Garðálfarnir.

 

Jæja.  Helgin alveg dúndurgóð !  Happy   Gærdagurinn fór í þökulagningu eins og til stóð.  Sú gamla ...(þetta er sko pottþétt sagt í gríni.... sú gamla, dojojong LoL) ... gleymdi öllum bakverkjum þegar störf hófust og má því segja að andinn hafi verið holdinu yfirsterkari.

.

Til aðstoðar komu litla systir mín og hennar maður, auk þess sem minn maður vann eins og berserkur.  (Hann er sko búinn að sjá stóru hestatamningasvipuna mínaWink ) 

Verkið gekk vonum framar og að því loknu grilluðum við lambakjöt og hvítlauksmarineraðan lax, drukkum bjór og rauðvín og spiluðum fram á nótt.

Yndislegt líf og ekkert minna.  Cool

Set til gamans myndir af bakgarðinum FYRIR og EFTIR.  Þetta er eins og Extreame makeover.  Joyful 

.

bakgarðurinn . garður2  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þetta er aaaaaallt annað!

Til lukku

Hrönn Sigurðardóttir, 6.7.2008 kl. 21:27

2 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Til hamingju með nýja garðinn, flottur

Svanhildur Karlsdóttir, 6.7.2008 kl. 21:41

3 Smámynd: Ragnheiður

Ji og eru snúrur þarna ? Það sást sko ekkert fyrr en búið var að laga til hehe. Flott hjá þér Anna mín, flott

Ragnheiður , 6.7.2008 kl. 21:57

4 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Þvílíkur munur

Gunnar Helgi Eysteinsson, 6.7.2008 kl. 22:02

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

....ég var einmitt að velta þessu fyrir mér með snúrurnar.....

Færðust þær?

Hrönn Sigurðardóttir, 6.7.2008 kl. 22:21

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Takkes.    Já, snúrurnar færðust aðeins.  Á EFTIR myndinni ættuð þið að sjá rabbarbara út við enda og þar er líka smá kartöflugarður.  Nú verður gerð tilraun.  Við ætlum að setja niður kartöflur í júlí.  Sjáum svo hvað gerist. 

Anna Einarsdóttir, 6.7.2008 kl. 22:41

7 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ansans ári eruð þið dugleg.  TIl hamingju!

Ingibjörg Friðriksdóttir, 6.7.2008 kl. 23:13

8 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Hvað liðu mörg ár þarna á milli mynda..?

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 6.7.2008 kl. 23:38

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Það liðu tvær vikur. 

Sonur minn á nú alla undirvinnuna.  Mömmustrákur. 

Anna Einarsdóttir, 6.7.2008 kl. 23:59

10 identicon

Rosaleg flott.  Extreame grasover!!

alva (IP-tala skráð) 7.7.2008 kl. 00:35

11 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þetta er gargandi snilld! Á einni helgi? Varla að maður trúi þessu. Glæsilegt. Undarlegt samt að sömu helgi hafi farið fram landsmót"leðursætisfjórlappamarggangshoppara" á Hellu og Annan ekki á staðnum

Hvað um það, árangur "meikóversins" er aðdáunarverður. Til lukku með þetta. Þurfti að nota járnkall að einhverju marki í þetta, eða var það mest skóflan og hyggjuvitið, plús þökur? Tuðarinn gerði lítið annað en að selja ís um helgina, en þar sem hálf höfuðborgin var á fartinni vítt og breitt um landið, voru sölutölur frekar bágar.  

Halldór Egill Guðnason, 7.7.2008 kl. 02:03

12 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Enginn járnkall Halldór, í þetta sinn.   Sonur minn vann undirvinnuna....skóf jarðlagið ofan af með lítilli gröfu.  Hann fyllti tvo gáma af grasi, mold, grjóti, timbri og öðru drasli sem þurfti að henda

Eftir undirvinnuna, gátum við yfirunnið. 

Anna Einarsdóttir, 7.7.2008 kl. 09:32

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Er ekki morgunkaffið í bakgarðinu á hverjum degi héðan í frá?

Hrönn Sigurðardóttir, 7.7.2008 kl. 09:49

14 identicon

Þetta er flott.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 7.7.2008 kl. 10:33

15 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Jú, líklega verður það þannig Hrönn.  Áðan ætlaði ég að setjast út á sólpallinn en þá komu nokkrir geitungar og ráku mig inn aftur.    Einn settist meira að segja í stólinn sem ég ætlaði að setjast í. 

Geitungar til sööööölu !!

Anna Einarsdóttir, 7.7.2008 kl. 10:36

16 Smámynd: Dísa Dóra

Vá þvílíkur munur.  Flott hjá ykkur

Dísa Dóra, 7.7.2008 kl. 10:55

17 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þeir eru náttúrulega vanir að eiga svæðið.......

... prófaðu að setja mynd af þér út í tvo dag og tékkaðu svo á málunum ;) 

Hrönn Sigurðardóttir, 7.7.2008 kl. 12:30

18 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

ANNA

þú ert nú BLÖFFARI ALDARINNAR... Þetta er ekki sami bletturinn 

Brynjar Jóhannsson, 7.7.2008 kl. 12:51

19 identicon

til hamingju með nyja garðin mamma mín..:)  ertu búinn að setja ný tré við götuna?? svo er næst á dagskrá hjá okkur að fá möl á planið, vð kíkjum á aþð eithvern daginn á sumar...

 Best kv Binni

BInni (IP-tala skráð) 7.7.2008 kl. 21:37

20 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Takk Brynjar minn og þið öll hin. 

Trjánum við götuna verður plantað annaðkvöld. 

Maður fer alveg að fá grasgræna putta. 

Anna Einarsdóttir, 7.7.2008 kl. 22:45

21 identicon

Til hamingju með garðinn Anna mín ... æði.. engin smá munur... verð að taka rúnt í Borgarnes í næstu viku að kýkja    Enda komin tími til að kýkja á ykkur í heimsókn... Knús á línuna

Kristín Sif (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 342849

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband