yfir, þá er svo gott lognið á eftir storminum.

Bjarndís Helena Mitchell, 8.2.2008 kl. 21:05

6 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég er búinn að lesa færsluna en hef ekkert að segja.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 8.2.2008 kl. 21:08

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Rafmagnið fór áðan... í u.þ.b. hálftíma og ég fann ekki tölvuna þegar ég ætlaði að blogga !!

Skoðið þessa síðu:  Það virðist sem mælirinn undir Hafnarfjalli hafi fokið. 

http://www3.vegag.is/faerd/vedurst1.html

Anna Einarsdóttir, 8.2.2008 kl. 22:48

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Snæfellingar, nærsveitamenn !

Ef vindmælir er að fjúka framhjá ykkur, vinsamlegast grípið hann og komið honum aftur í Borgarnes.

http://www.vegagerdin.is/umferd-og-faerd/faerd-og-astand/faerd-og-vedur/vesturland/linurit/st012.html

Anna Einarsdóttir, 8.2.2008 kl. 23:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 342802

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband