Draumurinn.

 

Mig dreymdi draum.  Ég var að vinna og átti að fara með einhvern pakka inn í geymslu.  Til þess að komast þangað, þurfti ég að ganga í gegnum herbergi.  Í herberginu sátu Ingibjörg Sólrún og Jóhanna Sigurðardóttir á fundi.   Ég heilsaði og brosti til þeirra.  Þær litu upp en heilsuðu ekki og héldu bara áfram fundi, eins og ég væri ekki þarna.

Nú spyr ég;  Á ég að kjósa þær aftur, eftir svona framkomu ?  Pouty

.

isg         287-220

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Draumur ? ég hefði kallað þetta martröð. Ég fékk svoleiðis um daginn, dreymdi 2 vinnufélaga. Mætti í vinnu daginn eftir og hundskammaði þá fyrir að elta mig heim. Þeir urðu smá asnalegir á svipinn.

Ragnheiður , 10.4.2008 kl. 18:01

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég myndi ekki kjósa þær í draumaheimi...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 10.4.2008 kl. 18:02

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nei! Alls ekki. Svona framkoma er ólíðandi

Hrönn Sigurðardóttir, 10.4.2008 kl. 18:04

4 Smámynd: Dísa Dóra

Nei ekki kjósa svona lið sem ekki heilsar þér

Dísa Dóra, 10.4.2008 kl. 21:44

5 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Þetta er síðbúið samviskubit Anna

Þú ert að átta þig á mistökunum sem þú gerðir við síðustu kosningar

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 10.4.2008 kl. 22:29

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nú ætla ég að vera alvarleg.  *fliss*       *ræsk*   Ok núna;

Mér finnst þessi ríkisstjórn ekki standast mínar væntingar.  Reyndar finnst mér að þetta sé "ríkisstjórn hinnar miklu þagnar".  Maður hefur sko ekki hugmynd um hvort þingmennirnir séu að vinna eða ekki.    Samfylkingin verður að sýna eitthvað meira en ekkert til að ég kjósi þá aftur.  Og Sjálfstæðisflokkinn kýs ég ekki óklikkuð.  Hvað er þá eftir ?  Jú, ég get alltaf kosið yfir mig kaffipakka með Bé-i ef um allt þrýtur. 

Anna Einarsdóttir, 10.4.2008 kl. 22:41

7 Smámynd: arnar valgeirsson

kjóstu kommana og ekkert múður.

lifi byltingin

arnar valgeirsson, 10.4.2008 kl. 23:28

8 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Þær læðast gjarnan mýsnar en gera engu að síður óskunda

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 10.4.2008 kl. 23:56

9 identicon

Ég tek undir með Þorsteini...... En Anna það er líka til VG

ej

ej (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 00:02

10 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég er líka svona Anna...

Stundum...

Steingrímur Helgason, 11.4.2008 kl. 00:02

11 Smámynd: Ragnar Gunnarsson

Ég kaus samfylkinguna í s.l kosningum.  Leist ansi vel á Jóhönnu í félagsmálin varðandi hag okkar öryrkja.  Hún sagði svo rígmontin frá einhverjum ægilegum kjarabótum okkur til handa.  En þegar ég sá þetta á prenti, 4% hækkun 1.apríl og eftir það fæ ég 85 þúsund kall í vasann á mánuði, ákvað ég endanlega að kjósa þá aldrei aftur.  Hef tekið þá meðvituðu ákvörðun að vera ávallt í stjórnarandstöðu hér eftir.  Enda eru þetta allt sömu lúðulákarnir þegar á hólminn er komið

Ragnar Gunnarsson, 11.4.2008 kl. 01:30

12 Smámynd: Tiger

  Auðvitað áttu að kjósa þær aftur - það er ekki spurning! Ég skil bara ekkert í þér að vera að bögga þær svona í draumi - og alveg rétt af þeim að hundsa þig bara - boðflennan þín - þegar þær eru sannarlega að sýna þér að þær eru að vinna vinnuna sína - stíf fundarhöld eru sko ekkert grín þegar draumprúðar dömur eru í sífellu að poppa inn og út af fundum... þannig séð. Eigðu góða nótt Anna ...

Tiger, 11.4.2008 kl. 02:30

13 identicon

Nei ekki kjósa þær aftur

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 10:04

14 Smámynd: Brynja skordal

no comment hafðu ljúfa helgi mín kæra

Brynja skordal, 11.4.2008 kl. 11:50

15 Smámynd: Kristjana Bjarnadóttir

Anna, þú ert ekki ein um þetta.

Við gerum miklar kröfur til þessara stjórnmálamanna (kvenna en konur eru líka menn). Væntingarnar voru miklar. Sá vandi sem við okkur blasir í dag er hins vegar að miklu leiti tilkomin vegna aðgerða/aðgerðaleysis fyrri ríkisstjórnar.

En......... ég vil sjá meiri breytingar og meiri drift en við höfum séð seinustu mánuði. Stjórnmálamenn þurfa aðhald. Við eigum að veita það. Hins vegar held ég að jákvætt aðhald sé mun heillavænlegra en upphrópanir um að allt sé ómögulegt.

Þolinmæði mín er ekki endalaus, hún er hins vegar ekki þrotin...................Höldum vöku okkar, minnum á okkur og tökum vel eftir því sem vel er gert. Það skiptir ekki síður máli. Laga og reglugerðabreytingar taka hins vegar tíma og þess vegna höfum við enn ekki séð miklar breytingar.

ég vil hins vegar sjá alvöru vinstri stjórn næst. VG komu í veg fyrir það í vor og ég er þeim enn súr fyrir það. Sjálfstæðisflokkinn tel ég ekki með og Framsóknarflokkurinn þarf lengra frí.

ég hef lokið máli mínu (í bili).

Kristjana Bjarnadóttir, 11.4.2008 kl. 13:06

16 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Alveg er ég hjartanlega sammála þér Kristjana.  Mætti halda að við hefðum verið saman í bekk !  Það er enn skammt liðið á kjörtímabilið og ég hef ákveðið að gefa Samfylkingunni 2 ár í viðbót til að sanna sig.  En mér finnst klárlega að kjósendur eigi að kjósa flokka eftir frammistöðu þeirra en ekki samkvæmt gamalli hefð.  Ég er líka með samsæriskenningu (búin að horfa of oft á Spaugstofuna);  Það skyldi þó aldrei vera, að fjármálaráðherra fjársvelti Félagsmálaráðuneytið ?   

Nei, nú er ég farin að hugsa of mikið.    Farin að gera eitthvað viturlegt.

Anna Einarsdóttir, 11.4.2008 kl. 14:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 342860

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband