Hver er boðskapurinn í þessum háfleyga texta ?

 

 

Der var en skikkelig bondemand,                      Það var einn skikkanlegur bóndakall
han skulle ud efter øl.                                        sem ætlaði út eftir bjór
Der var en skikkelig bondemand,                      það var einn skikkanlegur bóndakall
han skulle ud efter øl.                                        Hann ætlaði út eftir bjór
Han skulle ud efter øl,                                       hann ætlaði út eftir bjór
han skulle ud efter øl, efter øl,                            hann ætlaði út eftir bjór, eftir bjór
efter hopsasa, tralalala,                                      og svo.... hoppaði og trallaði
han skulle ud efter øl.                                        hann ætlaði út eftir bjór
.

.
Til konen kom der en ung student,                     Þá kom til konunnar ungur stúdent
mens manden var ud' efter øl.                            er bóndinn fór út eftir bjór
Til konen kom der en ung student,                     þá kom til konunnar ungur stúdent
mens manden var ud' efter øl.                            er bóndinn fór út eftir bjór
Mens manden var ud' efter øl,                           er bóndinn fór út eftir bjór
mens manden var ud' efter øl, efter øl,               er bóndinn fór út eftir bjór, eftir bjór
efter hopsasa, tralalala,                                      aftur.... hoppaði og trallaði
mens manden var ud' efter øl.                            er bóndinn fór út eftir bjór
.

.

Han klapped' hende på rosenkind                     Hann klappaði henni á rósrauða kinn
og kyssed' hende på mund.                               og kyssti svo hana á munn
Han klapped' hende på rosenkind                     hann klappaði henni á rósrauða kinn
og kyssed' hende på mund.                               og kyssti svo hana á munn
Mens manden var ud' efter øl,                           meðan bóndi var úti eftir bjór
mens manden var ud' efter øl, efter øl,               meðan bóndi var út´eftir bjór, eftir bjór
efter hopsasa, tralalala,                                     aftur.... hoppuðu og trölluðu
mens manden var ud' efter øl.                           meðan bóndi var úti eftir bjór
.

.
Men manden stod bag ved døren og så,            En bóndinn í dyragætt stóð og allt sá
hvordan det hele gik til.                                     hvað gerðist þar inni hjá þeim
Men manden stod bag ved døren og så,            en bóndinn í dyragætt stóð og allt sá
hvordan det hele gik til.                                     hvað gerðist þar inni hjá þeim
For de trod' han var ud' efter øl,                        en þau héld´ann væri úti eftir bjór
for de trod' han var ud' efter øl, efter øl,            en þau héld’ann væri úti eftir bjór,eftir bjór **
efter hopsasa, tralalala,                                     aftur.... hoppuðu og trölluðu
for de trod' han var ud' efter øl.                         því þau héld´ann væri úti eftir bjór

.

.

Så skød han studenten og kællingen med,          Svo skaut hann stúdent og kjelluna með
og så gik han ud efter øl.                                    og svo fór hann út eftir bjór
Så skød han studenten og kællingen med,          svo skaut hann stúdent og kjelluna með
og så gik han ud efter øl.                                    og svo fór hann út eftir bjór 
Og så gik han ud efter øl,                                   Já svo fór hann út eftir bjór
og så gik han ud efter øl, efter øl,                        svo fór hann út eftir bjór, eftir bjór
efter hopsasa, tralalala,                                       aftur.... hoppaði og trallaði 
og så gik han ud efter øl.                                     svo fór hann út eftir bjór
.

.
** Ég gerði átta tilraunir til að hafa jafnt línubil.... só sorrý að þetta rennur saman.  Grin 







« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnfinnur Bragason

Aha!... þar er komið svar við því sem ég hef verið að leita að..... Það er ekki hald í viðhaldi....

Arnfinnur Bragason, 17.9.2007 kl. 17:42

2 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Boðskapurinn, er kýrskýr,

Karlandskotinn er ekki almennilegur, nema hann forgangsraði bjórnum á undan kellu sinni, en kerlingin er réttdræp ef hún finnur sig ekki í öldrykkju bóndans og þiggur blíðuhót af öðrum.

  Ég skyldi svo sannarlega heldur drepast en að eiga svona karl.  Og þó, ég væri búin að drep'n

Ingibjörg Friðriksdóttir, 17.9.2007 kl. 19:02

3 Smámynd: arnar valgeirsson

óska þér til hamingju með flotta uppsetningu.

en textasmíði skiptir ekki alltaf öllu máli. vegna þess að fólk er fífl.

félagi minn einn spilaði sem trúbador á pöbb. æfði sig vel og lengi og tók bæði glæst lög og slagara við misgóðar undirtektir.

svo spilaði hann og söng bjarnastaðarbeljurnar. við trylltar undirtektir. spilaði lagið tíu sinnum um kvöldið og fólki fannst hann gjörsamlega æðislegur........

arnar valgeirsson, 17.9.2007 kl. 19:03

4 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

- Aldrei skyldi haglabyssu að hurðarbaki geyma -

Ásgeir Kristinn Lárusson, 17.9.2007 kl. 19:57

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hinn rétti boðskapur er ekki enn kominn fram. 

Anna Einarsdóttir, 17.9.2007 kl. 20:01

6 Smámynd: Arnfinnur Bragason

 Anna þú ert aaaaaaaaalltof háfleyg, svona á mánudegi

Arnfinnur Bragason, 17.9.2007 kl. 20:12

7 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Aldrei treysta karlfjandanum, hann liggur alltaf á hleri

Anna komdu með það, fer ekki í Mörkina án þess að vita boðskap þessarra merkilegu erinda. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 17.9.2007 kl. 20:49

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ok Ingibjörg.... ég sagði um daginn að ég gerði ALLT fyrir þig svo ég á engan valkost.....

Boðskapurinn er;  TAKTU KONUNA MEÐ ÞÉR ÞEGAR ÞÚ SÆKIR BJÓR. 

Anna Einarsdóttir, 17.9.2007 kl. 20:55

9 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Já, en kæra Anna, hefðir þú viljað fara með karlgarminum?????

Takk samt fyrir að segja mér þetta, ég ætti kannski að taka minn með mér í Mörkina. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 17.9.2007 kl. 21:18

10 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já Ingibjörg,, ekki spurning.  Vil frekar rölta mér út að sækja bjór, heldur en að verða skotin. 

Anna Einarsdóttir, 17.9.2007 kl. 21:22

11 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ógeðslega er þetta fyndið!

Aldrei hefði mér dottið í hug þessi lausn! Það er sko ýmislegt sem mar getur lært af þér Anna mín. 

Edda Agnarsdóttir, 17.9.2007 kl. 21:24

12 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Skemmtilegasta sem ég veit er að vera skotin, og ANNa við getur alveg séð við þessum köllum og verið fyrri til.

Jú, það er líka gaman að rölta út eftir ölllll, udetter öl. Það skulum við gera einn daginn Anna.  En nú verð ég að fara pakka, tall fyrir kveðjuna, og friður sé með fríðu

Ingibjörg Friðriksdóttir, 17.9.2007 kl. 21:27

13 Smámynd: Brattur

... Stefán á Útistöðum dróg upp haglabyssuna í miðju viðtali við fréttamann sjónvarpsins og skaut mann sem þar gekk framhjá... hva... hvað ertu að gera maður... sagði fréttamaðurinn... Stefán á Útistöðum saug upp í nefið og svaraði... ja, ég hef ekki bara ekki hitt kunningja minn lengi...

Brattur, 17.9.2007 kl. 21:39

14 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hahahahaha  ........ þessi er góður Brattur ! 

Anna Einarsdóttir, 17.9.2007 kl. 21:42

15 Smámynd: kloi

Imba.....ég vil engar kellur, tómt vesen, svo verð ég líka alltaf svo vandræðalegur þegar þær leita á mig.  Drekk stundum bjór þegar sullast á gólfið. Var rallhálfur þarna um daginn á þessu móti, mikið um slettur....

kloi, 17.9.2007 kl. 21:51

16 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Það er svona þegar menn missa niður Klói minn, það er ekki svona hjá henni Fríðu gömlu, hún fer bara snemma að sofa og biður bænirnar sínar.  Skal klappa þér greyið næst þegar ég hitti þig.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 17.9.2007 kl. 22:34

17 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Gleymdi bara að slökkva á tölvunni, svo ég varð að fara niður aftur.

Góða nótt 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 17.9.2007 kl. 22:35

18 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Góður boðskapur Anna og spaklegur Kannski fullmörg erindi um ekki flóknari aðgerð, en........  held mig við rauðvínið. Þá er enginn "skotinn"...já eða þannig.

Halldór Egill Guðnason, 17.9.2007 kl. 22:43

19 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

því lík vinna sem þú hlítur að hafa lagt á þig við þetta blogg... ÚFf .. færð hrós fyrir þetta..

Brynjar Jóhannsson, 18.9.2007 kl. 00:14

20 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Brynjar... .... sko... copy paste kom mér hálfa leið... med den danske tekst...... og svo er ég alveg fádæma fljót að vélrita... mont mont..... svo þetta tók kannski svona 10 mínútur.    Takk samt,, margur hefur hrósað minna og séð eftir því.

Anna Einarsdóttir, 18.9.2007 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 342818

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband