Skýrsla stjórnar.

 

Skákmótið fór fram í gær....

Það er ekki orðum aukið, að ég hef sjaldan skemmt mér jafnvel á ævinni.  Grin

.

Það tilkynnist hér með að Ægir er skákmeistarinn 2007.

Hann sigraði allar sínar skákir, enda á heimavelli strákurinn.  Til hamingju Ægir.  Smile

.

Af því að þetta er mín síða, ætla ég að gera hér grein fyrir óvæntum ósigrum mínum.

Ægir sigraði mig eins og áður sagði.  Það var svo sem allt í lagi, þar sem ég tefldi á útivelli... og hann vann alla hina líka.

.

Það var sýnu verra að Arnfinnur vann mig.  Frown  Skelfileg mistök !

Arnfinnur er sveitastrákur.  Haustið hefur greinilega mikil áhrif á hann, því hann tefldi eins og hann væri í miðri sláturtíð.   Hann óð um skákborðið og slátraði öllu sem fyrir varð.  Ég, í sjálfsvörn, reyndi að drepa hans menn...... og tókst, nema hann, með sjónhverfingum, gat laumað þremur peðum sínum inn á borðið í endastöðunni.  Svo beið hann bara þangað til eitt peðið óx og varð að fullvaxta drottningu. 

Arnfinnur ruddi !

.

Í fimm skákum virkuðu "klukkutöfrabrögðin" og ég knúði fram sigur.  Wink

.

Svo votta ég hér með að Kristjana, Ingibjörg, Ægir, Arnfinnur, Brattur, Edda, Björg og Halldór eru allt öðlingsfólk og húmoristar af lífi og sál....... sem hrekur þá kenningu, að fólk sem maður kynnist í gegnum tölvu sé allt PERRAR.  LoL

.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já..... gleymdi einu !

Ægir.... kysstu konuna þína frá okkur öllum.... TAKK ANNA  (ekki ég samt)  fyrir lánið á húsinu. 

Anna Einarsdóttir, 8.9.2007 kl. 17:21

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Allt fólk er perrar... við erum bara misjafnlega góð að fela það.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 8.9.2007 kl. 17:44

3 identicon

Ekkert að þakka nafna. Þið eruð augljóslega snyrtipinnar á gleðistundu. Á meðan þið iðkuðuð ykkar nördalegu íþrótt tók ég þátt í miklum mannraunum um flúðir Hvítár. Uppskar lemstraða hönd en mikið fjör

Anna B. ("frúin"!) (IP-tala skráð) 8.9.2007 kl. 18:13

4 Smámynd: Þröstur Unnar

Þröstur Unnar, 8.9.2007 kl. 19:49

5 Smámynd: Brattur

... já, Anna... við erum bara öll ÆÐI...

Brattur, 8.9.2007 kl. 20:05

6 Smámynd: Arnfinnur Bragason

Ruddi!! humm ha? Þú getur ekki kennt mér um þó eina takmark þitt á skákmótinu hafi ekki náðst . En þetta verðu allt í lagi Anna mín því eins og þú veist þá geri ég þetta aldrei aftur og þar af leiðandi þegar við teflum næst verð ég auðmjúkur og auðveldur andstæðingur

Arnfinnur Bragason, 8.9.2007 kl. 21:29

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já Arnfinnur....... það er sko ekki endalaus sláturtíð.  Þú verður upptekinn við að sauma keppi næst þegar við mætumst...... og þá áttu ekki séns. 

Anna Einarsdóttir, 8.9.2007 kl. 22:16

8 Smámynd: kloi

Anna, náði mér ekki á strik í gær, er pínu feiminn í fjölmenni.  En skil núna þetta klossaflens hjá hjónunum

kloi, 8.9.2007 kl. 22:24

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já Klói.... mér fannst þú heldur fálátur í gær.... heilsaðir mér ekki einu sinni.    Þú klikkar ekki á þessu næst.

Anna Einarsdóttir, 8.9.2007 kl. 22:33

10 identicon

En bíðið... hver datt??? ...múúúhaaaa...  Nei ég skal vera stillt.. bara smá payback fyrir að hafa verið illilega tekin í rassgatið af henni Önnu.. þvílíkur skáksnillingur.. Hún vann mig á 2 mín á meðan Ægir vann mig bara á klukkunni..

Björg F (IP-tala skráð) 8.9.2007 kl. 23:09

11 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Það datt botninn....... hann er í Borgarfirði núna.   

Anna Einarsdóttir, 8.9.2007 kl. 23:21

12 Smámynd: kloi

Drottningin datt.......í hverri skák,  þegar Kristjana tefldi.  Það var fyndið, ég lá undir sófa og lék mér að henni  skemmti mér vel, var í felum  lofa að segja ekki neitt.....dúbbi, dúbbi dú...mér finnst rjómi góður

kloi, 8.9.2007 kl. 23:30

13 identicon

Hvernig er hægt að upplifa lemstraða hönd í Hvítá????? Eru nöfnurnar að leika sama leikinn.. hoppa út í ánna á stórhættulegum stöðum?? Hvað er þetta með Önnur og flúðasiglingar...?

Björg F (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 00:27

14 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hoppa út í ána á stórhættulegum stöðum ??....sýnir það ekki best hversu miklar kjarnakonur við erum ?   

Anna Einarsdóttir, 9.9.2007 kl. 00:38

15 Smámynd: arnar valgeirsson

ég veit hversvegna hvítá heitir hvítá en það skiptir ekki máli. annars eru fimm af sjö ótrúlega góður árangur og þú hefur væntanleg náð áfanga að alþjóðlegum titli skákfólks með tattó.

sennilega áfanga að stórmeistaratitli bloggara með tattó.

hef heyrist mér misst af skemmtilegri kvöldstund. nema þið séuð að ljúga því að þetta hafi verið svona gaman. voru kannski veitingar í fljótandi formi og stríðum straumum?

arnar valgeirsson, 9.9.2007 kl. 01:36

16 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þú misstir svo sannarlega af algerlega ógleymanlega skemmtilegri kvöldstund Arnar...... og það þurfti ekkert áfengi til að svo væri,,  fólkið bara small saman frá fyrstu mínútu og það var hlegið allt kvöldið og alla nóttina...... líka meðan teflt var.... ekkert hátíðlegt hugs-andrúmsloft.... enda reglurnar í mótinu afar óvenjulegar.    

Anna Einarsdóttir, 9.9.2007 kl. 10:37

17 Smámynd: Bjarni Sæmundsson

Skemmtileg tilviljun! Ég var einmitt að tefla í gær og er að fara að tefla aftur á eftir við fyrrverandi skákmeistara Bahama í úrtökumóti fyrir meistaramótið. Það kom svo í ljós eftir skákina þegar við vorum nokkrir að spjalla saman að við höfðum allir starfsheiti sem endar á -ician, ég var electrician, einn var musician, annar physician og einn magician  Þannig að kannski við stofnum skákfélag manna með starsheiti sem endar á -ician?

Bjarni Sæmundsson, 9.9.2007 kl. 15:45

18 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Takk Takk Takk Anna og co. Er að ferðbúast í langferðina, en læt eitt eða tvö tuð detta áður en ég fer. 

Halldór Egill Guðnason, 9.9.2007 kl. 22:19

19 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Aldrei hefði ég trúað að ég ætti eftir að sakna TUÐS...

Anna Einarsdóttir, 9.9.2007 kl. 22:39

20 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Þetta verður prentað út og hengt upp á kennarastofunni.

Og hér með  auglýsi ég KRISTAL og RED CHILI Á LAUGAVEGI 176

Ingibjörg Friðriksdóttir, 10.9.2007 kl. 11:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 342862

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband