Hvað þætti þér sanngjarn og réttlátur dómur ef BARNIÐ ÞITT eða KONAN ÞÍN yrði fórnarlamb kynferðisglæpamanns ?

 

Hinn svarti dagur Dómaranna.

 

Látum nöfnin þeirra standa í svörtu  í allan dag á bloggsíðum okkar. Þau tala fyrir sig sjálf verkin þeirra. Og við erum með þögla yfirlýsingu um hvað okkur finnst um þau.

Það voru hæstaréttardómararnir; Gunnlaugur Claessen, Garðar Gíslason, Ingibjörg Benediktsdóttir, Markús Sigurbjörnsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson sem sáu ástæðu til að milda dóm nauðgarans úr 4 ár sem var dómur héraðsdóms í 3 1/2 ár.

Hvar stendur þjóð sem skynjar ekki réttlæti sitt og traust á þeim sem eiga að fylgja því eftir???

Ég ætla að láta þessi nöfn og spurningu mína standa hér í dag með stórum svörtum stöfum. Vona að fleiri geri slíkt hið sama á sinni bloggsíðu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnfinnur Bragason

Persónulega finnst mér að nauðgun og eða kynferðisglæpir jafngilda morði og ættu því að dæmast á svipuðum nótum. Það er svo annað mál að fangelsisdómur er lítil lausn við afbrotum sé hann látinn nægja einn og sér.  Í flestum  tilfellum er aðeins verið að búa til hættulegri afbrotmenn með löngum dómum enda lögnum vitað að seta í fangelsi gerir lítið annað en skemma menn. Þetta eru allt viðkvæm og erfið mál og lausnin vandfundin en einhverskonar meðferð verður að koma til því menn sem fremja glæpi sem þessa eru auðvitað ekki heilir og þurfa á  hjálp að halda.

Misskiljið mig samt ekki ég er ekki að verja dómarana eða afbrotamennina í málinu hér fyrir ofan enda eins og ég sagði þá finnst mér að dæma eigi nauðgun á svipuðum nótum og um morð værir að ræða. Held bara að það þurfi að fara að skoða fleiri lausnir en bara fangelsisdóm.....

Vona að þið skiljið mig

Arnfinnur Bragason, 17.9.2007 kl. 13:49

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég skil þig Arnfinnur.... það eru alltaf margar hliðar á einu máli.  Persónulega myndi ég vilja GELDA menn sem misnota börn kynferðislega.  Einfalt !  Þessi börn bíða þess, sum, aldrei bætur.... og í minni forgangsröðun er líf barns mörgum sinnum mikilvægara en óhaminn losti einhvers manns... eða brenglun... eða hvað á að kalla svona afbrigðilega hegðun.

Dómstólar eiga að meta líf fólks verðmætara en fjármagn fólks....  en miðað við gengna dóma, virðist svo ekki vera.

Anna Einarsdóttir, 17.9.2007 kl. 14:28

3 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

10 til 20 ár eftir hörku glæpsins.

Sigfús Sigurþórsson., 17.9.2007 kl. 14:43

4 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Ps. viðkomandi sleppur ávallt út með helming, reikna skal með því.

Sigfús Sigurþórsson., 17.9.2007 kl. 14:44

5 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Anna mín, ég er svo sem sammála þeim, sem segja að fangelsisvist sé engin betrun, en allavega ættu konur og börn að vera óhult á meðan.  Nauðgun og aðrir kynferðisglæpir eru svo svívirðilegir að önnur brot, blikna gjarnan. Biðjum nú þess að dómarar á Íslandi, fari að skoða refsirammann betur og fylgi honum eftir. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 17.9.2007 kl. 15:30

6 Smámynd: Arnfinnur Bragason

Fullkomlega sammála þér Anna að meta skuli líf fórnarlambanna fyrst og fremst.... átti bara við að loka inni svona menn væri bara tímabundin lausn, þeir koma jú út aftur og halda áfram fyrri iðju í lang flestum tilfellum. Held ég hafi lesið eða heyrt að endurkoma á Litla-Hraun væri eitthvað í kringum 85%. Man ekki töluna nákvæmlega en há var hún allavega... Þess vegna sagði ég að fangelsisdómur einn og sér væri engin lausn.

En það er auðvelt að tala um meðan mans nánustu lenda ekki í svona  lífsreynslu.... Annað er að upplifa, gæti verið að afstaða mín væri allt önnur ef t.d. dætur mínar yrðu fyrir barðinu á svona níðingsmönnum...

Arnfinnur Bragason, 17.9.2007 kl. 17:29

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Guðjón.... það skiptir máli hvaða skilaboð hæstiréttur sendir út í þjóðfélagið.  Ég heyrði bara í dag, afar sorglegt dæmi um afleiðingar misnotkunar.... og gerandinn slapp.... með fáránleg rök á bakvið sig.

það verður að taka á þessum málum af alvöru !  

Anna Einarsdóttir, 17.9.2007 kl. 17:32

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Og ég segi það bara aftur....... ÞAÐ Á AÐ GELDA ÞESSA ANDSKOTA !

Ef það er eitthvað sem gerir mig virkilega svakalega reiða, þá er það þegar ráðist er á minni máttar.

Anna Einarsdóttir, 17.9.2007 kl. 17:38

9 Smámynd: Gíslína Erlendsdóttir

Sammála þér það á að gelda alla þessa andskota, þeir yrðu sjálfir sáttir við það enda skilst mér að þeir séu veikir og geti ekki stjórnað þessu svo lækning hlýtur að vera lausnin = gelding.

Gíslína Erlendsdóttir, 17.9.2007 kl. 17:43

10 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Þið vitið hvað átt er við með geldingu stelpur?

Ekki að klippa á sáðrásina, heldur skera undan þeim eistun eins og gert er við hrossin í sveitinni.

Já, ég er sammála, það á að taka ólæknandi kynferðisafbrotamenn og steingelda þá.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 17.9.2007 kl. 18:57

11 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Eistun burt.... eistun burt... !!

Anna Einarsdóttir, 17.9.2007 kl. 19:07

12 Smámynd: Kristjana Bjarnadóttir

Mildun hæstaréttar vekur fordæmingu, takk fyrir að vekja athygli á þessu. Ætla nú ekki að óhugsuðu máli að taka undir með ykkur varðandi þessar aðgerðir en svo sannarlega þurfa þessir sjúku einstaklingar á einhverskonar meðferða að halda. Fangelsisdómur leysir ekki málið.

Kristjana Bjarnadóttir, 17.9.2007 kl. 19:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 342819

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband