Veit þetta einhver ?

Það skemmtilega við lífið er að maður er alltaf að upplifa eitthvað nýtt.  Í dag gerðist dálítið, frekar furðulegt.  Ég þurfti að hringja í konu í ónefndu fyrirtæki og biðja hana að senda mér dálítið í tölvupósti.  Svo leið og beið og leið aðeins meiri tími og loks kom hún aftur í símann.  Hún spurði um meilið mitt og ég byrjaði "anna" ... ha sagði konan.... anna@.... hvað segirðu ?  ANNA.... hálfhrópaði ég.  Þá sagði hún þessa fleygu setningu:  "Og hvernig er það stafað" ?   Hahahahahaha...... nú reynir á alla heimsins fræðinga í íslenskri tungu.  Hvernig er hægt að stafa nafnið Anna vitlaust ?  Ég óska eftir tillögum. Joyful

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Varstu nokkuð með bréfaklemmu fasta á milli tannanna, Anna gæti hljómað undarlega við svo undarlegar aðstæður...annars engar skýringar nema lág greindarvísitala

Gillí (IP-tala skráð) 22.3.2007 kl. 22:56

2 identicon

Gæti hafa verið óvissa með Hanna, Nanna eða Anna... ekki satt Anna?

Amigo (IP-tala skráð) 22.3.2007 kl. 23:04

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Jahá... það skyldi þó ekki vera mín eigin greindarvísitala sem hefur hrapað fyrst mér datt þetta ekki í hug.   Minnir mig á þegar ég fór í bankann í gamla daga og gjaldkerinn kallaði fimm sinnum GUNNA.  Las það úr skriftinni minni.

Anna Einarsdóttir, 22.3.2007 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband