Týnda tóbakið.

 

Bjarni æskufélagi minn er orðinn bloggvinur....  þetta er sko skemmtilegt líf.  Smile

.........

Æskuminning........

Einu sinni sem oftar, sendi pabbi mig í verslunarleiðangur fyrir sig út að Vegamótum.  Hann vantaði Half and Half píputóbak.  Þetta hefur líklega verið árið 1975. 

.

486398142_96b56109f6

.

Ég bið um Half and Half-ið og borga fyrir það.  Sæmundur afgreiddi mig.  Við spjölluðum heillengi saman.   Síðan býst ég til brottfarar en finn þá ekki píputóbakið.  Spyr Sæmund hvort hann sjái það og í kjölfarið hefst mikil leit.  Við leituðum og leituðum... líklega í upp undir hálftíma.

Allt í einu segir Sæmundur:  "Ég er búinn að finna það" ! 

"Hvar" spyr ég.

"Það er undir hendinni á þér".

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þú gætir verið skyld inn í mína ætt.  Þar eru menn afar utan við sig. Alltaf verið að hringja á lögreglu og tilkynna stolna bíla. Það er þó alltaf rauninn að viðkomandi fór ekki í bæinn á bílnum eða gleymdi bílnum í bænum og gekk heim eða þá man bara ekki baun hvar hann lagði honum. Ég er þessi síðastnefndi, eyði löngum og heilsusamlegum göngum í að leita að bílnum mínum. 

Jón Steinar Ragnarsson, 15.9.2007 kl. 10:32

2 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

LOL

Bjarndís Helena Mitchell, 15.9.2007 kl. 10:40

3 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

*lol*
Þegar ég var litill þurfti ég oft að hjálpa ömmu minni að leita eftir gleraugum hennar... oftast fundum við gleraugun á nefinu hennar.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 15.9.2007 kl. 10:58

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Það væri nú ekki leiðinlegt að vera skyld þér Jón Steinar.     Reyndar rifjar kommentið þitt upp fyrir mér atvik.... Ég keyrði heiman frá mér og að Vegamótum... tók bensín... og gekk svo heim.  Gleymdi bílnum !

Svo er ég sífellt að týna bílnum mínum í Reykjavík..... var einu sinni meira en hálftíma að leita að honum á bak við Landspítalann. 

Anna Einarsdóttir, 15.9.2007 kl. 12:16

5 Smámynd: Bjarni Sæmundsson

Fyrsta skipti sem ég eignaðist bíl, fór ég á honum í vinnuna en tók síðan strætó heim :)

Bjarni Sæmundsson, 15.9.2007 kl. 14:23

6 Smámynd: Arnfinnur Bragason

Skárra er að týna einhverjum hlutum....... verra er þegar maður týna sjálfum sér

Arnfinnur Bragason, 15.9.2007 kl. 17:02

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hehe. það sem grípur mig er að barnið var sent eftir tóbaki. Held ekki að það hafi gert þig að verri manneskju... eða hvað?

Jóna Á. Gísladóttir, 16.9.2007 kl. 14:52

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nei Jóna mín...... það þótti deginum ljósara að ég reykti ekki pípu.... allir þekktu alla í þessu litla samfélagi.    Og ég er betri og betri.....

Anna Einarsdóttir, 16.9.2007 kl. 15:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 342818

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband