Klukkan 2.35 í nótt mæta Íslendingar Rússum í handbolta á Ólympíuleikunum.

 

Afar líklegt er að margir séu sofnaðir á þeim tíma.

Til að fyrirbyggja að þú missir af leiknum, skaltu nú telja kindurnar á myndinni.

Þegar þú vaknar aftur, endilega kíktu inn og segðu mér hvað þær voru margar.

Sofðu vel..... en ekki of lengi.  Sleeping

.

rettir_011204 

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: kop

Ég fer fljótlega í að telja þessar rollur, enda þarf ég að vakna snemma til að sjá leikinn, sem er 4:45 á mínum tíma. Reyndar svolítið snemmt á sunnudagsmorgni, kannski sef ég bara.

Í fljótu bragði sýnist mér þetta vera 7 rollur, eða kannki þarf ég að fá mér gleraugu.

kop, 9.8.2008 kl. 18:26

2 Smámynd: Ragnheiður

Uhh  

Á ég að fara að sofa núna ?

OK

Ragnheiður , 9.8.2008 kl. 18:28

3 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 9.8.2008 kl. 19:45

4 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

21.765.887...88...89...zzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz

Nei ussusussu...ég ætla sko að vaka...ekki spurning....

Vona bara að nágrannarnir vakni ekki við öskrin í mér...ég get ekki horft á hanbolta án þess að leyfa tilfiinningunum að flakka..er með fyrir allan peninginn....he he....

Bergljót Hreinsdóttir, 9.8.2008 kl. 19:49

5 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Ég missi sko ekki af þessum leik..... tengdasonur minn spilar þarna með þannig að ég verð að vaka og styðja við bakið á strákunum okkar......Áfram Ísland...

Fanney Björg Karlsdóttir, 9.8.2008 kl. 20:16

6 Smámynd: Dísa Dóra

Þetta eru ekki rollur - skilst að þetta heiti ísbirnir nú til dags

Hér verðu sko sofið í alla nótt enda mín að fara að vinna á morgun. 

Dísa Dóra, 9.8.2008 kl. 20:21

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Fanney.... hver ??? 

Fúsi er frændi minn. 

Anna Einarsdóttir, 9.8.2008 kl. 20:39

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nei annars Fanney.  Ekki segja. 

GÁTA;  Hver leikmanna íslenska handboltalandsliðsins er tengdasonur Fanneyjar bloggvinkonu ??

Anna Einarsdóttir, 9.8.2008 kl. 20:45

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég veit það!! Viltu að ég segi það strax?

Hrönn Sigurðardóttir, 9.8.2008 kl. 21:40

10 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já Hrönn.  Það er svo gaman þegar þú sigrar í keppnum. 

Anna Einarsdóttir, 9.8.2008 kl. 21:41

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hann heitir......

Hrönn Sigurðardóttir, 9.8.2008 kl. 21:56

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

....eruði spennt?

Hrönn Sigurðardóttir, 9.8.2008 kl. 21:56

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

tara..........

Hrönn Sigurðardóttir, 9.8.2008 kl. 21:56

14 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hann spilar með Aarhus.....

Hrönn Sigurðardóttir, 9.8.2008 kl. 21:57

15 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

og nafnið er:..........

Hrönn Sigurðardóttir, 9.8.2008 kl. 21:57

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

..........Sturla Ásgeirsson!!

Hrönn Sigurðardóttir, 9.8.2008 kl. 21:57

17 identicon

Ætlar kellan ekki að koma á facebook???

Sif (IP-tala skráð) 9.8.2008 kl. 22:00

18 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Og Hrönn vann.  Hún er fæddur sigurvegari. 

Andlitsbók ?  Ég hef nú aldrei komið þangað.  Þarf að hugsa um það. 

Anna Einarsdóttir, 9.8.2008 kl. 22:02

19 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Já .. hú Hrönn er engri lík...... hún vinnur í öllum gátukeppnum sem hún kemst í...

Fanney Björg Karlsdóttir, 9.8.2008 kl. 22:30

20 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Er flautukonsert í medúr í verðlaun?

Hrönn Sigurðardóttir, 9.8.2008 kl. 22:42

21 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Andlitsbók er algjört bull! Vertu ekkert að hugsa um það....

Hrönn Sigurðardóttir, 9.8.2008 kl. 22:42

22 Smámynd: Steingrímur Helgason

Þetta eru nú bara 811 rollur, má ég fara að lúlla núna ?

Steingrímur Helgason, 9.8.2008 kl. 22:49

23 Smámynd: Anna Einarsdóttir

 Hahahaha ..... Góða nótt Steingrímur.  Láttu klukkuna hringja kl. 02.25

Anna Einarsdóttir, 9.8.2008 kl. 22:51

24 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hrönn.  Þú hefur unnið svo margar gátur að þú átt inni tvo kaffibolla og ábót, átta pönnsur, þrjár kexkökur frá Frón og súkkulaðimola.... en mig rekur ekki minni til að þú hafir unnið þér inn konsert.    Ég get þó lofað þér Gretti Björnssyni á fóninum á meðan þú borðar þig sadda. 

Anna Einarsdóttir, 9.8.2008 kl. 22:56

25 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Var ekki gamli hundraðkallinn með svona mynd? Náði aldrei að sofna út frá honum.Hvar fær maður annars almennilegt kaffi í Borgarnesi á leiðinni norður eða niður? Var einhver að misþyrma þnjóhnöppunum og bakinu sínu í garðinum þínum um helgina Anna mín? ..Bara spyr. Kvartað yfir eymslum á þessum stöðum á annari síðu hér í dag.

Halldór Egill Guðnason, 9.8.2008 kl. 23:01

26 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Halldór vinur minn.  Hvernig í ósköpunum datt þér í hug að keyra framhjá ?   

Á þessu heimili er hið almennilegasta kaffi fyrir þig og þína.

Sumir tóku vel á´ðí í gær og mokuðu 15 rúmmetrum af möl í innkeyrslunni.  Vöðvaeymsli bloggsíðuritara eru reyndar efni í heilan pistil.  Allir hálfaumir í dag á þessu heimili.   Hvað eru 15 rúmmetrar mörg kíló ?  Vúúúú...... við erum komin með nýja gátu. 

Anna Einarsdóttir, 9.8.2008 kl. 23:12

27 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Fer dulítið eftir efninuBómull eða blý........fer jafnmikið fyrir hvoru tveggja, en þyngdin all mismunandi. Vona að þú hafir ekki sett blý í innkeyrsluna. Skil þá vel að sumir séu sárir og stirðir á hinum endanum og upp með bakinu.

Halldór Egill Guðnason, 10.8.2008 kl. 00:30

28 Smámynd: Anna Einarsdóttir

15 rúmmetrar af möl addna. 

Anna Einarsdóttir, 10.8.2008 kl. 00:53

29 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Halldór Egill Guðnason, 10.8.2008 kl. 01:15

30 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Strákarnir OKKAR höfðu þetta - vonandi setja Rússar ekki hafnbann á okkur í kjölfarið...:(

Ásgeir Kristinn Lárusson, 10.8.2008 kl. 10:18

31 identicon

Frábær leikur fyrir utan markvörslu. Hvar er Birkir Ívar af hverju er hann ekki með ??? veit það einhver??  Held þetta hafi samt verið 817 ísbirnir

(IP-tala skráð) 10.8.2008 kl. 11:34

32 Smámynd: Brattur

já, það var alveg þess virði að vaka og sjá sætan, öruggan íslenskan sigur... vááá hvað þetta var gaman...

Birkir Ívar var ekki valinn í liðið að þessu sinni...

Brattur, 10.8.2008 kl. 13:08

33 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nei góðan daginn. 

Þeir sem vaka lengi á nóttunni..... sofa lengi á daginn.   (GEISP.... bráðvantar brosandi geispkall hérna) 

Alveg hreint obboslega skemmtilegur leikur í nótt.  Skemmtilegt lið.  Alexander Petterson og Snorri Steinn eru algjörir gullmolar.  Er hrifin af tengdasyni Fanneyjar,.... Sturlu.  Sá kom svellkaldur inn.  Skoraði þrjú mörk, "varði" hraðaupphlaup og gaf bestu stoðsendingu leiksins.    Strákarnir OKKAR !!!

Anna Einarsdóttir, 10.8.2008 kl. 13:38

34 Smámynd: Ragnheiður

Fanney má vera stolt af tengdasyninum ! Ji minn eini, ég er eins og draugur upp úr öðrum draug en hey, ég náði að vaka og horfa á þetta allt saman....

Mér finnst að ég eigi inni verðlaun, ætli ég geti talað við Olympíunefndina um svoleiðis?

Ragnheiður , 10.8.2008 kl. 14:07

35 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Blessuð vertu ekki að eyða tíma í að tala við Olympíunefndina.

Verðlaunaðu þig bara sjálf !    Þú átt það svo sannarlega skilið.

Anna Einarsdóttir, 10.8.2008 kl. 14:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 342859

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband